Hvernig væri nú að spyrja unga fólkið?: Um dagleg mannréttindabrot okkar á börnum og unglingum
—

Jón Karl Stefánsson
5. sep, ’24

Ungmennum á Íslandi líður verr og verr með hverju ári. Nú beinist athyglin, skiljanlega, öll að skelfilegum atburðum sem áttu sér stað í miðborg höfuðborgarinnar, en það er nauðsynlegt að skoða hvernig ástand ungmenni búa við almennt. Vanlíðan ungmenna á Íslandi er ekki einungis að brjótast út í æ fleiri hnífaárásum og öðrum ofbeldismálum, heldur einnig í ógnvekjandi aukningu á tíðni þunglyndis, kvíða og sjálfsmorðhugsana. Margar ástæður eru fyrir þessu. Við vitum að félagshæfni ungmenna hefur hrunið eftir lokanirnar 2020 og 2021, erfiðara er fyrir ungmenni að fá sér vinnu og verða þannig sterkari hluti af samfélaginu, og dýrara og erfiðara er fyrir þau að stunda tómstundir sínar.

En málið ristir dýpra. Viðbrögðin við hinum skelfilegu atburðum opinbera það sem gæti verið stærsta ástæðan fyrir því hvernig komið er fyrir framtíð Íslands. Þau eru nærri því öll í formi aukinnar valdbeitingar, ofan frá og niður ákvarðanaferlis, meira eftirlits og skertu frelsi ungmenna. Nánast ekkert heyrist um áform um mjög einfaldan hlut; að spyrja unglingana sjálfa hvað er að, hvað er hægt að gera og hvað við getum gert til að gera líf þeirra betra. Það væri algjört lágmark af okkar hálfu.

Þegar vel er að gáð, þá höfum við sem samfélag algjörlega virt að vettugi nokkur af mikilvægustu réttindum manneskjunnar þegar kemur að börnum og unglingum. Þetta eru réttindi til sjálfræðis, réttindin til að vera með í ráðum þegar kemur að ákvörðunartöku um þeirra málefni, áhersla á valdeflingu í stað valdbeitingar gegn þeim og svo áhersla á að auka sjálfstraust. Þá dugar ekki að kalla unglinga „aumingja“.

Vanlíðan ungmenna er óhugnanleg

Börn og unglingar á Íslandi eru í hrikalegri krísu. Héðinn Unnsteinsson benti á að árið 2014 greindu 81% ungmenna frá því að þeim liði vel eða mjög vel í könnun Geðhjálpar. Árið 2022 hafði þessi tala hrunið niður í 57% (MBL, 2022). Þessu græða lyfjafyrirtækin á. Í tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027 kom fram að „Samkvæmt stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar frá 2022 óx notkun þunglyndislyfja um 56,3% á milli áranna 2010 og 2020.“ (Heimild, Alþingi). Aukningin er gríðarleg hjá ungmennum, en árið 2007 notuðu 15,7 af hverjum þúsund íbúum á aldrinum 6-17 ára þunglyndislyf samkvæmt mælaborði landlæknis. Árið 2023 var sú tala komin upp í 53,9.

Ungmennunum okkar líður illa; mjög illa. Í stórri rannsókn á geðheilsu Íslendinga sem kom út árið 2022 kom í ljós að yngsti aldurshópurinn sem skoðaður var, 18-29 ára, var með verstu geðheilsuna. Helstu áhættuþættirnir voru kyn og félagsleg staða. Ungir karlmenn sem koma úr fátækum fjölskyldum er sá hópur sem líður allra verst, hefur hæstu tíðni þunglyndis og kvíða í landinu okkar (Sigurðardóttir o.fl., 2022). Þetta er í samræmi við erlendar rannsóknir. Í heimildaritgerð Birtu Rósar Þrastardóttur (2023) kemur fram að „Áhættuþættir sjálfsvígs geta tengst kyni, aldri, félagslegum- eða persónulegum þáttum. Áhættuþáttur getur verið að vera ungur karlmaður en sjálfsvíg ungra karlmanna um allan heim hafa aukist undanfarinn áratug“. Rannsókn sem tekin var árið 2021 af líðan ungmenna og birt í fagtímarininu the Lancet Psychiatry sýndi að á einungis einu ári hafði líðan ungmenna versnað mikið og tíðni þunglyndis aukist umtalsvert, sérstaklega meðal stúlkna (Ingibjörg Eva Þórisdóttir o.fl., 2021). Það er greinilegt að það hafði alvarleg áhrif að æskan okkar var meira og minna lokuð inni árin 2020 og 2021 til að vekja upp öryggiskennd hjá eldra fólkinu og missti þar af möguleikanum til að mynda dýrmæt félagsleg tengsl.

Líðan ungmenna hefur farið úr öskunni í eldinn og ástandið hefur einungis versnað. Þetta er að koma fram í námsárangri barna og unglinga, og svo hræðilegum ofbeldismálum sem eru að koma upp. Nú eru að koma upp mál sem varla þekktust á árum áður. Vopn eru nú notuð í átökum milli unglinga og hnífaárásir verða æ algengari. Viðbrögð þeirra sem fara með ráða- og áhrifastöður við þessari gríðarlegu vanlíðan opinbera nú eina af helstu ástæðunum fyrir því hvernig komið er. En kannski er stærsta krísan sem börn og unglingar standa frammi fyrir sú að við sem samfélag virðumst hafa tekið höndum saman um að virða að vettugi, nánast algerlega, mörg af allra mikilvægustu réttindum manneskjunnar þegar kemur að börnum og unglingum. Í stað þess kemur forræðishyggjan, hrein og ómenguð, og svo valdbeiting.

Fjögur réttindi manneskjunnar standa hér upp úr. Hér verða þau skilgreind, eftir bestu getu höfundar, og við skulum spyrja okkur sjálf: að hve miklu leiti njóta börn og unglingar á Íslandi þessara sjálfsögðu réttinda?

Sjálfsögð réttindi virt að vettugi

Sjálfræði, eða sjálfsákvörðunarréttur, hefur verið álitið grundvallarmannréttindi allt frá því að Genfaryfirlýsingin tók gildi árið 1949. Það hefur verið skilgreint sem „lærð hæfni sem gerir einstaklingum kleift að taka ákvarðanir um aðgerðir sem þeir telja mikilvægar“ (Bergamin o.fl., 2022). Þetta felur í sér að fólk taki upplýstar ákvarðanir um eigið líf, heilsu og nærumhverfi. Þegar sjálfræði er virt eru einstaklingar ekki einungis þiggjendur í samfélaginu heldur virkir þátttakendur í þróun þess (Elwyn o.fl., 2012). Þetta er ekki einungis réttur, heldur nauðsyn fyrir andlega heilsu og velferð einstaklingsins. Fólk sem hefur meira vald yfir daglegum athöfnum sínum og hvernig samfélag þeirra er skipulagt, upplifir betri lífsgæði. Upplifaður skortur á sjálfræði hefur verið tengdur við þunglyndi og tilfinningu um að vera í gildru (Rooke og Birchwood, 1998) sem og félagslega útilokun (Schomerus o.fl., 2019). Þetta hefur skaðleg áhrif á sjálfstraust, sem vísar til trúar einstaklings á getu sinni til að takast á við daglegt líf og taka þátt í pólitískum aðgerðum sem myndu styrkja vald hans og áhrif á eigin efnislega stöðu og innan félagslegra stofnana (Castelein o.fl., 2015).

Önnur grundvallarmannréttindi hafa verið nefnt gagnkvæmi. Í samhengi heilsu vísar þetta til gagnkvæmra samskipta þar sem bæði sjúklingar og fagfólk leggja sitt af mörkum við ákvarðanatökuferlið, sem er mikilvægt til að byggja upp meðferðarsamband sem grundvallast á trausti og virðingu, sem leiðir til valdeflingar og meiri bata (Beyene o.fl., 2019). Sjúklingar sem finnst að hlustað sé á þá og að þeir séu metnir að verðleikum eru líklegri til að fylgja meðferðaráætlunum og upplifa betri heilsu (Elwyn o.fl., 2012). Sama á við um aðrar stofnanir, ekki síst skóla. Nemendur sem upplifa virðingu, að þeir hafi opin samskipti við stofnun sína og hafa raunveruleg áhrif á hvernig skólinn er skipulagður, upplifa sig frekar sem metna að verðleikum og að þeim sé treyst. Þetta þurfa ungmenni sárlega.

Þvingun hefur þveröfug áhrif. Rannsóknir hafa ítrekað leitt í ljós að upplifuð þvingun og brot á sjálfsákvörðunarréttinum leiðir til þunglyndis og tilfinningar fyrir því að vera fastur, lokaður inni (Rooke and Birchwood, 1998), það leiðir til vanlíðanar og óbeitar  á þeirri stofnun sem stendur á bakvið þvingunina (Rooke and Birchwood, 1998) og hefur eyðileggjandi áhrif á sjálfstraust (Castelein et al., 2015).

Í þessu samhengi hefur hugtakið valdefling verið skilgreint sem ferli sem gerir manneskju kleift að hafa stjórn yfir eigin lífi og hafa áhrif á nærumhverfi sitt og samfélag (Segal et al., 1995). Þá er valdeflingu skipt í tvo þætti. Fyrri þátturinn snýr að persónulega valdeflandi þáttum á borð við lífsgæði og félagslega virkni, og felst þá í stjórnun einstaklingsins á persónulegum aðstæðum og lífsákvörðunum. Seinni þátturinn snýr að möguleika einstaklingsins á því að skipuleggja og stjórna því sem hann gerir, ekki síst hvað varðar störf og tómstundir. Hér skiptir höfuðmáli hvernig samfélagið og samvinna í nærumhverfinu byggir upp möguleika einstaklingsins á því að vera þátttakandi í mikilvægum sameiginlegum ákvörðunum.

Loks má nefna trú á eigin færni, eða self-efficacy. Þetta er hlekkurinn milli hinna tveggja þátta valdeflingar einstaklingsins og vísar til sjálfstrausts einstaklingsins til að takast á við daglegar áskoranir og taka þátt í pólitískum aðgerðum. Þetta gerir manneskjunni mögulegt að stjórna eða hafa áhrif á efnislegar aðstæður sínar innan félagslegra stofnana, og eru skólar þá dæmi um það (Castelein et al., 2015).

Mega ungmennin vera með?

Nú skulum við spyrja okkur, að hve miklu leyti fá börn og unglingar á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi að taka þátt í að móta samfélagið okkar. Höfum við þau með í ráðum þegar við skipuleggjum samfélagið. Fá þau meira að segja að eiga hlut í þeim ákvörðunum sem varða þau sjálf, eða ætlumst við einfaldlega til að þau hlýði og geri það sem við segjum?

Unglingar og börn eiga að hafa sömu mannréttindi og hin eldri, sem eru fyrir löngu búin að tapa hugrekkinu. Það er beinlínis sláandi að sjá allt valdakerfið á Íslandi standa saman um að ganga bara enn lengra í því að hóta þeim valdbeitingu; stofna eftirlitshópa til að elta uppi börn og unglinga sem reyna að finna sér sjálf eitthvað að gera og refsa þeim opinberlega.

Við höfum um leið ákveðið að beita hóprefsingu, fyrirbæri sem var bannað af Sameinuðu þjóðunum eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Hóprefsing felst í því að refsa heilum hópi fyrir aðgerðir ákveðinna einstaklinga í honum. Þetta er beinlínis algengt í skólum landsins. Meðan sonur minn var t.a.m. í íslenskum skóla fengum við ítrekað tölvupósta frá þessum sama skóla þar sem okkur var gert að ræða sérstaklega við „strákana“ vegna framkomu „þeirra“. Vitandi að sonur minn er ljúfur sem lamb vildum við forvitnast um hvað málið snerist. Í ljós kom að einn einasti drengur í bekknum hafði látið út úr sér ókvæðisorð við samnemanda af öðru kyni. Fyrir þetta skyldi öllum í þessum hóp, drengjum, refsað. Þetta gerðu skólayfirvöld hugsunarlaust, eins og um sjálfsagt mál væri að ræða. Hóprefsing, sem telst stríðsglæpur, hefur verið normaliseruð.

Þessi hugsunarháttur, að hóprefsing sé rétt og eðlileg, eru einmitt viðbrögðin sem íslensk stjórnvöld hafa valið að beita. Eftir aðgerðir eins einstaklings, sem er nærri öruggt að er að glíma við alvarlegar geðrænar áskoranir og þarf hjálp við þeim, skal haft enn meira eftirlit með öllum unglingum á Íslandi. Þau eiga hvergi að geta falið sig fyrir eftirlitssveitum. Við höfum beinlínis sigað lögreglunni á þau, öll sem eitt. Unglingum skal refsað svo þau hegði sér. Engum þeirra er treystandi, augu valdsins mæna á þau.

Íslendingar eru sérstaklega hræddir við félagslega útskúfun. Við viðhöldum þessum ótta með því að taka kerfisbundið og reglulega einn einstakling fyrir og dingla honum fyrir framan landsmenn svo þeir geti fengið útrás fyrir mis-réttláta reiði og hneykslan. Þannig höldum við hvert öðru hræddu við viðbrögð fjöldans og föllum trekk í trekk í fen múgsefjunar. Þessa refsingu ákváðu svo áhrifavaldar Íslands að beita með hinni fáránlegu samfélagsmiðlaherferð sinni: „þú ert aumingi“. Enn frábær aðferð til að auka sjálfstraust unglinga. Vel gert! Það er löngu kominn tími til þess að við virðum mannréttindi unga fólksins okkar. Það er algjört lágmark að fyrsta skref í áttina að því að stöðva hina hræðilegu þróun sem við horfum uppá sé það að spyrja unglingana og börnin hvað þau telja að sé að, hvað þau telja að mætti betur fara, og hvað þau myndu gera ef þau hefðu fullt ákvörðunarvald yfir eigin stofnunum og nærsamfélagi. Það sem verið er að gera núna gerir ástandið bara verra.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Nýjustu greinar

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Þórarinn Hjartarson

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram …

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.