Stundum langar mig að trúa því að menn séu ólæsir
—

Ögmundur Jónasson
20. feb, ’26

Sannast sagna langar mig til að trúa þessu. Eða hafa þau sem mæra ræðu Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Munchen nýlega virkilega lagt sig eftir því að skilja að ræðan fjallaði um nýlendustefnuna fyrr og nú, hve stórkostleg hún hefði verið og að framtíðin hlyti að byggja á því að viðhalda henni og tryggja framtíð hennar til frambúðar?
(Myndin að ofan er af vef bandaríska utanríkisráðuneytisins):

Hvort var verra ræðan eða klappið í Munchen veit ég ekki. Sérstaklega þegar hann sagði að forkastanlegt hafi verið að byggja upp velferðarkerfi á kostnað hervæðingar!!!


„We increasingly outsourced our sovereignty to international institutions while many nations invested in massive welfare states at the cost of maintaining the ability to defend themselves.“

Óábyrgt að fjárfesta í velferð í stað vopna

Svo bætti hann við að þessi óábyrga fjárfesting í velferð hefði átt sér stað á sama tíma og önnur ríki, það er óvinaríki, hefðu fjárfest meira en nokkru sinni í sögu mannskyns í hernaði.

„This, even as other countries have invested in the most rapid military buildup in all of human history and have not hesitated to use hard power to pursue their own interests.“

Og fyrir þessum ósannindum var klappað.Staðreyndin er sú að ekkert ríki kemst í hálfkvisti við Bandaríkin í hernaðaruppbyggingu á undanförnum áratugum – með um átta hundruð herstöðvar utan Bandaríkjanna – og fer þeim fjölgandi.

Eitt veit ég að Rubio var einlægur. «Við eigum vesturhvelið» sagði nýlega í yfirlýsingu ráðuneytis hans, samanber hér að ofan, um nýlegar ofbeldisaðgerðir í Venesúela að ógleymdum afskiptum af tilraunum brasilískra dómstóla til að koma lögum yfir tilraunir fyrrverandi forseta Brasilíu til valdaráns. Saksóknarar og dómararnir voru sviptir leyfi til að koma til Bandaríkjanna, svipað hlutskipti og dómara í Alþjóðaglæpadómstólnum í Haag sem voguðu sér að vilja lögsækja Netanjahu fyrir hlutdeild í þjóðarmorði á Gasa. Svona menn skilja Rússa sem «eiga» löndin sér nærri í þeim skilningi að aldrei megi þau ógna tilveru Rússlands.
Enginn skilningur er á því að Rússar horfi til þess að þeim kunni að stafa hætta af NATÓ-vopnum sem færð hafa verið upp að landamærum Rússlands, að þau gætu verið þar til að nota þau og gleymum því ekki að í seinni tíð hafa Bandaríkin verið árásargjarnasta ríki heims, með eitt hundrað valdaskipti í erlendum ríkjum á samviskunni frá lokum seinna stríðs. Hlustið á hvað Hillary Clinton, fyrrum utanríkisráðherra BNA og forsetaframbjóðandi, hafði að segja í Munchen um hvað bæri að gera í Úkraínu og er þetta ekki í fyrsta sinn sem kveður við þennan tón úr hennar munni. Farið á mínúntu 8:55 hér á þessu myndbandi.

Enn um ræðuna í Munchen og klappið

Rubio var mikið fagnað í Munchen. Enda var allt þarna í ræðu hans, forfeðurnir evrópsku, Ítalinn sem fann Ameríku, Kolumbus var Ítali að uppruna eins og Rubio, sigurgangan í Ameríku, Davy Crocket og svo Beethoven, Bítlarnir og Rolling Stones. Evrópsku nýlenduveldin fyrr á tíð voru stórkostleg fannst Rubio. Ekki orð um gripdeildir, þjóðarmorð á indíánum í Ameríku, opíumstríð gegn Kína, þrælahald milljóna Afríkumanna og kúgun. En mikið um Kristni. Að vísu ekki mikið um þá Kristni sem kenna má við Jesú Krist en kannski vitringana sem mættu að vöggu hans í fjárhúsinu í Betlehem forðum með gull, reykelsi og myrru, þá vídd í tilveruna sem kapítalisminn skilur svo vel.
Rubio telur að ef við aðeins verðum trú sameiginlegri menningu okkar bíði okkar stórkostleg framtíð á himnum! Varla verður þetta öðru vísi skilið:

„And this is the place where the vaulted ceilings of the Sistine Chapel and the towering spires of the great cathedral in Cologne, they testify not just to the greatness of our past or to a faith in God that inspired these marvels. They foreshadow the wonders that await us in our future.“

Hvað með það besta úr menningu annarra heimshluta Búddisma, Konfúsisma, þá samvinnu- og sameignarhugsun sem víða hefur birst og hvílir á jöfnuði án valdstjórnar, hugmyndir Kúrda sem leggja höfuðáherslu á jafnrétti kynjanna , þá þræði í Islam sem boða samkennd?


Hér er ljóð palestínska ljóðskáldisns Mahmod Darwis sem minnir á sameiginlegar rætur okkar allra:

Cry not, teary eyed:
Ephemeral is the dark-pitch night.
Neither inspection rooms nor chains last:
Nero had perished, but with her eyes
Rome continues the fight!

Vandinn er sá að Neró er hér enn. Vonin um baráttu fyrir mannréttindum lifir líka enn. Hún er hvorki vestræn né austræn. Hún er sammannleg.

Kannski má enn notast við Sameinuðu þjóðirnar að einhverju leyti, sagði Rubio, en sem stofnun hefur SÞ verið getulaus, til dæmis á Gaza þar þurfti Trump að koma til! Og auðvitað verði menn að skilja að framar „global order“ hljóti menn fyrst og síðast að hugsa um sjálfa sig.

Nýlega aflýsti Rubio för til Suður-Afríku þegar hann heyrði að þarlend stjórnvöld vildu ræða um sjálfbærni og jöfnuð á heimsvísu! Fyrir þessum fulltrúa bandarískrar heimsvaldastefnu klöppuðu valdamenn Evrópu móðir af undirgefni en upphafnir af tilhugsun um eigið framlag til heimsmála fyrr og nú.

Slóðir nánast af handahófi valdar slóðir því þær eru margar:
https://www.ogmundur.is/is/leit?q=Rubio

https://www.ogmundur.is/is/greinar/hvernig-skipta-skuli-ransfeng-a-kostnad-thjodar

Á skólabekk hjá Trump. Þetta er kompaníið sem ríkisstjórn Íslands vill gera að leiðtogum lífs síns! 

Ræðu Rubios má lesa í heild sinni á heimasíðu höfundar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.