Hvernig samvinnurekstur opinberar sjúklegt eðli efnahagskerfisins
—
Ímyndum okkur að samfélaginu í heild tækist að finna einfaldar leiðir til að komast af með minni neyslu á orku og vörum en það gerir í dag. Félagar í samvinnufélögum myndu til dæmis deila með sér þvottavélum, kaffivélum, bókum, mat, verkfærum o.s.frv. í stað þess að allir þyrftu að kaupa sér eigin. Þetta myndi þýða að við þyrftum að kaupa margfalt minna af vörum. Um leið myndum við nýta mat og vörur betur. Það að nýta hlutina vel er sparnaður í stóru samhengi. Við þyrftum að vinna minna og héldum eftir meiru fé. Við þyrftum ekki að taka jafn mikið af bankalánum, né sækja um styrki. Í öllum eðlilegum skilningi er þetta algerlega jákvætt.
En þetta hentar kerfinu sem við búum við ekki. Ef samfélagið í heild myndi neyta margfalt minna, taka minni lán, vinna minna og spara, myndi þetta leiða til neikvæðs hagvaxtar. Fyrirtæki myndu selja minna af vörum og fá minni tekjur. Þau gætu þá síður staðið skil við “skuldbindingar” sínar. Lánadrottnar myndu hakka í sig það sem þeir gætu, en þurft að verða fyrir fjárhagslegu tapi fyrir því sem ekki næðist inn. Gjaldmiðillinn myndi falla í verði og bankar myndu lenda í vandræðum. Það yrði ein heljarinnar efnahagskreppa sem ekki sæi fyrir endann á.
Er það ekki afbrigðilegt kerfi sem berst hreinlega gegn sparnaði og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda? Ef betri nýting, sparnaður og samvinna leiddu til þess að við þyrftum að neyta og vinna minna, en það kallaði jafnframt fram efnahagskreppu, stæðum við frammi fyrir tveimur kostum: a) að hætta að spara, auka neyslu og vinnu og ganga æ hraðar á náttúruna; eða b) að henda núverandi fjármálakerfi endanlega á haugana. Hvorn kostinn myndum við velja?
Það er ekki hægt að gera umbætur á þessu kerfi, vegna þess að þetta er beinlínis grundvöllurinn fyrir því. Hin heilaga þrenning þess er einkaeign á framleiðslutækjunum, gróðasókn og neysla. Að losa okkur við þessa hluti er að drepa sjálft kerfið. Tal um umbætur á því er leið til að halda því lifandi. Umræðum um að byggja samfélagsformið upp á grundvelli þeirra sjónarmiða sem við trúum á í raun og veru; Raunverulegt einstaklingsfrelsi, samvinna, réttlæti og sátt við náttúruna, er haldið frá. Rætt um það sem barnaskap. En við munum þurfa að taka upp umræðuna fyrr eða síðar. Auðlindir heimsins og þol manneskjunnar eru ekki óþrjótandi.









