Efling varar við svikamyllu í veitingageiranum – Gervistéttarfélagi beitt til að skerða kjör starfsfólks
—

Efling stéttarfélag
29. des, ’24

Efling stéttarfélag varar starfsfólk í veitingageiranum við gervistéttarfélaginu „Virðingu“.

„Virðing“ er ekki raunverulegt stéttarfélag heldur svikamylla rekin af atvinnurekendum í þeim tilgangi að skerða laun og réttindi starfsfólks.

Efling hefur staðfesta vitneskju um tilvik þar sem starfsfólki hefur verið sagt af atvinnurekanda að það eigi að starfa undir kjarasamningi Virðingar við atvinnurekendafélagið SVEIT. Tilgangur þess er að fá starfsfólk til að samþykkja lægri laun og verri kjör.

Efling biður allt starfsfólk í veitingageiranum sem hefur fengið boð frá sínum atvinnurekanda um að taka þátt í þessum svikum að hafa samband við félagið án tafar með eyðublaðinu hér


Atvinnurekendur þóttust vera verkafólk þegar þeir fengu ekki kröfum sínum framgengt við Eflingu

SVEIT hefur á liðnum árum barist fyrir gerð kjarasamnings þar sem laun starfsfólks á veitingahúsum verði lækkuð miðað við núgildandi lögvarin kjör í kjarasamningi Eflingar við Samtök atvinnulífsins.

SVEIT reyndi í fyrstu að sannfæra Eflingu um að ganga til kjaraviðræðna við sig á þeim forsendum, en því hafnaði félagið. Dró SVEIT þá Eflingu fyrir Félagsdóm, sem úrskurðaði að Eflingu bæri engin skylda til að semja við SVEIT og staðfesti jafnframt að ákvæði kjarasamnings Eflingar við SA væru lögbundin lágmarkskjör í geiranum.

Í stjórn Virðingar sitja þrír einstaklingar, þar af tveir sem koma beint að rekstri veitingastaða sem eigendur eða stjórnarmenn. Ekki kemur á óvart að þeir veitingastaðir eru einmitt á félagaskrá SVEIT.

Ótal kjaraskerðingar

Kjarasamningur Virðingar við SVEIT felur í sér verulegar skerðingar á launum og réttindum starfsfólks, þar á meðal:

Dagvinnutími lengdur um þrjá klukkutíma eða frá kl. 17:00 til kl. 20:00, sem þýðir að þessa klukkutíma fær starfsfólk ekki greitt vaktaálag. Sama á við um laugardaga frá 08:00-16:00.
Kvöldvaktaálag er lækkað úr 33% í 31%.
Almennur starfsmaður á veitingahúsi með 1 árs starfsreynslu í geiranum mun, ef hann vinnur á kjörum SVEIT og Virðingar, verða fyrir launalækkun um 52.176 á mánuði eða sem nemur 10%.
Orlofsréttindi eru færð niður í lögbundið 24 daga lágmark, og öll orlofsávinnsla umfram það sem Efling hefur samið um við SA felld niður.
Réttur til launa í veikindum er skertur.


Þetta eru einungis nokkur dæmi af ótal kjaraskerðingum sem samningurinn felur í sér.

Eflingarfélagar standa saman og félagið er tilbúið til verja alla sem lenda í svikamyllu SVEIT

Trúnaðarmenn af vinnustöðum Eflingarfélaga vítt og breitt af vinnmarkaðinum fóru í gær þriðjudag í heimsóknir á veitingastaði á Höfuðborgarsvæðinu. Einn tilgangur heimsóknanna var að vara félagsmenn við að vera svikin af SVEIT og Virðingu.

Efling hvetur félagsmenn sem hafa verið beðnir að vinna undir gervi-kjarasamningi Virðingar til að hafa samband við félagið án tafar. Best er að nota eyðublað á vefsíðu félagsins til þess

Efling mun aðstoða allt verkafólk sem eru fórnarlömb þessarar svikamyllu, óháð því hvort þau hafa skrifað undir ráðningarsamning þar sem vísað er til gervi-kjarasamnings Virðingar og SVEIT. Verkafólk þarf ekki að sætta sig við að vera blekkt á þennan hátt, sama hvað atvinnurekandi kann að segja þeim.

Efling mun grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að koma í veg fyrir svik og blekkingar SVEIT og Virðingar gegn starfsfólki veitingahúsa.

Birtist fyrst á heimasíðu Eflingar 4.12.24

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.