Ætlum við ekki að gera neitt?
—

Ingólfur Gíslason
11. sep, ’25

Samsett mynd: Þorgerður Katrín með bakgrunn í Gaza.

Vesturlönd dæmdu Gaza til dauða 7. október 2023. Nú er verið að framfylgja dómnum. Nákvæmlega ekki neitt hefur verið gert til að stöðva þá framkvæmd. En miklum sandi hefur verið þyrlað upp til að blekkja almenning um að það standi til að gera eitthvað.

Þetta er staðan. Þetta er Þorgerður Katrín. Þetta er Kristrún Frostadóttir. Þetta er Bjarni Ben. Þetta er Kolbrún Reykjörð. Þetta er Katrín Jakobs. Þetta er Biden. Þetta er Trump. Þetta er Kamala. Þetta er Starmer. Þetta er Rishi Sunak. Þetta er Mette Frederiksen. Þetta er Macron. Þetta eru, hvað sem þeir heita, nasistarnir í Þýskalandi. Og svo framvegis. Stöðug framleiðsla á lygum, undanslætti, afvegaleiðingu, áhyggjum, sýndaraðgerðum. Í tvö ár. Tvö ár af stanslausri slátrun á öllum manneskjum, ófæddum, nýburum, börnum, unglingum, ungu fólki, eldra fólki, óvopnuðu fólki og fólki sem reynir að mæta þungvopnuðum hermönnum, skriðdrekum, drónum, eldflaugum og sprengiflugvélum með frumstæðum vopnum, sem tætt er í sundur og brytjuð niður í tugþúsunda eða hundruðþúsunda tali. Líf þeirra hafa Vesturveldin dæmt dauð og ómerk. Þá er eftir að nefna gereyðingu ræktarlands, vatnsveitna, orkuveitna, allra bygginga – og markvisst svelti.

Ekkert af þessu hreyfir við ríkisstjórnum okkar og okkar bestu bandamanna. Það er ekki hægt að reka Ísrael úr Eurovision. Það er ekki hægt að reka Ísrael úr FIFA, UEFA, FIBA, FIDE, eða neinu öðru íþróttasambandi. Það er ekki hægt að slíta samvinnu við ísraelskar fræðastofnanir, það er ekki hægt að banna innflutning á vörum frá landi sem æðstu alþjóðadómstólar hafa úrskurðað að séu undir ólöglegu hernámi, það er ekki hægt að stöðva neina verslun af neinu tagi til eða frá Ísrael, það er ekki hægt að hætta að senda Ísrael vopn fyrir milljarða dollara, það er ekki hægt að hætta að njósna fyrir Ísrael, það er ekkert hægt að gera nema finnast þetta allt frekar óþægilegt, og væri ekki betra að hafa mótmælin aðeins penari, og það má alla vega ekki trufla fyrirlestrahald.

Ég bara næ þessu ekki. Tvö ár af undanbrögðum, tvö ár af ryki, tvö ár sem æpa á okkur og segja: VIÐ ÆTLUM EKKI AÐ GERA NEITT! ALDREI! ÞAÐ VERÐUR ALDREI! HÉR ER SMÁVEGIS KJAFTÆÐI SEM ÞIÐ GETIÐ HUGSAÐ UM HVORT EKKI SÉ JÁKVÆTT, TÁKNRÆNT, LÍTIÐ SKREF, ÞANGAÐ TIL NÆST!

Athugasemd

Ingólfur Gíslason þarf enga ritaðstoð, en vandinn er sumsé þessi:

Palestínu vinur vera
er vandi yfirleitt.
Listin er að ætla að gera
án þess að gera neitt

Pistillinn birtist á fésbók Ingólfs Gíslasonar 9/9.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.