Betra að úlfurinn sleppi sauðargærunni
—

Þórarinn Hjartarson
19. júl, ’26

Það er siður í þessum sveitum hér að tala um Úkraínustríðið sem útþenslustríð hins vonda Pútíns og á hinn bóginn frelsisbaráttu Úkraínumanna. Jafnframt sem baráttu lýðræðisins gegn einræðisöflunum, og annað göfugt.

Trumpistarnir eru slæmir, og miklir heimsvaldatuddar. En þeir hafa sína verðleika. Þeir eru oftar en ekki sannsögulli en froðusnakkarnir frjálslyndu sem þeir keppa við vestur þar. Froðusnakkar sem þekkjast á því að það standa eilíflega út úr þeim „vestrænu gildin“. Alveg sérstaklega þegar þeir tala um Úkraínu, það er nú meiri óskapa slepjan.

Því fylgir oft mikill léttir að hlusta á góða Trumpista. Þeir tala ekki svona slepjulega, og þeir rata því oft á götu sannleikans. Marco Rubio utanríkisráðherra, nýkominn í embættið, sagði um Úkraínustríðið: „Og í hreinskilni, þetta er staðgengilsstríð [proxy war] á milli kjarnorkuvelda.“ Aðrir tala jafnvel ennþá skýrar, og mætti tilfæra margar góðar tilvitnanir frá Trump eða Pete Heggseth því til staðfestingar. Það opnar betur augu okkar og eyru þegar úlfurinn hvorki fer í sauðargæru né reynir að tala eins og amma Rauðhettu. 

Ég ætla samt ekki að vitna í þessa menn núna heldur tvo aðra trumpista. Af því þeir tjá sig á óvenjulega upplýsandi hátt. Þeir útskýra fyrir manni hvað staðgengilsstríð er og hið mikilvæga, en nöturlega, hlutverk staðgenglanna.

Fyrra dæmið er Lindsey Graham heitinn. Hann var í sífellum ferðum, ýmist til Ísraels eða Úkraínu til að peppa þar upp sína menn. Han dó nú í vikunni, nýkominn frá Úkraínu – ýmsir telja reyndar að hann hafi dáið í Úkraínu, en ekki meira um það.

Hjálögð myndbandsúrklippa er frá 2022, ekki löngu eftir að Rússar hófu innrás sína. Lindsay Graham sagði eftirfarandi:

Mér líkar vel grunnaðferðin sem hér er beitt. Meðan við sjáum Úkraínumönnum fyrir þeim vopnum sem þeir þurfa og efnahagslegum stuðningi, munu þeir berjast til síðasta manns. (I like the structural path we are on here. As long as we help Ukraine with the weapons they need and economic support, they will fight to the last person.)


Annað samhengi: Í miðju þjóarmorðinu í Palestínu hvatti Lindsey Graham til að Gaza-ræman yrði flött út eins og Bandaríkin í seinna stríði höfðu flatt út þýskar borgir og Hírósima og Nagasaki í Japan. Hann var alltaf sjálfum sér samkvæmur.

Annað dæmi er Keith Kellogg hershöfðingi. Hann er raunar valdameiri maður en Graham, og hefur bæði starfað sem þjóðaröryggisráðgjafi og verið sérlegur sendimaður Trumps í Rússlandi og Úkraínu. 

Í febrúar 2023 svaraði hann varnarmálanefnd Öldungadeildarinnar spurningum um Úkraínustríðið, þegar það hafði staðið í eitt ár og sagði:

ef maður getur sigrað hernaðarlegan meginandstæðing án þess að beita neinum bandarískum hermönnum þá er maður við hápunkt fagmennskunnar.

Kellogg bætti við: „Þá getum við fókusað á það sem við eigum að fókusa á þ.e.a.s. aðalandstæðing okkar sem er Kína.“ Með því varð hann ennþá meira upplýsandi – um hið víðara samhengi þessa staðgengilsstríðs, m.a. af hverju Bandaríkin þurfa að útvista því til Evrópu. Úkraínisera Evrópu.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands á mánudag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og fremst út á öryggismál. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segist …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.