Leynilögreglan og lygar meginstraumsmiðla
—

27. mar, ’26

Í dag birtist fjölmiðlum eftirfarandi tilkynning frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu:

„Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og mbl.is um rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegu líkamásári í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vil embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinnir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Rannsókn málsins er annars í fullum gangi og er í algjörum forgangí hjá embættinu. Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en tveir sitja nú í gæsluvarðhaldsi í þágu rannsóknarinnar“.

Það er auðvitað ekkert nýtt að Vestrænir meginstraumsfjölmiðlar flytji falskar fréttir er kemur að ríkjum sem ógna eða ögra Bandarísku heimsvaldastefnunni og Síónismanum. Vel hefur verið rakið hvernig slíkar áróðursgreinar eru sóttar til „heimilda“ á vegum Vestrænna leynilögregludeilda á borð við CIA/NED, MI5, MI6, og Mossad; ýmist í beinu samráði við umræddar stofnanir eða óbeint í gegnum netmiðla hugveitna, sem fjármagnaðar eru af yfirvöldum, sem vísa nær einungis í ónafngreind meint vitni.

Íslenskir meginstraumsmiðlar eru alls ekki saklausir hvað varðar flutning áróðurs og falsfrétta er varða þriðja heiminn, en yfirleitt hef ég talið það vera vegna fáfræði og þekkingarleysis blaðamanna og þeirrar íslensku fjölmiðlahefðar að apa gagnrýnislaust upp eftir Bandarískum og Breskum áróðursmiðlum án sjálfstæðrar heimildavinnu frekar en að blaðamenn séu vísvitandi að fara með staðreyndarvillur. Eða hvað?

Heimildamaður Morgunblaðsins og íslensk leynilöggun

Það vita kannski ekki allir að hérlendis starfar svokölluð greiningardeild ríkislögreglustjórans sem sinnir hlutverki íslenskrar leynilögreglu í samvinnu við lygamyllur og leynistofnanir erlendis til, samkvæmt Gunnari Herði Garðarssyni, þáverandi samskiptastjóra ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi þann 21. júní 2023. Þess má kannski geta að þessi deild fer einnig með almenn sakamál, þ.m.t. ofbeldisbrotið sem hér um ræðir.

Þá spyr ég nú hvort falsgrein Morgunblaðsins hafi vísvitandi verið spunnin upp í þeim tilgangi að reyna að framleiða samþykki íslensks almennings fyrir þjóðarmorði Ísraels með því að notfæra sér þjáningu fólks og nústandandi flóttamannakrísu. Þetta er jú sama blað og birtir ógagnrýnin viðtöl við landráðsfólk frá fórnarlambaríkjum heimsvaldastefnunnar sem búsett er hérlendis; aðila sem lofa Bandarísku harðstjórnina og Ísraelska Ríkið, kallandi eftir hryðjuverkaárásum gegn eigin landi og þjóð, en það er annað mál.

Samkvæmt upprunalegu grein mbl.is komu upplýsingar um meint tengsl brotamanna við Palestínsku Hamas-þjóðfrelsissamtökin frá „heimildarmönnum“ Morgunblaðsins innan Lögreglunnar, en Lögreglan neitar nú fyrir.

Þá er a.m.k. eitt á hreinu og eftir standa þrír möguleikar:

Einhver laug því vísvitandi að íslensku þjóðinni um að Palestínskir Hamas-þjóðfrelsisliðar (sem málaðir eru sem hryðjuverkamenn af Morgunblaðinu) hefðu framið hér gróft ofbeldisbrot. Annað hvort er Morgunblaðið vísvitandi að ljúga að íslensku þjóðinni eða þá eru heimildarmenn Lögreglunnar að ljúga, eða bæði.

Ath. að það fyrir Palestínumenn að halda uppi fánum og táknum eigin þjóðfrelsishreyfinga er hvorki óeðlilegt né rangt, né þarf það að merkja formleg tengsl viðkomenda við þær hreyfingar. Að hafa uppi slíkar fullyrðingar án raunverulegra sannana er það eina sem er siðlaust hér.

Greinin er sú mest lesna í dag á vef Morgunblaðsins og rataði hún jafnvel upp í pontu Alþingis. Enga leiðréttingu er að sjá á forsíðu mbl.is. Þvert á móti birtast þónokkrar greinar þar sem kynt er undir þessa lygaþvælu.

Hverjum getum við treyst?

Með þessar upplýsingar í huga þá verðum við að spyrja okkur þessara spurninga: Er íslenskum meginstraumsmiðlum yfir höfuð treystandi? Er íslensku Lögreglunni treystandi? Og ef hvorugum er treystandi, hverjum getum við þá eiginlega treyst til að veita okkur sannar og réttar upplýsingar er snerta þriðjaheimsríki sem veita heimsvaldastefnunni og Síónismanum mótbyr?

Ég fylgi þeirri almennu reglu á þessum tímapunkti að gera ráð fyrir því að greinar Vestrænna meginstraumsmiðla er snerta þennan málaflokk séu uppspuni nema þær vísi í heimildir sem hægt er að staðfesta með fullri vissu.

Svo miklar eru lygarnar og upplýsingaóreiðan að Íslendingar eru farnir að hrjást af ranghugmyndum um hvað er að gerast í eigin landi.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.