Úkraína átti aldrei séns
—

Andri Sigurðsson
14. sep, ’26

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára McCarthy, Hallgrími Helgasyni og öllu frjálslynda fólkinu svokallaða, þegar það verður að lokum að viðurkenna að það eru vesturlönd sem bera ábyrgðina á hundruð þúsunda mannslífa í Úkraínu. En vestrinu er sama á meðan það eru úkraínsk líf en ekki líf millistéttarinnar á vesturlöndum sem er fórnað. Úkraínufáninn sem þetta fólk hefur sveipað sig í verður kaldhæðnislegri táknmynd með hverjum deginum sem líður. Árið 1965 töldu enn yfir 60% Bandaríkjamanna að það hefðu ekki verið mistök að senda hermenn til Víetnam. Sú skoðun breyttist aðeins fáeinum árum seinna. Frjálslynda fólkið sem trúir svo heitt á yfirburði vesturlanda, mun fyrr en seinna verða að viðurkenna að hafa haft rangt fyrir sér.

Það er í þessu samhengi sem við eigum að hlusta á dr. Mörtu Havryshko, sem rannsakar stríð Rússlands og Úkraínu og starfar við Clark-háskóla í Bandaríkjunum, svara reiðilega fyrrum aðstoðarvarnarmálaráðherra Bretlands, Tobias Ellwood, þegar hann sagði í nýlegu viðtali að það sem Úkraína þyrfti mest á að halda núna væru fleiri vopn:

„Það var ekki réttlátt [innrás Rússa], en þetta er raunveruleikinn. Áframhaldandi þreytistríð við Rússland þýðir að við munum deyja. Úkraína verður jöfnuð við jörðu þar til ekkert verður eftir nema bílastæði. Við höfum misst 15 milljónir manna frá árinu 2014. Við höfum orðið fyrir þessu tapi. Ekki þið. Þið hvetjið til þessa stríðs vegna þess að þið viljið láta Rússlandi blæða á kostnað úkraínskra mannslífa. Það er okkur sem blæðir, ekki ykkar fólki. Sendið ykkar eigin hermenn ef þið viljið berjast við Rússland. Sendið hermennina ykkar, syni ykkar, og gerið líkpokana klára.“

Staðreyndin er að stríðið í Úkraínu er hluti af heimsvaldastríði Bandaríkjanna sem getur ekki sætt sig við fjölpólaheim þar sem Evrópa og Rússland lifa friðsamlega hlið við hlið og stunda viðskipti sem hagnast báðum löndum. Þess vegna var það markmið Bandaríkjanna að veikja Rússland og slíta efnahagsleg tengsl þess og Evrópu. Til þess að halda Evrópu niðri og Rússum frá. Hryðjuverkið gegn Nord Stream gasleiðslunni var beinlínis til þess að skera á þessi tengsl. Nýlega kom fram að það kostaði Evrópu tugi milljarða evra að skipta yfir í bandarískt gas sem þarf að flytja yfir hafið á skipum. Þá hafa þýskir bílaframleiðendur eins og Volkswagen gefið út að þeir séu í auknu mæli að hætta að framleiða bíla í skiptum fyrir vopn.

Ýmis gögn sýna ögrun Vesturlanda. Leyniskjöl sýna að vestrænir ráðamenn gáfu Sovétmönnum munnleg fyrirheit árið 1990 um að NATO færðist ekki „einn þumlung austar“, en bandalagið stækkaði síðar langt til austurs og lýsti því beinlínis yfir árið 2008 að Úkraína og Georgía myndu verða aðildarríki, þótt bandarískt sendiráð hefði varað við því að aðild Úkraínu væri rauð lína fyrir Rússa sem gæti leitt til íhlutunar („Nyet Means Nyet“), líkt og hægt er að lesa um í Wikileaks skjölunum. Vesturlönd vissu raunar allt um þessar rauðu línur en samt var haldið áfram. Spennan jókst enn frekar við úrsögn Bandaríkjanna úr ABM-samningnum, vopnavæðingu og þjálfun úkraínska hersins eftir 2014, ítrekun NATO árið 2021 um framtíðaraðild Úkraínu,
skipulagning vestrænna, einkum bandarískra, leyniþjóusta á valdaskiptum 2014, meðal annars samskipti bandarískra embættismanna um æskilega skipan nýrrar ríkisstjórnar (Nuland–Pyatt-samtalið), og vanefndir á Minsk II-samkomulaginu.

Margir stuðningsmenn Palestínu þekkja Norman Finkelstein sem hefur skrifað fjölda bóka um stríðsglæpi Ísraels. Finkelstein útskýrði strax 2022 hvernig Rússlandi hefði verið ögrað með áratugalangri útþenslu NATO til austurs, vopnasendingum og sameiginlegum heræfingum NATO og Úkraínu, sem hefðu í reynd gert landið að óformlegu aðildarríki bandalagsins. Hann vísaði í þessu samhengi til Johns Mearsheimer, Noams Chomsky, og Rússlandsfræðingsins Stephens F. Cohen, sem allir höfðu, hver með sínum hætti, varað við því að áframhaldandi útþensla NATO gæti leitt til alvarlegra átaka. Cohen hafði þegar árið 2014 spáð því að þessi stefna myndi leiða til stríðs, en Mearsheimer og Chomsky töldu öryggisáhyggjur Rússa og kröfu um hlutleysi Úkraínu eiga rétt á sér. Finkelstein gekk þó lengra og hélt því fram að Rússland hefði haft „sögulegan rétt“ til að grípa inn í. Mearsheimer og Chomsky fordæmdu innrásina engu að síður sem glæpsamlega, en Cohen lést árið 2020, áður en hún hófst.

Í dag segja fjölmiðlar okkur frá því að Úkraínu skorti tugi milljarða dollara strax til að fjármagna stríðið út árið. Stjórnmálamenn í Evrópu hafa fyrir löngu byrjað að undirbúa almenning undir enn frekari niðurskurð til þess að halda hakkavélinni gangandi.

Heimurinn er nefnilega ekki byggður upp þannig að við séum öll stödd í einhverjum átökum á milli góðs og ills, þar sem vesturlönd eru í góða liðinu og allir aðrir séu vondir. Pútin er ekki annar Hitler og utanríkisstefna Bandaríkjanna og heimsvaldastefna breytist lítið þó Trump sé forseti, Biden, eða Obama. Við lifum í heimi þar sem aðeins eitt heimsvalda- og hernaðarbandalag er til og það er bandalag NATO-ríkjanna leitt af Bandaríkjunum, auk Ísraels, Ástralíu, og Japans.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.