Framlenging ESB á Chat Control er móðgun við lýðræðið
—

Thomas Fazi
13. júl, ’26

Hvernig Brussel beitti brögðum við málsmeðferð til að knýja í gegn tillögu um allsherjareftirlit með samskiptum almennings sem Evrópuþingið hafði áður hafnað.

Á fimmtudag „samþykkti“ Evrópuþingið framlengingu á Chat Control 1.0. Þar er um að ræða tímabundna undanþágu frá persónuverndarreglum ESB um rafræn samskipti. Undanþágan heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkasamskipti almennings í stórum stíl, að sögn í því skyni að finna efni sem tengist kynferðisofbeldi gegn börnum. Orðið „samþykkti“ er hér haft innan gæsalappa vegna þess að það gefur til kynna nokkuð sem augljóslega gerðist ekki: að meirihluti Evrópuþingmanna hefði greitt tillögunni atkvæði sitt. Raunin var sú að 314 þingmenn greiddu atkvæði gegn textanum en 276 með honum. Samt náði hann fram að ganga.

Þetta var mögulegt vegna kaldhæðnislegs málsmeðferðarbragðs af því tagi sem Brussel grípur til þegar hentar. Málinu var þröngvað í gegnum þingið með svokallaðri „flýtimeðferð“. Roberta Metsola, forseti Evrópuþingsins, tók einhliða upp að nýju mál sem þingmenn höfðu þegar hafnað í mars. Ráðherrarráðið sendi það síðan hentuglega aftur til þingsins í upphafi sumarleyfisins, þegar erfiðast er að tryggja góða mætingu. Til að hafna málinu öðru sinni hefði einfaldur meirihluti ekki nægt; til þess hefði þurft hreinan meirihluta allra þingmanna, eða 360 atkvæði. Lögin voru því samþykkt þótt meirihluti viðstaddra þingmanna hefði greitt atkvæði gegn þeim. Reglugerðin gildir nú til apríl 2028. Með því vinnst tími til viðræðna um enn víðtækari arftaka hennar, Chat Control 2.0.

Eins og þýski Evrópuþingmaðurinn Fabio De Masi benti á að atkvæðagreiðslunni lokinni er Chat Control „löggjafarlegur uppvakningur“: ráðstöfun sem Evrópuþingið hefur ítrekað hafnað en er endurvakin hvað eftir annað þar til tilætluð niðurstaða fæst. Þessi atburðarás ætti að vekja þá til umhugsunar sem halda því fram að ráða megi bót á lýðræðishalla ESB með því að færa Evrópuþinginu aukin völd. Hér vinnur forseti þessarar sömu stofnunar með ráðinu að því að endurvekja mál sem þingið sjálft hafði jarðað. Ef þetta eru vinnubrögð þingsins myndi aukið vald þess aðeins dýpka lýðræðishallann. Það myndi færa kerfinu enn sterkara yfirbragð lögmætis, þótt í grunninn sé það áfram framkvæmdar- og skrifræðisbákn sem lítur á niðurstöður atkvæðagreiðslna sem hindranir sem þurfi að finna leið fram hjá.

Þeir sem verja niðurstöðuna benda á meintan ljósan punkt: breytingartillögu frá hinum frjálslynda Renew-hóp sem undanskilur samskipti sem eru, hafa verið eða verða varin með enda-til-enda-dulkóðun, til dæmis WhatsApp-skilaboð. Sumir Evrópuþingmenn hafa fagnað þessu sem vonarglætu og líklega varð breytingartillagan til þess að nógu margir snerust gegn því að fella málið alfarið. Hún stangast hins vegar beinlínis á við sjálfa hugmyndina að baki fjöldaskönnun. Þess vegna er almennt búist við að ráðið felli ákvæðið brott þegar málið kemur inn á borð þess á næstu þremur mánuðum. Þar er málið í höndum innanríkisráðuneyta sem hafa lítinn áhuga á slíkum fyrirvörum um friðhelgi einkalífs. Ákvæðið er með öðrum orðum aðeins yfirvarp sem ætlunin er að fjarlægja síðar í ferlinu.

Svenja Hahn, endurkjörinn forseti Bandalags frjálslyndra og demókrata í Evrópu (ALDE), kallaði atkvæðagreiðsluna „smán“. Hún varaði við því að niðurstaðan „opni dyrnar að fjöldaeftirliti með öllum einkasamskiptum“ og sagði að „eftirlit með einkaspjalli, sem ríki ESB beita sér fyrir, ógni frelsi okkar og lýðræði“. Lyudmyla Kozlovska hjá Open Dialogue Foundation setti málið í víðara samhengi. Hún sagði þar birtast kunnuglegt mynstur þar sem „víðtæk valdheimild er réttlætt með tilgangi sem sagður er brýnn og svo er hún hljóðlega normalíseruð“: fyrst var það friðhelgi fjárhagsupplýsinga, síðan upplýsingar um ferðamenn og nú einkaskilaboð. Raunverulega baráttan hefst að hennar sögn í september og snýst um Chat Control 2.0.

Þar liggur einmitt kjarni málsins. Chat Control snerist í raun aldrei um börn. Skönnun einkasamskipta af þessu tagi, sem enginn myndi sætta sig við ef um venjuleg bréf væri að ræða, skilar litlum árangri við að hafa hendur í hári raunverulegra barnaníðinga, enda notast þeir við svokallað myrkraneti (darklweb). Á sama tíma kaffærir hún lögregluna í röngum ábendingum. Samkvæmt mati svissnesku alríkislögreglunnar er um 80% þess efnis sem sjálfvirk kerfi merkja ekki einu sinni ólöglegt. Það sem verður hins vegar til er varanlegt kerfi sem gerir algert eftirlit mögulegt og býður heim hættunni á sífellt víðtækari notkun og misnotkun. Við þetta bætist skyldubundin aldursstaðfesting sem myndi binda enda á nafnleynd uppljóstrara, blaðamanna og stjórnarandstæðinga á netinu. Patrick Breyer, fyrrverandi Evrópuþingmaður, orðaði þetta best í fyrra: „Þau selja okkur öryggi en afhenda okkur algera eftirlitsvél.“ Sú vél hefur nú komist yfir enn eina hindrunina.

Thomas Fazi er ítalskur blaðamaður og þýðandi. Greinin birtist áður á vefsíðu höfundar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.