Sálfræðihernaður hinnar síljúgandi sérgæsku!
—

Rúnar Kristjánsson
23. maí, ’23

Samkvæmt lygafréttum vestrænna fréttastofa sem eru að engu leyti sjálfstæðar og svíkja hiklaust allar skyldur gagnvart almenningi um að segja sannleikann, má stöðugt lesa eftirfarandi fullyrðingar með breytilegri framsetningu:

,,Hver úkraínskur hermaður er að minnsta kosti jafnoki tíu rússneskra hermanna. Úkraínskar konur berjast ekki síður en karlar og standa sig jafnvel. Úkraínumenn eru annaðhvort í sókn eða að undirbúa sókn. Þeir hörfa aldrei. Vesturlönd birgja Úkraínumenn stöðugt upp af vopnum en Rússar eiga engin vopn!

Mannfall Rússa er svo mikið að það er að verða vandamál fyrir þá. Þeir eru nú bara 145 milljónir, greyin. Þó Úkraínumenn séu ekki nema 45 milljónir að venjulegu tali, eru þeir jafngildi 450 milljóna gagnvart Rússum og hljóta því áreiðanlega að sigra þá með hjálp Vesturveldanna !“

Þannig hljóða fréttirnar í síbylju og þess má geta að þegar Finnagaldurinn gekk á hér 1940, voru Finnar, að sögn vestrænna blaða, sagðir í sókn alveg fram að því að þeir gáfust upp. Óskhyggjan getur leitt menn ótrúlega langt frá því sem er í raun og veru að gerast!

Og þó að menn gleypi endalaust við lygum og vilji óðfúsir gera það, en verði svo að standa naktir frammi fyrir öllum rangfærslunum, fylgir slíku aldrei nein iðrun eða lærdómur. Þá er bara bent á að aðrir hafi fallið í sömu gryfjuna og sælt sé sameiginlegt skipbrot. Þannig að menn forherðast bara!

Þeir sannfæra sig um það, að það hafi verið rétt af þeim að fylgja lygunum, ef ekki af hreinhvítum hugsjónaástæðum, sem sjaldnast eru til staðar, þá af grjóthörðum hagsmunaástæðum sem oftast eru til staðar. Mannseðlið er með öðrum orðum sjálfu sér líkt að gjörspilltum vana og breytist seint til einhverra bóta!

Vesturlönd eru einu lönd heimsins sem hafa að lágmarki síðustu 150 árin lifað á arðráni. Þau hafa ekki sjálf skapað verðmæti til að byggja upp góð lífskjör, þau hafa flutt þau verðmæti inn frá öðrum heimshlutum, frá kúguðum nýlendum, og af þeim ránsfeng skapað sér lífsstíl sem markast hefur mest af bruðli og blóðsuguháttum!

Sérgæska er því sálarlegt einkenni Vesturlandabúa, líklega langt umfram aðra heimshluta. Enda hafa ríki Evrópu, einkum þau sem vestar liggja, lifað á því sem fyrr segir, að arðræna aðrar þjóðir í margar kynslóðir. Það virðist liggja ofarlega í germönskum og rómönskum þjóðum að arðræna. Kannski er það arfurinn frá gömlu Rómverjunum sem knýr þar á með yfirgangseðli sínu!

Helst virðast Slavar vera með hreinni skjöld gagnvart arðráni á öðrum þjóðum, en þó hafa þar ýmsir pottar verið brotnir. En nýlenduþjóðir eins og Vestur-Evrópu-þjóðirnar hafa þeir ekki verið og það er söguleg staðreynd. Hinum gífurlegu glæpaverkum nýlenduþjóðanna í Asíu, Afríku og Ameríku verður aldrei klínt á þá þó miklu sé löngum logið!

,,Í fyrri heimsstyrjöldinni spurði Breti nokkur eftir því í blaði frá fyrri árum stríðsins, hvernig stæði á því að enn væri verið að berjast ? Samkvæmt sigurfregnum breskra blaða væru fáir Þjóðverjar eftir uppistandandi. Sumir teldu að þeir væru aðeins tveir!

En Þjóðverjar væru annars í meira lagi undarlegir menn. Einni nafngreindri hersveit þeirra hefði verið gereytt í upphafi stríðsins í Belgíu, nokkrum mánuðum síðar hefði hún verið algjörlega upprætt í Frakklandi, síðan strádrepin austur í Rússlandi, en samt væri enn verið að berjast við hana og það gengi ekkert allt of vel !“

Samkvæmt skýrslum Rússa á þeim tíma höfðu alls 5 milljónir manna verið kvaddar í herinn, en þýsk blöð staðhæfðu á sama tíma að 6 milljónir Rússa væru fallnar eða herteknar og samt var stríðið í fullum gangi. Þetta sýnir hvernig lygarnar eru stundaðar af hálfu upplýsinga-aðilanna og ekki hefur það batnað. Sannleikurinn er alltaf fyrsta fórnarlambið í stríði!

Þó eru lygar vestrænna fréttastofa af gangi mála í Úkraínu og öllum milliríkja-samskiptum vegna þeirra atburða, orðnar svo stórfelldar, að almenningur í allri Vestur-Evrópu er gjörsamlega úti á túni varðandi það sem er að gerast og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Það er engu að treysta og allra síst upplýsinga-aðilunum!

Og þannig hegða sér hinar svokölluðu menntuðu þjóðir þessa heims. Sú menntun sem þær státa af er greinilega ekki mikils virði og vissulega þeim til skammar sem telja sig hafa hana!

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Nýjustu greinar

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Þórarinn Hjartarson

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram …

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.