NATO ræðst á Rússland – Bandaríkjunum ýtt út úr Miðausturlöndum

Ritstjórn
, 23. maí, 2026

Glenn Diesen ræðir hér við hinn ágæta bandaríska ofursta Douglas Macgregor. Um stríðið í Íran og um stríð NATO gegn Rússlandi. Hann sér öll ummerki um hraða stigmögnun stríðsátaka á báðum þessum tveimur stíðsvöllum í baráttu Washington og Vestursins fyrir einpóla hnattveldi sínu. Hvað sem hún kostar. Ritstjórn  

Ófriðarskýin eru svört. Macgregor ofursti álítur að friðarviðræður Bandaríkjanna við Íran séu hreint blekkingarspil að vanda og Bandaríkin undirbúi nú allsherjarstríð við Íran – eftir að hafa tapað 40 daga stríðinu. Eftir sigurinn stjórnar Íran Hormuzsundi sem Bandaríkin ætla ekki að sætta sig við.

Nú fljúga langdræg flugskeyti frá Eystrasaltslöndum og/eða gegnum Eystrasaltslönd djúpt inn í Rússland. Þeim er í reynd stjórnað frá Bandaríkjunum, t.d. koma staðsetningaupplýsingar um skotmörk frá Pentagon. Í Rússlandi eru bæði stjórnvöld og almenningur að missa þolinmæðina. Þar álíta æ fleiri að Rússland verði að fara að greiða þyngri högg, og greiða þau beint inn á NATO-svæðið.

Viðtalið birtist á podcasti Glenn Diesen 21. maí