Endalok heimsins eins og við þekkjum hann
—

Þórarinn Hjartarson
17. mar, ’26

Arthur Kachikian er frá Armeníu og kunnur álitsgjafi um alþjóðamál, bandarískur ríkisborgari og doktor í stjórnmálafræði frá Stanford University, en starfandi í Yerevan Í Armeníu.

Þann 14. mars sl. ræddi hann um Íranstríðið og áhrif þess á alþjóðastjórnmál við Pascal Lottaz sem er svissneskur aðstoðarprófessor við  Waseda Institute for Advanced Study í Tokyo í faginu „hlutleysirannsókir“ eða Neutrality Studies. Lottaz heldur líka úti merkri streymisveitu með sama nafni, Neutrality Studies, og ræðir þar við sérfróða menn um alþjóðamál, einkum við fólk sem almennt er gagnrýnið á hina vestrænu frásögn af þeim málum.

Viðtalið mótast af því að Kachikian er bandarískt skólaður fræðimaður sem hefur greinilega fram að þessu verið hallur undir hina fjálslyndu heimsskipan (ásamt markaðsfrjálslyndri hnattvæðingu) sem ríkt hefur eftir lok Kalda stríðsins. „I am a big liberal“ segir hann. En að hans áliti ummyndaðist kerfið þegar voldugasta ríki þess hefur tekið sér fullt drottnunarvald.

Viðtalið mótast einnig af því að Armenía er í næsta nágrenni við átakasvæðið, þar sem Armenía á landamæri að Íran. En ályktanir Kachikians eru víðtækari en svo, og að hans mati markar Íranstríðið mikil umskipti, stórfelldar hamfarir sem ganga yfir alþjóðarétt, alþjóðareglur, öryggis- og afvopnunarsamninga og allt kerfi alþjóðlegra stjórnmála.

America’s Final War | Dr. Arthur Kachikian – YouTube

Hér að neðan eru meginpunktar Kachikians:

  . . . . . . . . .

ÞETTA ERU ENDALOK HEIMSINS EINS OG VIÐ ÞEKKJUM HANN

Heimsskipanin eftir 1945 er fallin.

KJARNI MÁLS: ALLAR STOÐIR ERU AÐ HRYNJA

  • Alþjóðalög eru horfin.
  • Kerfi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningar og almenningsálitið eru hætt að skipta máli.
  • Sérhver vopnaeftirlitssamningur, frá INF til ABM til „Open Skies“, er horfinn.
  • Banni við útbreiðslu kjarnavopna er lokið; kjarnorkuvopn munu nú breiðast út.

FRJÁLSLYNDISDRAUMURINN ER ÚTI

  • Fjögur hundruð ár af heimspeki, frá Hobbes til Locke til Mill sem lofuðu því að lýðræðisríki myndu aldrei ráðast hvert á annað.
  • Það loforð dó endanlega um leið og forysturíki lýðræðisins hóf þetta stríð [árásina á Íran].
  • Bretland, Frakkland, Þýskaland og NATO stóðu einnig að baki ákvörðuninni um að hefja stríðið.
  • Hugmynd Francis Y. Fukuyama frá 1992 um „Endalok sögunnar“ [í allsherjar frjálslyndu lýðræðiskerfi] liggur nú grafin við hliðina á Þjóðabandalaginu (1920-1946) og „Samstíga Evrópu“ (jafnvægiskerfi Evrópu ca. 1814-1914).

GRAFREITUR REGLUBUNDINNAR HEIMSSKIPANAR

  • Þessi átök leiða okkur í gegnum grafreit eftirtalinna: Þjóðabandalagsins afkvæmis Woodrow Wilsons, Nýju hugsunar Gorbatsjovs, Nýju heimsskipunar Bush eldra, jafnvel MAGA-hreyfingarinnar.
  • Allar hugsjónir um jafnvægi, sameiginlegt öryggi og málamiðlanir eru nú grafnar – á bautastein.
  • Þeir sömu frjálshyggjumenn og prédikuðu þessar reglur rifu þær sjálfir niður.

NIÐURSTAÐA

Arthur Kachikian segir að við stöndum á nýtekinni gröf allra hugmynda sem mannkynið hefur nokkurn tímann haft um að koma í veg fyrir styrjaldir. Fólkið sem kvaðst vera að verja lýðræðið heldur sjálft á rekunni moldugt upp fyrir haus. Þetta nýjasta stríð markar endalok heimsins eins og við þekkjum hann.

   . . . . . . .

Pascal Lottaz setti kynningu á viðtalinu út á miðilinn X. Þar hefur m.a. Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti – og stjórnmálafræðingur eins og Kachikian – veitt því athygli. Og hann deilir því áfram með hinni áaleitnu spurningu: „Er þetta rétt hjá honum“?, Is he right?

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.