Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum
—

Þórarinn Hjartarson
6. okt, ’26

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og fremst út á öryggismál. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segist hafa boðið honum að eigin frumkvæði en líklegra er að hann hafi sjálfur pantað heimsóknina til Íslands.

Heimsókn Rubios kemur í beinu framhaldi af nýgerðum samningi milli Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur, undirrituðum í höfuðstöðvum SÞ í New York þann 22. sept. Það er ekki hægt annað skoða Íslandsheimsóknina, og tilgang hennar, í samhengi við Grænlandssamninginn. Eftir Grænlandssamning, eftir yfirtöku á Venesúela og streðinu við kyrkja Kúbu, þ.e.a.s. þrjú lykillönd í Stærri Norðurameríku-strategíunni (Greater North America), í tollastríði við Kína (sem gengur illa) og miðju vopnastríði í Íran og Úkraínu má Rubio líklega ekki vera að því að standa í einhverjum kurteisisheimsóknum.

Um Grænlandssamninginn var nokkuð fjallað hérlendis, yfirleitt var það allt á jákvæum nótum, einkum í ljósi þess hve mikið var áður gert úr ósætti og klofningi milli Danmerkur/Evrópu og Bandaríkjanna varðandi Grænland. Enda hafði Donald Trump þá hótað að beita valdi ef nauðsynlegt væri til að innlima Grænland, einnig hafði hann birt mynd af kortinu umdeilda, þar sem bæði Grænland og Ísland voru sveipuð fánalitum Bandaríkjanna. 

Þorgerður Katrín fagnaði nýja Grænlandssamningnum eindregið og taldi hann lofa góðu um framhaldið. Samningurinn snýst að hennar sögn um að efla sameiginlegar varnir og öryggi á svæðinu. Þorgerður Katrín er herskár NATO-stríðsmaður (sem vill kaupa dróna af Úkraínu), svo varla boðar ánægja hennar neitt friðasamlegt.

Í Danörku segir Mette Frederiksen forsætisráðherra þetta sama, að þetta sé góður samningur: „samningurinn viðurkennir fullveldi og óskert yfirráðasvæði Grænlands og Danmerkur og viðheldur sjálfsákvörðunarrétti beggja þjóðanna“, segir hún.

Samkvæmt nýja samningnum á að opna að nýju herstöð í Narsarsuaq á suðvesturodda Grænlands og aðra glænýja stöð í Meistaravík norðarlega á austurströndinni – í viðbót við Pituffik-stöðina (áður Thule-herstöð) norðarlega á vesturströnd landsins sem er sú eina starfandi.

Þorsteinn Pálsson, samflokksmaður ráðherra, taldi samninginn líka góðan og hagstæðan Grænlandi/Danmörku, í grein í DV 24. september. Og hann þakkaði þetta ESB: „Aðild Danmerkur að Evrópusambandinu var sá pólitíski bakhjarl, sem Grænlandi og Danmörku var nauðsynlegur.“

Hagstæður samningur, sem virðir fullveldi?

Þá er best að skoða hversu hagstæður þessi samningur raunverulega er. Tryggði hann til dæmis fullveldið?

Sjálfur skrifaði Trump á X eftirfarandi um samninginn:  „it gives the United States permanent control over security, and all other needs, in Greenland, completely addressing ALL of our many U.S. concerns. There will be NO COST to the United States! At my direction, we worked with representatives of Denmark and Greenland to guarantee that the United States will FOREVER have the complete ability to do what is necessary in Greenland.“   Sjá hér: 

Með öðrum orðum segir Trump: Við fengum allt fyrir ekkert! Allt þetta endurspeglar dável samningaaðferð þessa forseta í samningum milli ríkja: að fara af stað með miklum ruddaskap og yfirgengilegum kröfum [um yfirtöku Grænlands..], til þess að fá að lokum þá útkomu sem hann kýs.

Danski friðarrannsókna-prófessorinn Jan Oberg skrifar að samningurinn tryggi allt annað en grænlenskt eða danskt fullveldi yfir eyjunni stóru:

Hann gengur öllu heldur út á að Danmörk og Grænland selja sig. Þó svo að samningurinn formlega varðveiti sjálfsákvörðunarrrétt Grænlands og fullveldi felur hann í sér alveg afgerandi skerðingu á athafnafrelsi, bæði í nútíð og óljósri framtíð.

Þetta varð mögulegt með áratuga nærri algjörri danskri undirgefni gagnvart Bandaríkjunum – í þeim mæli að ekki er hægt lengur að tala um sjálfstæða og fullvalda utanríkis- og öryggismálastefnu í Kaupmannahöfn.

Rauða danska blaðið Arbejderen skrifaði daginn sem samningurinn var undirritaður 22. sept um hvað væri innihald hans: 

Í grófum dráttum, nærri fullkomin nýlendusetning Grænlands undir bandaríska heimsveldið. Það hljómar dramatískt, en innihald samningsins gefur Bandaríkjunum svo víðtækar heimildir að vægari orð geta ekki lýst því sem gerðist í New York.  

Bandaríkin mega nú byggja tvo nýja flugvelli á Grænlandi, hermenn þeirra og tilheyrandi útbúnaður fá fullan hreyfanleika um alla eyjuna, aðeins NATO-ríki mega hafa þar nokkra hernaðarlega viðveru, og allar fjárfestingar í landinu sem ekki eru gerðar af meðlimum í NATO eða ESB, þurfa að fást samþykktar af „fastaráði“ hvar í Bandaríkin, Danmörk og Grænland sitja.

Velji Grænland einhvern tíma að verða óháð Danmörku verður það að sækja um NATO-aðild og virða þarf allar heimildir Bandaríkjanna – og svo gildir samningurinn til óákveðins tíma. 

Statsminister Mette Frederiksen, Grønlands regeringsleder Jens-Frederik Nielsen og USAs præsident Donald Trump under underskriftsceremoni i FN-bygningen i New York, tirsdag den 22. september 2026.. (Foto: Mads Claus Rasmussen/Ritzau Scanpix)

Í sjálfu samningsskjalinu segir orðrétt:

Í ljósi þeirrar ógnar sem stafar að þjóðaröryggi og allsherjarreglu vegna aukinnar viðleitni andstæðinga til að auka áhrif sín og yfirráð á Grænlandi eru aðilar sammála um að ríkjum eða fjárfestum frá ríki sem ekki er aðili að NATO, samstarfsríki NATO eða aðildarríki ESB skuli ekki heimilt að hafa yfirráð, umtalsverð áhrif … eða starfsemi á yfirráðasvæði Grænlands (þar með í Grænlenskri lögsögu).

Skjalið talar um „vaxandi hernaðarstarfsemi andstæðinga“. Ekki er tekið fram að með „andstæðingum“ sé átt við Kína og Rússland en það segir sig þó sjálft. Og merkilegt: samningurinn gildir „um alla framtíð“. Danmörk eða Grænland geta ekki sagt honum upp.  Arbejderen heldur áfram:

Samt virðist ekki gert ráð fyrir að samningurinn verði lagður í þjóðaratkvæðagreiðslu meðal Grænlendinga. Fullveldi Grænlands og mikið af sjálfsákvörunarrétti þess er fengið Bandaríkjunum, án þess að landsmenn séu yfir höfuð spurðir. Það er smánarlegt út yfir öll takmörk.

Bandaríkin fá sitt fram á Norðurheimskautssvæðinu. Það er algjörlega ljóst. Danmörk fellur flöt, og flatari en nokkru sinni. En þá er næsta sprning þessi: Hvað er það sem vakir fyrir Trump – öllu heldur – hvað vakir fyrir þeim sem stjórna strategískri stefnumörkun í BNA?

Til að svara því leita ég á slóðir sem kunna að koma á óvart: í viðtal á indversku hlaðvarpi: India & Global Left, viðtalsþátt sem nefnist „KJ Noh: Why Are the World’s Biggest Battles Happening Here?“

Grænland: hernaðaraðstaða og ásælni í auðlindir

Syrillinn er Jyotishman Mudiar og viðmælandinn KJ Noh, kunnur kóresk-bandarískur blaðamaður, stjórnmálagreinir, rithöfundur og kennari, sérfróður um geopólitík og hagfræði, einkum Asíu-Kyrrahafssvæðisins. Þeir ræða í viðtalinu um Grænland, Suður Kóreu og Jemen, sem hvert um sig hefur orðið mikilvægur vettvangur í baráttunni um heimsskipan framtíðarinnar. Hér látum við nægja samtal þeirra um  Grænland.

Jyotishman Mudiar: Ég held við gætum byrjað á nýjustu fréttum um að Bandaríkin hafi tryggt yfirtöku sína á öryggismálum Grænlands, í nýjum samningi. Við heyrum sérstaklega um tvennt í því sambandi. Annars vegar er það einkaréttur Bandaríkjanna til fjárfestinga og við vitum að Grænland er mikilvægt vegna sjaldgæfra jarðmálma, en það snetir Kína, með tilliti til stefnu Bandaríkjanna. Og svo heyrum við líka af uppbyggingu nýrra herstöðva á svæðinu fyrir Bandaríkin. Hvernig lítur þú á afleiðingar þess sem er að gerast á Grænlandi – t.d. í samhengi við yfirtöku á eignum Venesúela, kyrkingu Kúbu, tolla á Kína, stríð í Íran og áframhaldandi NATO-stríð í Úkraínu?

KJ Noh: Ég held að þetta sé meira af því sama, að því leyti að þetta er eins konar áframhaldandi ásælni í „fullvalda ríki“. En gerum okkur grein fyrir að Grænland er dönsk nýlenda. Danir gerðu Grænlendinga að nýlenduþjóð, þeir hafa stundað þjóðarmorð þar frá upphafi. Grænlenskar konur voru, þar til fyrir um ári síðan, neyddar í greindarvísitölupróf um það leyti sem þær fæddu börn. Og þetta próf var á erlendu tungumáli, dönsku, og ef þær féllu á þessu greindarvísitöluprófi voru börnin tekin af þeim. Þannig má sjá að þarna er þegar í gangi eins konar þjóðarmorðs- og nýlenduverkefni. Svo að það er verið að taka nýlenduna af Danmörku og af Grænlandi sjálfu.

Bandaríkin hafa haldið því fram að Grænland fái að halda fullveldi sínu. „Við erum bara að gera þetta vegna öryggisins,“ segja þeir. En eins og þú bentir á, vitum við ekki öll smáatriðin af því textinn hefur birst, ekki satt? Við höfum bara séð almennu yfirlýsingarnar. En eftir því sem við best vitum hafa Bandaríkin einkarétt á Grænlandi. Við vitum að bandarísk, áströlsk, kanadísk og bandarísk fyrirtæki hafa slefað yfir tilhugsuninni um að ná í auðlindir Grænlands af sjaldgæfum jarðmálmum eða mikilvægum steinefnum, en á því sviði er landið líklega meðal 10 efstu í heiminum. Hitt sem þessi samningur virðist kveða á um er að aðeins Bandaríkin megi hafa hernaðarviðveru á Grænlandi. Og þannig má sjá að þetta er mjög hernaðarleg og landfræðileg aðgerð til að ná stjórn á siglingaleiðum um Norðurskautssvæðið.

Rjúfa einokun Kína á sjaldgæfum jarðmálmum?

Eitt er að sjá hvort þeir geti notað Grænland til að rjúfa einokun Kína á sjaldgæfum jarðmálmum. Eins og við vitum vinnur Kína um 60% sjaldgæfra jarðmálma heimsins og vinnur úr um 90% þeirra. Úrvinnsluhlutinn er mikilvægasti flöskuhálsinn. Munum að það nútímasamfélag sem við búum í byggir á rafeindatækni, rafeindatækni sem þarf að hafa notagildi fyrir menn. Þessum rafstraumi, sem er geymdur og umbreytt á marga mismunandi vegu, þarf að breyta í notagildi fyrir menn. Og sú umbreyting í notagildi gerist aðeins með milligöngu sjaldgæfra jarðmálma. Með öðrum orðum, nútímasamfélag eins og við þekkjum það, nútímasamfélag með rafmagni og rafeindatækni, krefst sjaldgæfra jarðmálma og Kína hefur í raun einokun á þeim. Bandaríkin reyna að sjá hvort þau geti rofið þessa einokun, því þetta hefur gríðarlegar strategískar afleiðingar, ekki aðeins efnahagslega heldur einnig hernaðarlega. Meðalorrustuþota inniheldur um 900 pund af sjaldgæfum jarðmálmum. Aðrir hergagnapallar innihalda þúsundir punda af sjaldgæfum jarðmálmum. Og þegar Kína stöðvaði framboð Bandaríkjanna á sjaldgæfum jarðmálmum, sérstaklega seglum, olli það skelfingu í bandaríska varnariðnaðinum. Og nú eru þeir að reyna að finna einhverja aðra leið, einhverjar aðrar leiðir til að nálgast sjaldgæfa jarðmálma…

En eitt af lykilatriðunum sem þarf að skilja er að Vesturlönd hafa að mestu leyti afiðnvæðst og þegar þú afiðnvæðist, þá afiðnvæðistu ekki aðeins heldur missirðu líka færni, þannig að Vesturlönd hafa ekki vitsmunalega eða iðnaðarlega getu til að hreinsa/vinna sjaldgæfa jarðmálma á þann hátt sem Kína hefur verið að þróa síðastliðinn hálfa öld. Kína gerði þetta ekki á einni nóttu, það eyddi hálfri öld í að byggja upp innviði sína fyrir sjaldgæfa jarðmálma og stunda mikilvægar rannsóknir á hreinsun þeirra. Ef eitthvert réttlæti væri til staðar, hefðu verið veitt mörg Nóbelsverðlaun í vísindum til kínversku vísindamannanna sem byggðu upp þennan iðnað sjaldgæfra jarðmálma. En lykilatriðið sem þarf að skilja varðandi sjaldgæfa jarðmálma er að þeir eru mikilvægir fyrir nútímasamfélag, mikilvægir fyrir hernaðarnotkun, mikilvægir fyrir rafeindatækni. Þeir krefjast gríðarlega flókinna iðnaðarferla þar sem Kína stjórnar, ekki aðeins afkastagetunni heldur einnig einkaleyfunum.

Og sjaldgæfir jarðmálmar eru ekki sjaldgæfir í sjálfu sér. Það er bara að styrkleikinn er mjög, mjög dreifður. Til dæmis er algengasti sjaldgæfi jarðmálmurinn með um það bil sama styrk í jarðskorpunni og járn er í mannslíkamanum. Það er að segja, það er blóðrauði/hemoglóbín í blóði manna. Og tæknilega séð væri hægt að „eima“ lík þar til maður fengi nóg járn til að smíða bíl eða eitthvað úr málmi, úr járni eða stáli. En það er ótrúlega endurtekningasamt, kostnaðarsamt og erfitt ferli. Og það er það sem Bandaríkin segjast ætla að byggja upp á næstu árum. Ég sé það ekki gerast. Ég sé það í raun ekki gerast af þeirri einföldu ástæðu að einokunarauðmagn fjármagnavæðir, afiðnvæðir, afkunnáttuvæðir og hefur ekki þá getu. Svo, við sjáum til hvort það gerist. En það bendir vissulega á skelfinguna og örvæntinguna hjá valdastétt Vesturlanda og skilning þeirra á því að sjaldgæfir jarðmálmar eru raunverulega mikilvægur vogaraflspunktur í því hvort Vesturlönd geti viðhaldið alþjóðlegri heimsvaldastefnu sinni yfir restinni af heiminum.

Hernaðaruppbyggingin á norðurslóðum

Jyotishman Mudiar: Varðandi uppbyggingu hernaðarmannvirkja á Grænlandi, þá finnst mér áhugavert að hugsa um það, því á meðan sjaldgæfu jarðmálmarnir endurspegla samkeppni og stríð Bandaríkjanna við Kína, myndu herstöðvarnar minna á Rússland því þetta er á norðurslóðum og auðvitað stafar Bandaríkjunum ekki ógn af Bretlandi eða Frakklandi hvað það varðar. Og því er eina nafnið sem kemur upp í hugann Rússland og þar höfum við séð í gegnum staðgengilsstríð Bandaríkjanna við Rússland í Úkraínu

. Það var tími með leiðtogafundinum í Alaska og það eru hlutar fræðimanna sem segja að Trump vilji persónulega ekki halda áfram fjandskap og stríði við Rússland, það eru Lindsey Graham og Blumenal og annað fólk úr hergagnaiðnaðinum sem vill halda því áfram, og auðvitað Evrópa – þannig að í rauninni er Evrópa að niðurgreiða hergagnaiðnað Bandaríkjanna til að halda stríðinu í Úkraínu gangandi.

En ef maður hugsar um Bandaríkin og Donald Trump og Trump-stjórnina að auka hernaðarmannvirki á Grænlandi, þá mætti halda því fram að stefna Trump-stjórnarinnar og Bandaríkjanna gagnvart Rússlandi sé langt frá því að segja að við lítum ekki lengur á Rússland sem ógn og að eina ógnin okkar og óvinur sé Kína. Þá mætti halda því fram að Rússland sé jafn mikil ógn og að samband Bandaríkjanna og Rússlands sé ekki að þróast í jákvæða átt. Auðvitað, með komandi miðkjörfundarkosningum og ef demókratar komast til valda, þá færðu auðvitað mun auðveldari grundvöll til að halda Rússafóbíu óbreyttri. Svo hvað endurspeglar þetta varðandi samband Bandaríkjanna við Rússland?

KJ Noh: Jæja, það gefur til kynna að Bandaríkin séu enn staðfastlega heltekin af því að viðhalda heimsyfirráðum og eins og þú bendir á er það hernaðarlega mjög, mjög mikilvægt að Bandaríkin hafi herstöð á Grænlandi, Pituffik-herstöðina [áður þekkt sem Thule-herstöðin], og það er líka geimherstöð og hún gerir kleift að greina flugskeyti snemma og varpa upp geimvopnum. Hitt sem nærvera Bandaríkjanna á Grænlandi gerir er að hún ógnar kjarnorkuknúnum kafbátum Rússlands. Þeir eru staðsettir við Kólaskaga og með því að koma herstöðvum nálægt því er beinni ógn stefnt gegn kjarnorkufælingarmætti Rússlands auk þess sem það ógnar einnig ísbrjótaflota Rússlands. Þannig að þetta eru mjög, mjög árásargjarnar aðgerðir. Og það gefur til kynna að fjandskapur Bandaríkjanna, fjandskapur Vesturlanda við Rússland, hafi ekki minnkað þrátt fyrir yfirborðskenndar umræður. Krafa Bandaríkjanna og löngun þeirra til heimsyfirráða hefur ekki breyst og við sjáum að Grænland og öll Evrópa eru í rauninni að fylgja þessari áætlun. Þannig að á þeim nótum myndi ég ekki búast við neinni breytingu hvorki með demókrötum né repúblikönum. Ég held að ef við tökum yfirborðskennt slúður í burtu sjáum við að dagskráin er enn sú sama. Þeir vilja enn drottna yfir Rússlandi. Þeir vilja enn blóðmjólka það. Þeir vilja í rauninni enn breyta því í lénsríki Evrópu.

Og auðvitað tekur þetta aftur til stærri heildarmyndar sem við kennum við „2 plús 3 uppsetninguna“, það er að segja að það eru tvö „endurskoðunarveldi“ í heiminum [sem vilja „endurskoða“ heimsskipan], tveir stórir óvinir Bandaríkjanna, þ.e.a.s. Rússland og Kína, og svo eru þrír smærri óvinir sem eru Norður-Kórea, Íran og einhverjir aðilar sem ekki eru ríki og því minna mikilvægir. Og við værum fávís að halda að breyting á milli demókrata og repúblikana yrði eitthvað meira en stílbreyting í því efni.

Líklegt erindi Rubios til Íslands

Samkvæmt AFP fréttaveitunni vill Rubio „með heimsókninni gæta hagsmuna Bandaríkjanna á norðurslóðum, þar sem með aukinni samkeppni um yfirráð norðurslóða hafi Ísland endurheimt mikilvægi sitt í öryggismálum.“

Á meðan Bandaríkin reyna að ýta staðgengilsstríði sínu í Úkraínu meira yfir á hina evrópsku leppa sína (sem er allt annað en að þau vilji frið í Úkraínu, því það vilja þau ekki) ætla þau sér að vera sjálf í hernaðarlegu aðalhlutverki á Norðurslóðum. Á báðum svæðunum er þó stefna þeirra jafn herská, rétt eins og hún er það líka í Íran og Miðausturlöndum.

Herstöðvar á Grænlandi eru með lykilstaðsetningu fyrir langdrægan loftskeytahernað gegn Rússlandi, sem hefur sinn langdræga loftskeytabúnað fyrst og fremst við Kolaskaga.

Hernaðaruppbygging Bandaríkjanna á Norðurslóðum þjónar í fyrsta lagi því að umkringja Rússland (og „þreyta það og yfirteygja“) án þess að Bandaríkin lendi í beinum vopnabrýnum við Rússa líkt og í Úkraínu.

Í öðru lagi snúast herstöðvarnar á Grænlandi um að Bandaríkin geti stjórnað umferð um Norður-Íshafið og þaðan inn á Atlantshaf. Sá hluti dæmisins snýr vissulega að Rússlandi en þó enn meira að Kína. Marco Rubio hefur áður tjáð sig um þann þátt:

Norðurskautssvæðið er að verða lykilatriði fyrir sjóferðaleiðir… og það er algjörlega raunsætt að álíta að Kínverjar muni með tímanum… reyna að gera þar það sem þeir gerðu við Panamaskurðinn og koma sér upp aðstöu sem gæfi þeim aðgang að Norðurslóðum.

Þess vegna hafa Bandaríkin nú skaffað sér neitunarvald um það hvaða ríki fái að fjárfesta eða stunda atvinnurekstur á Grænlandi. Með endurnýjaðri Keflavíkurherstöð myndu þau bæta aðstöðu sína enn frekar til að ná stjórn á þessum siglingaleiðum, ekki síst leiðinni sitt hvoru megin við Ísland (GIUK-hliðið). Mér finnst því líklegt að frá Rubio komi nú, í samhengi við uppbygginguna á Grænlandi, óskir um breytingu í átt að fullri bandarískri herstöð í Keflavík.

Á Íslandi mun Rubio ekki ræða við aðra en mikla hernaðarsinna og hann þarf ekki að óttast pólitíska mótspyrnu. Pawel Bartoszek segir: „Ef niðurstaðan [af heimsókninni] er aukin áhersla á varnar- og öryggismál hér á norðurslóðum, mögulega aukin viðvera eða þátttaka Bandaríkjanna í því, þá myndi ég persónulega telja að það myndi vera fagnaðarefni.“ (RÚV 5. okt) Diljá Mist Einarsdóttir er þó ekki upprifin og segir að „vináttan við Bandaríkin hafi verið vanrækt.“

***

Eftiráathugasemd: Eftir blaðamannafund með Marco Rubio kl. 11 þriðjudag var Þorgerður Katrí spurð um breytingar á „varnarsvæðinu“ í Keflavík, skv. RÚV. Hún sagði að í Keflavík væri „viðvarandi herafli“.

„Utanríkisráðherra var spurð að því hvort breytingar á viðveru bandarískra hermanna á Íslandi hefðu verið ræddar á fundinum. Hún sagði að á landinu væri viðvarandi herafli frá Bandaríkjunum í tengslum við kafbátaleit og annað… og það var alveg augljóst að hans, ekki bara áhugi, heldur hans metnaður, liggur í því að efla samskipti, ekki bara milli Íslands og Bandaríkjanna, heldur líka ýta undir viðveru NATO hér á þessu svæði.“

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.