Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“
—
Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting.
Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. Hann vilji „frið“. Hann „taki afstöðu með Rússlandi“. Skynsamt fólk sér þó að þetta er skáldskapur. Það sem í raun er að gerast er það að stefnan um deilingu byrða og verkaskiptingu tekur á sig mynd fyrir augum okkar.
Bandaríkin hafa engan áhuga á friði. Ef þau vildu frið fengju þau frið. Þau gætu hætt að senda vopn. Þau gætu hætt að veita njósnaupplýsingar [gerfihnattaupplýsingar um skotmörk]. Þau gætu hætt að stýra stríðinu. Þau gætu sest niður með Rússlandi og samið um lausn. Þau hafa ekki gert neitt af þessu. Þau hafa gert hið gagnstæða, magnað átökin.
Hvað er að gerast í raun?
Bandaríkin eru að beina kröftunum að Kína. Þau vilja að Evrópa taki á sig stærra hlutverk í að berjast við Rússland og halda því í skefjum. Frásögnin um „fráhvarf“ veitir evrópskri valdastétt nauðsynlegt skálkaskjól til að krefjast niðurskurðar í velferðarmálum og gríðarlegrar aukningar hernaðarútgjalda. Þetta á sér stað um alla Evrópu. Evrópsk verkalýðsstétt greiðir fyrir hernaðarútgjöldin. Og keypt eru bandarísk vopn.
Þetta er ekki fráhvarf. Þetta er flutningur byrða. Bandaríkin eru að færa meginbyrðarnar við hefðbundnar varnir Evrópu yfir á evrópsk leppríki sín á meðan þau einbeita hernaðarmætti sínum að Indó-Kyrrahafssvæðinu. Markmiðið er ekki að binda enda á stríð. Markmiðið er að breyta því hver borgar fyrir það og hverjir deyja.
Sönnunargögnin
Bandaríska hermálaráðuneytið [Pentagon] hefur gert þetta opinbert. Framtíðarstuðningur við Úkraínu „má ekki reiða sig á verulegt framlag Bandaríkjanna“. Evrópa verður að „hraða því að taka á sig meginábyrgð á hefðbundnum vörnum álfunnar“. Þetta er sagt vera „strategísk nauðsyn“.
Stefnan á sér nafn. Sérfræðingar í varnarmálum kalla hana breytingu frá „deilingu byrða“ yfir í „byrðaflutning“: Bandaríkin færa meginábyrgðina á vörnum Evrópu yfir á evrópska bandamenn. Þau einbeita hernaðarmætti sínum að Indó-Kyrrahafssvæðinu, þar sem þau telja „mestu ógnina“ vera.
Evrópa borgar. Evrópsku aðildarríki NATO juku útgjöld til varnarmála um 12,9% árið 2024 og 12,3% árið 2025. Fjárveitingar Þýskalands einar og sér jukust um 23,2% bara árið 2026. Heildarútgjöld evrópskra NATO-ríkja til varnarmála námu 638 milljörðum dala árið 2026 – það er meira en tvöföld útgjöld ársins 2020.
Það er verkalýðsstéttin sem borgar. Bretland skar niður þróunaraðstoð og fjárfestingar í orku- og samgöngumálum til að fjármagna varnarmál. Holland er að skerða atvinnuleysisbætur og hækka eftirlaunaaldur. Þýskaland herðir skilyrði fyrir velferðarréttindum og skerðir húsnæðis- og foreldrabætur. Velferðarkerfið sem Otto von Bismarck fann upp „verður hugsanlega aldrei samt aftur“.
Bandaríski vopnaiðnaðurinn græðir. Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, staðfesti að pantanir Evrópu og Kanada á bandarískum vopnum nemi samtals 300 milljörðum dala. Bandaríski vopnaiðnaðurinn er beinn ávinningshafi krísunnar.

Leikhúsið þjónar tilgangi
Opinbera sjónarspilið þar sem Trump gagnrýnir Zelenský, hótar að skera niður aðstoð og krefst „friðar“ er ekki raunveruleg stefnubreyting. Það er sölutæknin við að selja stefnuna um byrðaflutning.
Tilgangur gagnvart bandarískum almenningi: Þetta styrkir frásögnina um að Trump setji „Bandarikin fyrst“ og bindi enda á „endalausu stríðin“.
Tilgangur gagnvart evrópskum almenningi: Það skapar þá krísustemningu sem þarf til að réttlæta gríðarlegan niðurskurð í velferðarkerfunum og fordæmalausa aukningu hernaðarútgjalda.
Bandaríkin eru ekki að hverfa frá Úkraínu. Heldur neyða þau Evrópu til að borga fyrir stríðið og heyja það á meðan Bandaríkin hagnast á vopnasölu og beina hernaðarmætti sínum að Kína.
Hin raunverulega stefna
Bandaríkin heyja staðgengilsstríð gegn Rússlandi. Þau heyja staðgengilsstríð gegn Íran. Þau búa sig undir staðgengilsstríð gegn Kína. Þau neyða leppríki sín til að bera kostnaðinn. Þau neyða verkalýðsstétt Evrópu til að fórna félagslegum kerfum sínum, launum sínum og lífi sínu. Og þau hagnast á blóðbaðinu.
Þetta er ekki friður. Þetta er ekki „fráhvarf“. Þetta er verkaskipting. Bandaríkin berjast til síðasta Evrópubúa. Bandaríkin berjast til síðasta Úkraínumanns. Bandaríkin berjast til síðasta Taívana. Bandaríski vopnaiðnaðurinn hirðir gróðann.
Frásögnin um „fráhvarf“ er skálduð lygi. Verkaskiptingin er veruleikinn. Verkalýður heimsins greiðir gjaldið.
***
Eftiráathugasemd: Það kemur ekki á óvart að RÚV endurómar hástöfum þessa sömu sögu um að Trump sé hættur að styðja Úkraínu og hjálpi því óbeint Pútín, það sé „sárt að horfa upp á Trump velja nýjan samherja“, Bandaríkjamenn séu að „hjálpa Rússum í stríðinu með því að takmarka virkni Starlink og vara Úkraínumenn ekki við árásum Rússa“ (RÚV 14-15. okt). Annað slíkt höfum við heyrt áður, en Billy Bob sýndi hér skýrt hvaða hernaðartilgangi málflutningurinn þjónar í Evrópu: Tilgangurinn: þetta „skapar þá krísustemningu sem þarf til að réttlæta gríðarlegan niðurskurð í velferðarkerfunum og fordæmalausa aukningu hernaðarútgjalda.“ Einmitt það sem Trump kallar eftir. Ritsjórn
Grein þessi er sótt á fésbókarsíðu Billy Bob.









