Ólýsanlegur hryllingur í Palestínu
—

Jón Karl Stefánsson
18. júl, ’25

Þetta eru meðal nýjustu frétta frá Palestínu:

  • Birgðarstöðvum fyrir neyðarmatvæli sem eru undir stjórn meintra hjálparsamtaka frá Bandaríkjunum og Ísrael, hin svokölluðu „Gaza Humanitarian Foundation“, hefur verið lýst sem dauðagildrum, þar sem „hjálparstarfsmenn“ hafa gert það að leik að skjóta að, eða á, sveltandi Palestínumenn sem leita sér aðstoðar. Að sögn heilbrigðisyfirvalda hafa um 600 manns verið drepnir á þennan hátt við þessar birgðarstöðvar, og meira en 4200 slasast. Stór hluti hinna látnu og særðu eru börn.
  • Þetta er langt frá því að vera eina dæmið um grimmd og dauðaþorsta meintra hjálparstarfsmanna frá Bandaríkjunum í Palestínu þessar stundir, en fjöldi fólks hefur einnig misst lífið við birgðarstöðvar fyrir neyðargögn í Khan Younis, eftir að bandarískir málaliðar kæfðu það með táragasi er það beið eftir að fá næringu.
  • Læknar í Gaza hafa greint frá því að fjöldi ungra drengja hafi undanfarið þurft læknisaðhlynningu eftir að ísraelskir hermenn skutu þá vísvitandi í kynfærin.
  • Ísraelskir hermenn hafa gert það að leik að keyra yfir palestínska borgara, meðal annars barnshafandi konur, á skriðdrekum. Greint var frá þessu fyrir um ári síðan, en fréttir af þessu hafa verið lengi að berast.
  • Heimildarmynd frá Al Jazeera, þar sem sérstaklega eru skoðuð tilvik í smábænum Khirbet Khuza‘a, hefur tekið saman myndskeið frá ísraelskum hermönnum. Þar segja hermenn stoltir frá því, og sýna með myndböndum, hvernig bærinn var vísvitandi jafnaður algerlega við jörðu. Öll heimili voru kerfisbundið eyðilögð og íbúarnir annað hvort drepnir eða sendir á flótta. Meðal undarlegra vana hermannanna var að halda eftir nærfötum kvennanna og dansa í þeim.
  • Í síðustu viku sprengdi ísraelski herinn fólk sem beið þess að fá neyðargögn frá birgðarstöð sem átti að vera sérstaklega fyrir börn. Að minnsta kosti 10 börn og 6 fullorðnir létust í árásinni.

Þetta eru bara nokkrar af þúsundum saga um pervertíska grimmd og ofbeldisorgíu sem Síonistastjórnin í Ísrael stendur fyrir gagnvart Palestínumönnum. Líkin eftir þessa útrýmingarherferð hafa þegar náð 400 þúsund. Þetta er komið handan þess að kallast þjóðernishreinsun, þetta er útrýmingarherferð, sérstaklega ef hugsað er til þess að þetta fólk á í engin hús að venda.

Þetta eru ekki „átök“ þar sem hægt er að sjá hlutina frá sjónarhóli tveggja stríðandi fylkinga. Það er ekkert meira um þetta að segja. Allt tal um að eiga rétt á að „verja sig“ á einfaldlega ekki við þegar um er að ræða börn og fólk sem er í sannleika sagt að svelta til bana, fyrir framan heimsbyggðina.

Þess vegna er það einfaldlega ófyrirgefanlegt að tekið sé á móti Ursulu von der Leyen á þann hátt sem gert er. Hún er beinlínis meðsek; þátttakandi með samþykki, með samstarfi við þessa stjórn í Ísrael. ESB er stærsti viðskiptavinur Ísraels en hafnar öllum efnahagsþrýstingi. Hún, eins og ESB, er svokallaður „enabler“. Ef forsætis- og utanríkisráðherra segja ekkert, gera ekkert og minnast ekkert á þetta við hina fínu frú úr Brussel, þá verður aldrei, aldrei meir að marka þær.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.