Raunverulegar ástæður fyrir hinu bandarísk-ísraelska stríði gegn Íran
—

Ísrael réðist á Íran í hreinu árásarstríði. Bandaríkin studdu árásina í formi skipulagningar og njósnaupplýsinga – og Trump nýtti samningaviðræður við Írani til að árásin kæmi þeim að óvörum. Stríðið er sameiginlegt stríð Bandaríkjanna og Ísraels. Það er semsagt ekki þannig að Ísrael dragi Bandaraíkin nauðug til stríðs, eins og geopólitíski greinandinn Ben Norton sýnir fram á hér. 

Nú bíður heimurinn þess á nálum hvort Bandaríkin ætli að hefja beina og fulla stríðsþátttöku með eigin her.

Voldugasta ríki Evrópu hefur að auki bætt sér í árásarblokkina. Þýskalandskanslari Friedrich Mertz lét í ljós 17. júní að Ísrael berjist ekki aðeins fyrir Bandaríkin heldur fyrir “okkur”, fyrir Vestrið allt: 

Þetta er skítverkið sem Ísrael vinnur fyrir okkur öll. Við erum líka fórnarlömb þessara stjórnvalda, þessi klerkastjórn hefur fært heiminum dauða og eyðileggingu.

Öllu skýrar er ekki hægt að segja að þetta sé staðgengilsstríð „okkar“, að Ísrael staðgangi fyrir „okkur“ sem hlýtur að vera Vestrið.

Augljóslega er í þessum átökum nægilegur eldsmatur í gríðarlegt bál, a.m.k. um Miðausturlönd, og mörgum mun þykja ótrúlegt að menn ætli opnum augum að ganga í þann eld.

Því vaknar spurningin: Um hvað er barist? Bara um vopnabúr Írans? Skyldu stríðsmarkmiðin vera fleiri? Þessarar spurningar spyr áðurnefndur greinandi, Ben Norton, og hann gefur svar á meðfylgjandi myndbandi. Það tekur aðeins níu mínutur.  

Hann gefur líka ítarlegra svar á öðru klukkutíma löngu myndbandi. 

Ég held því fram, segir Norton, að markmið stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran séu eftirtalin:

– Viðhalda yfirráðum Bandaríkjanna í Vestur-Asíu (einnig þekkt sem Miðausturlönd).

– Eyða hinum andnýlendusinnaða Andspyrnuöxli og gera þannig mögulega fullkomna nýlenduvæðingu Palestínu.

– Koma í veg fyrir að Íran þrói nokkurn tíma kjarnorkugetu.

– Valdaskipti í Íran. Steypa eða að minnsta kosti veikja sjálfstæða, byltingarstjórn Írans.

– Hræða önnur lönd á svæðinu sem kunna að vilja fjarlægjast Bandaríkin og dollarann (sérstaklega furstadæmin við Persaflóa).

– Viðhalda olíudollarakerfinu og tryggja þannig hnattræna eftirspurn eftir bandaríska dollarnum.

– Grafa undan BRICS og Samvinnustofnun Shanghai, sundra hinum hnattræna suðri og trufla fjölpóla þróun.

– Brjóta upp þríeykið Íran, Rússland og Kína, með það að lokamarkmiði að einangra Peking. Íran er m.a. algjör lykilhlekkur í „silkileiðinni“ nýju, Belti og braut.

Samkvæmt Norton er það raunar svo að tveir síðustu punktarnir eru þeir þungvægustu. Bandaríkin heyja nýtt kalt stríð – gegn Kína (og í því Kalda stríði eru líka blettir „heitra“ stríðsátaka). Það er ekkert leyndarmál, það er núna opinskátt og yfirlýst í Washington, með mikilli áherslu. Skipulagsbreytingar í Evrópu, einkum í Úkraínustríðinu, þjóna líka þessu sama verkefni sem yfirskyggir öll önnur.  

Samkvæmt því eru ástæðurnar margar og víðtækar sem „hanga á spýtunni” í þessu stríði. Þetta eru helstu stríðsmarkmiðin. Heimsvaldastríð eins og það gerist tærast. Aukaverkun er að setja heiminn á kjarnorku-heljarþröm.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.