HVAÐ SEGJA STJÓRNMÁLAMENN ÞEGAR GRUNNNET SÍMANS ER SELT ÚR LANDI?
—

Ögmundur Jónasson
20. okt, ’21

Fjárfestingarsamsteypa með aðsetur í París er í þann veginn að eignast Mílu, grunnnet íslenska símakerfisins. Í fjölmiðlum er vísað til þessa fyrirtækis sem “sjóðastýringarfyrirtækis” að nafni Ardian SA.

Þegar Landssíminn var gerður að hlutafélagi á sínum tíma sagði þáverandi samgönguráðherra: "Í mínum huga kemur ekki annað til greina en að Póstur og sími verði alfarið í eigu ríkisins."

Svo kom forstjóri af frjálshyggjukantinum Brynjólfur Bjarnason sem sagði: "Það er að mínu mati mjög æskilegt … að Síminn verði áfram að einhverju leyti í eigu Íslendinga".

“Að einhverju leyti.” Grunnnetið?

Brynjólfur vildi þó ekki lofa upp í ermina og bætti við: “það er þó erfitt að stýra því þegar vara er boðin til sölu."

“Vara”!

Sjá: http://ogmundur.is/samfelagsmal/2004/03/aeskilegt-ad-siminn-verdi-ad-einhverju-leyti-i-eigu-islendinga

Við sem vildum ekki láta svipta þjóðina eignarhaldi á Símanum reyndum að finna nýja varnarlínu. Aðskilja bæri grunnnetið hinu hlutafélagsvædda símafyrirtæki. Það var gert um síðir og áttu engin eignatengsl að vera milli grunnnetsins og Símans. Ekki gátu stjórnendur Símans setið á sér og fengu þeir prívat og persónulega með velviljaðri hjálp að kaupa sig inn í grunnnetið líka.

Sjá: http://ogmundur.is/greinar/2016/01/hvad-segja-eigendur-simans-um-skammarverdlaunin

Og nú er semsagt verið að selja grunnnetið til franskra braskara.

Það sem mér finnst stórfenglegast er “að ef end­an­leg­ir samn­ing­ar ná­ist muni Sím­inn og Ardi­an einnig vinna með hinu op­in­bera að upp­lýs­inga­gjöf og ör­ygg­is­mál­um varðandi hags­muni lands­manna. Þegar séu und­ir­bún­ingsviðræður að slíku fyr­ir­komu­lagi hafn­ar, en þar er um að ræða að tryggja að rekst­ur innviða fé­lags­ins sam­rým­ist þjóðarör­ygg­is­hags­mun­um.”

Höfundur greinarinnar Ögmundur Jónasson
Höfundur greinarinnar Ögmundur Jónasson.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2021/10/18/siminn_langt_kominn_med_solu_a_milu/

Er það samgönguráðherrann, formaður Framsóknarflokksins, sem á í þessum viðræðum eða er það Þjóðaröryggisráðið með Katrínu Jakobsdóttur formann VG og Guðlaug Þór Sjálfstæðisflokki innanborðs sem ræða þessi mál? Væri ekki rétt að upplýsa þjóðina nákvæmleqa um þessi viðskipti öll og þá einnig hvort til tals hafi komið að ríkið tæki grunnnetið til sín? Hvað hefur verið rætt við Ardian SA varðandi “hagsmuni landsmanna”? Það er jú rétt sem segir í kyninngarauglýsingu Mílu að um er að ræða Lífæð samskipta.

Nú segir Katrín Jakobsdóttir i fréttum að það sé verið að kanna hvernig hægt sé að tryggja þjóðarhagsmuni "óháð eignarhaldi."
Því er fljótsvarað: Það er ekki hægt. 

Greinin birtist á heimasíðu Ögmundar Jónassonar 18 október.

Sjá hér: http://ogmundur.is/greinar/2021/10/hvad-segja-stjornmalamenn-thegar-grunnnet-simans-er-selt-ur-landi

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Nýjustu greinar

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Þórarinn Hjartarson

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram …

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.