Icelandair-kjaradeilan og stéttabaráttan eftir Covid
—

Þórarinn Hjartarson
15. maí, ’20



Icelandair Group og Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafa gert með sér nýjan kjarasamning til fimm ára (15/5). Í tilkynningu frá Icelandair segir að samningurinn sé „í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með um að auka vinnuframlag og sveigjanleika verulega.“ Samningurinn tryggir m.a. verulega aukið vinnuframlag flugmanna. Bogi Nils Bogason forstjóri orðar það svo: „Þetta er stórt skref til að tryggja samkeppnishæfni félagsins og veigamikill þáttur í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.“ Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, kallar þetta „tímamótasamning“ og bætir við: „Flugmenn eru stoltir af því að hafa náð markmiðunum sem lagt var upp með sem eykur enn á samkeppnishæfni Icelandair.“ https://theworldnews.net/is-news/flugmenn-og-icelandair-gerdu-timamotasamning-i-nott

Björgunaraðgerðir fyrir Icelandair-group hafa verið fyrsta frétt fjölmiðla um skeið. Fyrirtækið rambar á barmi gjaldþrots, en stefnir á að safna 29 milljarða hlutafé fyrir hluthafafund 22. maí. Biðlar m.a. til lífeyrissjóða og enn frekar til ríkisins. Ennfremur: Bogi Nils forstjóri hefur sagt að unnið sé dag og nótt að því að bjarga fyrirtækinu en „að helsta fyrirstaðan fyrir að það takist erum við sjálf, starfsfólkið sem starfar hjá fyrirtækinu.“ Ef bjarga eigi fyrirtækinu verði starfsfólk þess að taka á sig kjaraskerðingar. Stjórn Icelandair hefur gert Flugfreyjufélagi Íslands tilboð sem félagið metur sem allt að 40 prósenta kjaraskerðingu. Samninganefnd félagsins hafnaði tilboðinu en þá sendi Bogi Nils tilboðið bara beint til einstakra félagsmanna!

Þann 11. maí sagði í frétt Morgunblaðsins: „Til að forða Icelandair frá gjaldþroti verða flugfreyjur og flugmenn félagsins að taka á sig launalækkun á bilinu 50-60%. Þá verður nýr kjarasamningur að gilda til fimm ára og vera auk þess uppsegjanlegur að hálfu Icelandair að samningstíma loknum. Þetta segir ráðgjafi eins af stóru hluthöfum Icelandair í Morgunblaðinu í dag.“ https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2020/05/11/stadan_ordin_grafalvarleg/


Hamfarakapítalismi og hnattvæðing

Stórauðvaldið lítur á Covid-kreppuna sem tækifæri til mikilla árása gegn réttindum launafólks. Sú afstaða er skýr í orðum og aðferðum hins prúðmannlega Boga Nils Bogasonar. Aðferðir Icelandair eru í góðum samhljómi við þá „sjokkmeðferð“ sem Naomi Klein hefur lýst best í bókum sínum um aðferðir stórkapítalsins á heimsvísu, einkum við innleiðingu nýfrjálshyggju/markaðshyggju: „Ég nota hugtakið „sjokkkenningin“ til að lýsa hinum ruddalegu aðferðum að nýta sér ráðaleysi almennings eftir sameiginlegt áfall – styrjöld, valdarán, hryðjuverkaárás, markaðshrun eða náttúruhamfarir – til að knýja í gegn róttækar aðgerðir í þágu stórfyrirtækja, oft kallaðar „sjokkmeðferð“ [shock therapy]… Þessi hernaðaraðferð hefur verið þegjandi fylginautur innleiðingar á nýfrjálshyggju í yfir 40 ár.“ https://www.theguardian.com/us-news/2017/jul/06/naomi-klein-how-power-profits-from-disaster

Talskonur flugfreyja benda á að kjaraskerðingarstefna Icelandair sé ekki alveg ný: „þeir eru búnir að bjóða nánast sömu samninga síðan haustið 2018 og það er ástæðan fyrir að ekki hefur verið samið.“ En með tilkomu Covid-19 getur Icelandair sett margfalt afl á bak við kjaraskerðingakröfur sínar. Nákvæmlega eins og Naomi Klein lýsir er það til að „knýja í gegn róttækar aðgerðir í þágu stórfyrirtækja“. Markmiðið er að sjokkera fólk til undirgefni, Covid-19 er verkfærið.

Icelandair er auðhringur sem keppir á hnattvæddum markaði. Bogi Nils forstjóri hamrar á því að lækka þurfi „einingarkostnað“, einkum að launakostnaður verði „samkeppnisfær“ við „alþjóðleg flugfélög“. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR spyr: „Samkeppni um hvað? Verstu lífsgæðin fyrir mestu vinnuna?“ Einmitt! Hnattvæðing undanfarinna þriggja áratuga er algjörlega á forsendum auðmagnsins, reglur markaðshyggjunnar stjórna fjármagnsumferðinni. Hnattvæðingin felur í sér frjálst flæði fjármagns og fjárfestinga milli landa. Í því umhverfi fá atvinnurekendur, fyrst og fremst stórfyrirtækin, óskastöðu gagnvart samtökum launafólks. Þau hóta því stöðugt að flytja starfsemi sína til annars lands þar sem skilyrði eru hagfelldari, nema verkalýðssamtök gefi eftir varðandi kaup og kjör, og vísa til „samkeppnishæfninnar“. Andspænis stórfyrirtækjunum standa samtök launafólks í vestri og austri – sem berjast við atvinnuleysi og reyna að toga starfsemina til sín eða halda henni. Við þau skilyrði þurfa verkalýðshreyfingar ólíkra svæða undirbjóða hver aðra. Í Evrópu er samtökum launafólks í Þýskalandi eða Bretlandi stillt upp gegn verkalýsðhreyfingu í Póllandi eða Litháen, enda gilda hnattvæðingarreglur í ESB. Útvistun framleiðslu til lágkostnaðarlanda í Asíu býður auðhringunum upp á ódýrt og réttindasnautt vinnuafl þar svo verkalýður Vestursins má þá bjóða niður laun sín til að reyna að vera samkeppnisfær. Auðhringarnir stilla ennfremur stjórnvöldum einstakra ríkja upp við vegg og spyrja hver bjóði besta þjónustu, lægst aðstöðugjöld, besta skattaumhverfi o.s.frv. Öll þessi einkenni hnattvæðingar birtast skýrt í Icelandair-deilunni, og öll einkennin skerpast við Covid-kreppu.

Ísland þarf flugfélög og flugrekstur. Það tilheyrir innviðum samfélagsins. En fyrsta spurningin er: Á íslenska ríkið að moka mörgum milljörðum í rekstur Icelandair á óbreyttum grundvelli, án þess að ráða neinu um rekstrarstefnuna og án þess að breyta því láni í eign? Þessari spurningu fylgja síðan aðrar: Þarf Ísland að keppa um Norður-Atlantshafsmarkaðinn? Þarf yfir höfuð að reka innviði – eins og flug – á markaðsgrundvelli? Gera sig gildandi á alþjóðlegum áhættumarkaði? Eins og Icelandair, eða WOW-air?


Stéttasamvinna og baráttustefna

Icelandair hefur í hótunum við flugstéttirnar. Auðvaldið heldur alltaf á loft hugmyndinni um að við séum „öll á sama báti“ og í kreppu og fallandi arðsemi þurfi launafólka að skerða launin sín. Ekki er þó sjálfsagt að gangast inn á slíkt. Ef við tökum kreppuna á 4. áratug 20. aldar sem dæmi þá reyndi auðvaldið að nota hana til að skerða laun en það tókst bara að takmörkuðu leyti. Vissulega versnuðu kjör í takt við atvinnuleysi. Samt tókst að verja kauptaxtana. Í nýlegri sögu ASÍ má lesa um fjórða áratuginn:

„Sem fyrr tókust tilraunir til að lækka kaup hjá Dagsbrúnarmönnum lítt eða ekki. Dagsbrún var sterkasta stéttarfélag landsins og beitti sér af mikilli hörku gegn öllum tilraunum í þá átt, eins og svonefndur Gúttóslagur frá 1932 er m.a. til vitnis um. Þegar miðað er við kaup Dagsbrúnarmanna má því segja að tekist hafi furðanlega að koma í veg fyrir kauplækkanir. Reyndar jókst kaupmáttur kauptaxta verulega á þessu tímabili vegna verðhjöðnunar.“ (Sumarliði R. Ísleifsson, Í samtök. Saga ASÍ, bls 138)

Upp úr 1930 var verkalýðshreyfingin tiltölulega öflug og forðaði a.m.k. að nokkru leyti því að auðvaldinu tækist að velta kreppunni yfir á verkafólk. Og baráttustefnan var líka forsenda fyrir því að verkalýðshreyfingin var fær um að sækja hart fram eftir að kreppunni lauk. En frá því um 1970 tók íslensk verkalýðshreyfing upp stéttasamvinnustefnu. Vorið 1970 var síðasta meiriháttar verkfall á vegum ASÍ, eftir það urðu það viðtekin sannindi í samfélaginu að mesta óhamingja væru verkföll, en æðsta dyggð væri „sveignaleiki“ í samningum. Það er sorgarsaga sem við þekkjum allt of vel.

Það var snemma ljóst í Icelandair-deilunni að sum stéttarfélög flugstéttanna fylgja boðorðum stéttasamvinnustefnu, láta undan kröfum Icelandair um grófar skerðingar, jafnvel til langs tíma. Það má öruglrega halda því fram að þessi félög hafi tekið sjokkmeðferðinni vel! Flugfreyjur hafa hins vegar ekki beygt sig undir okið, hafa hafnað tilboðum Icelandair og standa þétt saman. Með hverjum nýjum sveigjanleika- samningi annarra flugstétta við Icelandair eykst pressan á flugfreyjur. Og ef svo færi að sjokkmeðferðin dygði til að brjóta aftur flugfreyjur mun auðvaldið sannarlega ganga á lagið.

Það vekur von í þessum nýja veruleik að stéttarsamvinnustefnan hefur ekki sömu tök á verkalýðshreyfingunni og áður. Efling- stéttarfélag náði fram meginkröfum sínum í samningi við Samband íslenskra sveitarfélaga á mæðradag. Efling er vissulega ekki í jafn þröngri stöðu og flugstéttirnar en var þó óspart lamin með Covid-písknum. Að samningnum loknum sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður: „Í enn eitt skiptið hafa þau [Eflingarfólk] sannað að réttlát og staðföst barátta láglaunafólks í gegnum sitt stéttarfélag er ekki bara réttur okkar heldur skilar hún líka raunverulegum árangi.“ https://efling.is/2020/05/11/efling-fagnar-langthradum-sigri-i-kjarabarattu-vid-sveitarfelogin/

Samstaðan er fjármagn hins fátæka. Akkúrat núna er lífsspursmál í harðnandi aðstæðum stéttabaráttunnar að öll stéttvís launþegasamtök stilli sér upp við bakið á Flugfreyjufélagi Íslands. Ég hef því miður ekki séð neinar ályktanir í þá veru.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.