Hver má sýna í Feneyjum? Tvískinnungurinn æpir
—

Kristinn Hrafnsson
15. apr, ’26

Á Feneyjatvíæringnum í næsta mánuði verður að finna margvíslega og fjölbreytta list frá nærri 90 löndum. Fulltrúi Íslands verður Ásta Fanney Sigurðardóttir sem er myndlistakona, skáld og tónlistarkona. Ég finn engar upplýsingar um hvaða innsetningu hún býður uppá í rými Íslands en þáttaka hennar þykir ekki umdeild, að minnsta kosti.

Hópur ungra rússneskra listamanna mun fylla skála lands síns af list, það er að segja ef ekki verður strækað á þáttökuna – eins og Logi Einarsson, menningarmálaráðherra, hefur hvatt til. Af því Pútín sendi heri sína inn í Úkraínu og hefur framið þar óhæfuverk.

Fulltrúi Bandaríkjamanna á þennan menningarviðburð verður myndhöggvarinn Alma Allen sem samkvæmt lýsingu er áhugaverður listmaður sem vinnur úr steini, brons og tré – og blandar hinu lífræna efni og handbragði við tækni. Nú hefur Trump, forseti hans ráðist inn í Íran og drepið þar mann og annan og ekki undanskilið á annað hundrað skólastúlkur. Þess utan hefur hann hótað að eyða allri siðmenningu í Íran og væntanlega mun þá öll listsköpun hverfa. Logi ráðherra hefur ekki lýst því yfir að hann vilji að Alma Allen sé meinað að mæta með list sína til Feneyja þrátt fyrir þetta.

 Á þessa hátíð mun Ísrael einning senda listmanninn Belu-Simion Fainaru sem mun setja þar upp verk sem með strúktúrum og vatni endurspeglar svart tómið sem ku vera vísun í Kabbala dulhyggju gyðingdóms. Benjamin Netanyahu forsætiráðherra Belu-Simion hefur verið að dunda sér við þjóðarmorð og slátrun á tugþúsundum barna. Ég hef ekki séð ákall Loga ráðherra um að listmanninum Belu-Simion sé úthýst frá Feneyjum vegna þessara gjörða pólitískrar forystu í hans heimalandi.

Röksemdum Loga ráðherra, sem blandar sér í hóp 22 evrópskra ráðherra, er lýst með því að það sé ólíðandi að hópur ungra rússneskra listamanna mæti á hátíðina í Feneyjum. „Ráðherrarnir lýsa þungum áhyggjum af því að Rússar varpi með því upp mynd lögmætis og alþjóðlegrar viðurkenningar sem ekki standist raunveruleikann. Slík viðurkenning stangist á við áframhaldandi stríðsrekstur þeirra í Úkraínu með eyðileggingu á þarlendum menningararfi – og alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn þeim. Óásættanlegt sé því að Rússar taki þátt í Feneyjatvíæringnum í myndlist sem hefst 9. maí.“

Telur Logi ráðherra þá að þáttaka listamanna frá Ísrael og Bandaríkjunum „varpi upp mynd lögmætis og alþjóðlegrar viðurkenningar“ á árásarstríði, stórfelldum stríðsglæpum, aðskilnaðarstefnu, landráni og þjóðarmorði? Eða er von á framhaldstilkynningu frá ráðherra?

Pistill þessi er fésbókarfærsla höfundar frá 15. apríl, birt með góðfúslegu leyfi

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands á mánudag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og fremst út á öryggismál. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segist …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.