Enn ein stigmögnun í stríði heimsveldisins gegn aktívisma og blaðamennsku
—

Caitlin Johnstone
28. maí, ’26

Stríð heimsveldisins gegn aktívisma og blaðamennsku harðnar enn þar sem Trump-stjórnin beinir spjótum sínum að vinstri sinnaða streymaranum Hasan Piker og stríðsandstæðingnum Medeu Benjamin fyrir þann glæp að flytja mannúðaraðstoð til Kúbu.

Þetta er enn ein árásaraðgerðin í sömu árásarhrinunni, og við höfum horft á hvernig ráðist er á og grafið undan óþægilegum sannleika eða tjáningu siðferðilegs skýrleika um allan vestrænan heim við öll möguleg og ómöguleg tækifæri undanfarin ár.

Þetta verður ekki aðskilið frá ofsóknum á hendur Julian Assange fyrir að afhjúpa stríðsglæpi Bandaríkjanna.

Þetta verður ekki aðskilið frá sífellt harðnandi ritskoðun á internetinu sem við höfum séð í kjölfar Gaza, Úkraínu, Covid, 6. janúar, forsetakosninganna í Bandaríkjunum 2016 og hvers kyns annarrar afsökunar frá þeim sem stjórna frásögn heimsveldisins.

Þetta verður ekki aðskilið frá tilraunum Trump-stjórnarinnar til að vísa útlendingum úr landi fyrir að gagnrýna Ísraelsríki.

Þetta verður ekki aðskilið frá tilraunum til að kveða niður mótmæli til stuðnings Palestínu og mótmæli á háskólasvæðum.

Þetta verður ekki aðskilið frá handtökum aktívista í Bretlandi á grundvelli hryðjuverkaákæru fyrir að segja orðin „Ég styð Palestine Action“.

Þetta verður ekki aðskilið frá því að aktívistar standa frammi fyrir sakamálum fyrir að segja „Allt frá ánni til sjávar“ í hlutum Ástralíu og Þýskalands.

Þetta verður ekki aðskilið frá tilraunum heimsveldisins til að herða aðgerðir gegn BDS-aktívisma og banna sniðgöngu á ísraelskum vörum.

Þetta verður ekki aðskilið frá banni Ísraels á aðgangi erlendra fjölmiðla að Gaza, né er það aðskilið frá kerfisbundinni útrýmingu Ísraels á palestínskum blaðamönnum innan Gaza.

Þetta  verður ekki aðskilið frá tilbúinni móðursýki um „gyðingahatur“ í vestrænu samfélagi og tilraunum vestrænna ríkisstjórna til að þagga niður gagnrýni á Ísrael í nafni þess að vernda gyðinga.

Þetta verður ekki aðskilið frá gríðarlegri aukningu Ísraels á hasbara-fjárveitingum sínum á þessu ári og herjum launaðra trölla sem við höfum séð flæða yfir umræðuna á netinu.

Þetta verður ekki aðskilið frá stanslausri áróðursárás heimsveldisins sem við sjáum daglega frá auðvaldsfjölmiðlum sem réttlæta hvert stríð og rægja hvern andófsmann.

Þetta verður ekki aðskilið frá því hvernig auðjöfrar heimsveldisins eins og Jeff Bezos, Elon Musk og Larry Ellison kaupa upp fréttamiðla eins og The Washington Post og CBS og samfélagsmiðla eins og TikTok og Twitter til að stjórna því hvernig almenningur hugsar, hegðar sér og kýs.

Þetta verður ekki aðskilið frá því hvernig tæknifyrirtæki hafa stjórnað reikniritum til að fela uppsprettur andófsupplýsinga fyrir almenningi og notað fölsuð „staðreyndaathugunarfyrirtæki“ (“fact checking”) til að bæla niður óviðurkenndar staðreyndir.

Þetta verður ekki aðskilið frá leyniaðgerðum stjórnvalda sem banna almenningi að vita hvað valdhafar þeirra eru að gera og sem refsa harðlega hverjum þeim sem reynir að afhjúpa óþægilegar staðreyndir.

Heimsveldið heyr stríð án afláts gegn vitsmunalegum skýrleika og siðferðilegum skýrleika, af því sannleikur og siðferði eru óvinir þess.

Það vill ekki að við höfum óhindraða sýn, skýran huga, virkar samkenndarstöðvar og vel mótaða samvisku, því ef við hefðum þetta myndum við umsvifalaust rífa heimsveldið niður, múrstein fyrir múrstein.

Þess vegna ræðst það á hvern þann sem reynir að víkka vitund vestræns samfélags með aktívisma og blaðamennsku. Í heimsveldi sem byggir á lygum og er knúið áfram af mannablóði, er það að segja sannleikann talið landráð og að gera hið rétta er talið uppreisn.

Einu skynsamlegu viðbrögðin við slíkum martraðarkenndum aðstæðum eru að taka þátt í byltingunni. Hjálpaðu til við að dreifa óviðurkenndum hugmyndum og upplýsingum. Gríptu til aðgerða til að vekja athygli á ofbeldisfullu eðli heimsveldisins. Það reynir að halda því öllu í myrkrinu, svo við verðum að draga allt fram í dagsljósið.

Heimsveldið myndi ekki berjast svo hart fyrir því að bæla niður sannleika og samkennd nema af því sannleikur og samkennd boða valdaskipulagi þess tilvistarógn og dauða.

Caitlin Johnstone er óháður blaðamaður, víðkunnur penni og hugrökk kona í Melbourne í Ástralíu

Mynd yfir greininni: Hasan Piker og Medea Benjamin sem fóru á bátum til Kúbu með mannúðaraðstoð.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.