Lifi skrifræðið: ESB kitlar nýju stjórnunarstéttina
—

Jón Karl Stefánsson
11. mar, ’26

Í klassískri greiningu sinni á áróðri í samfélagi Vesturlanda lýsti franski sálfræðingurinn Jacques Ellul því  meðal annars hvernig hinar svokölluðu stjórnunar- og skrifræðisstéttir í samfélaginu væru þeir hópar sem væru í raun mest ginnkeyptir fyrir áróðri (sjá umfjöllun um verk Elluls hér og hér). Hann lýsti því hvernig búrókratar störfuðu innan umfangsmikilla upplýsingakerfa, sem færu fram í gegnum skýrslur, upplýsingafundi, tölfræðigögn, greiningar sérfræðinga og samskiptahefða innan kerfisins. Vegna eðlis starfsins eru þeir úr tengslum við raunveruleikann „á gólfinu“, en reiða sig þess í stað nærri eingöngu á upplýsingar úr þessu upplýsingakerfi. Vegna þessa eru þessi kerfi einmitt fullkomin sem boðleið fyrir innspýtingu á sérhönnðum skilaboðum frá sérfræðingum í fortölulistinni; almannatengslasérfræðingum og öðru áróðursfólki.

Annað sem gerir þessar stéttir svo auðkeyptar fyrir áróðri tengist svo félagsmótun. Búrókratastéttin er gjarnan meira menntuð en gengur og gerist, en þetta getur leitt til tvenns sem eykur enn á áhrifamátt fortölunnar fyrir einmitt þessa stétt. Í fyrsta lagi neyta þessir hópar meira magns af pólitískum upplýsingum, fá meira af slíkum upplýsingum, og hafa auk þess innbyrt túlkunarkerfi sem, samkvæmt Ellul, skapar möguleika á áróðurskerfi sem hagsmunaöfl geta nýtt sér. Hitt sem hærra menntunarstig eykur hættuna á eru „þriðju-persónu áhrifin“ svokölluðu. Þetta er vel-rannsökuð tilhneiging einstaklinganna til að telja að áróður virki á aðra, en ekki á sig. Þessi áhrif koma sterkast fran hjá þeim sem hafa verið lengur í menntastofnunum (sjá t.d. hér og hér). Einstaklingar með háa menntun og í stjórnunarstöðum hafa tilhneigingu til að telja sig sjálfa betur í stakk búna til að sjá í gegnum fortöluboð. En því er öfugt farið. Vegna þessarar trúar eru þau ekki einungis meira ginnkeypt fyrir áróðri; þau telja alþýðuna ekki í stakk búna til að taka ákvarðanir fyrir sjálfa sig.

Aðalmálið er svo það að skriffinnskustéttin er í brennidepli þeirra hagsmunaafla sem eru nógu öflug til að hafa tök á kerfisbundnum áróðursherferðum; sem eru dýr og flókin verkefni sem er aðeins á færi sérfræðinga. Það er í gegnum búrókratana sem hægt er að fá í gegn regluverk sem hentar þessum öflugu aðilum. Það skiptir minna máli hvað við hin, alþýðan, höldum um einstaka mál. Aðilar sem verma sæti skriffinnskunar hafa raunveruleg tök á því að semja þessar reglur.

Varla er hægt að hugsa sér fyrirbæri þar sem spilað er á þessa tilhneigingu skrifræðisstéttarinnar til að taka á móti- og verða fyrir áhrifum af vandlega smíðuðum fortöluboðum en Evrópusambandið.

Þegar öllu er á botninn hvolft þá er Evrópusambandið í eðli sínu einfaldlega enn eitt lag af skriffinnsku ofan á þau sem fyrir eru. Við höfum færst frá bænda- og samvinnusamfélagi, þar sem fjölskyldur, einstaklingar og íbúar þorpa gerðu einfaldlega það sem þurfti að gera, án nokkurrar sérstakrar yfirstjórnar, yfir í minni stjórnkerfi með nokkrum starfsmönnum í pappírsvinnu yfir í síbólgnandi búrókrasíu ríkis og stærri sveitarfélaga. Með hverju lagi af stjórnsýslu minnka áhrif einstaklingsins á það hvaða ákvarðanir eru teknar í samfélaginu. Um þetta sér þessi sérstaka stétt búrókrata. Skriffinnskubatteríið byggir á reglum, hagkvæmni, verklagsferlum og mælingum. Hverjum sem er innan kerfisins má skipta út. Því stærri og flóknari sem þessi skriffinnskukerfi eru, þeim mun minni stjórn hafa manneskjurnar yfir því. Skriffinnskan fer að lifa sínu eigin lífi. Það hefur tilhneigingu til að bólgna út. Ef upp koma umkvörtunarefni er svar kerfisins að stækka; bæta við nýjum starfshóp til að fara yfir kvörtunina; setja af stað upplýsingahernað með sérvöldu starfsfólki; fyrst undir yfirskyni að hin nýju ráð, starfshópar og nefndir séu til bráðabirgða, en í raun eru þau komin til að vera. Kerfið stækkar, réttlætir tilvist sína, og eyðir út röddum einstaklinganna.

Nógu slæmt er ástandið í ríkinu og stærri sveitarfélögum. Notendur og venjulegt starfsfólk geta ekki haft nein áhrif á stefnumótun í raun. Einstaklingarnir sem sjá um það, fá hvísl í eyra frá sterkum hagsmunaöflum.

En með þessu enn eina, enn flóknara og umfangsmeira lagi, sem Evrópusambandið er verður fjarlægðin frá einstaklingnum og þeirra ákvarðana sem varða það regluverk sem þeir búa við stærra og víðara. Við fylgjum reglum sem settar eru af atvinnubúrókrötum, engin undanbrögð, sama hversu illa það hentar nærsamfélaginu.

Þegar grannt er gáð sést hversu augljóst það er hvaða stétt er helst höfðað til til að lokka okkur í þetta samband. Við heyrum hvað helst um að við komumst með þessu í evrópska styrkjarkerfið, sameiginlegan markað og inngöngu í menntastofnanir. Tilhugsunin fyrir suma að komast á ráðstefnurnar, fá að stinga saman nefjum með þessum fínu búrókrötum frá menningarborgunum. Þetta er freistandi fyrir nýju stjórnunarstéttina okkar.

Við borgum fyrir alla þessa skriffinnsku, hverja útbólgnun, hvert nýtt ráð. Þau skriffinnskukerfi sem þegar eru til munu ekki hverfa. Við höldum áfram að borga fyrir þau. Við fáum einfaldlega nýjan reikning.

Hin sjálfumglaða skriffinnskustétt mun halda áfram að halda okkur frá ákvörðunartökunni. Okkar eigið stjórnmálafólk mun ekki láta sitt eftir liggja; það höfum við þegar séð. Forsætisráðherrann okkar hefur þegar tjáð okkur að við þurfum ekki að vita allt um hvernig kaupin gerast á eyrinni. „LÁTIÐ OKKUR UM ÞAГ.

Þessi nýja kynslóð stjórnenda á Íslandi er eins og klæðskerasaumuð fyrir búrókratastéttina í Brussel, og þau hagsmunaöfl sem hafa mest áhrif á hana. Með minni tengsl en nokkurn tímann áður við alþýðuna og hversdagslíf hennar, og sjálfsöruggari í krafti langskólagöngu en jafnvel íhaldssinnar forðum daga, mun þessi nýja kynslóð atvinnuembættismanna- og búrókrata tryggja að við munum ekki koma nálægt neinum ákvörðunartökum, að öðru leyti en því að borga fyrir þær.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Nýjustu greinar

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.