Bréf frá Pezeshkian  forseta til bandarísku þjóðarinnar
—

Ritstjórn
4. apr, ’26

Masoud Pezeshkian, forseti Írans, birti opið bréf til bandarísku þjóðarinnar á miðlinum X þann 1. apríl. Ósjálfrátt ber maður alvörutón þess og heimssýn saman við t.d. nýjustu orðsendingar Donalds Trump og Pete Hegseth hernaðarráðherra um að „sprengja Írani aftur á steinöld, þar sem þeir eiga heima“ og annað i þeim stíl. Líklega má í því sambandi  tala um „árekstur siðmenninga“.  

Ritstjórn

****

Í nafni Guðs, hins náðuga og hins miskunnsama

Til íbúa Bandaríkja Norður-Ameríku og allra þeirra sem, í flóði af rangfærslum og tilbúnum frásögnum, halda áfram að leita sannleikans og þrá betra líf:

Íran – með því nafni, með þeim einkennum og þessari sjálfsmynd – er ein elsta samfellda siðmenning mannkynssögunnar. Þrátt fyrir sögulega og landfræðilega yfirburði sína á ýmsum tímum hefur Íran aldrei í nútímasögu sinni kosið leið árásarstefnu, útþenslu, nýlendu- eða eða yfirráðastefnu.

Jafnvel eftir að hafa þolað hernám, innrásir og viðvarandi þrýsting frá heimsveldum – og þrátt fyrir að hafa hernaðarlega yfirburða yfir mörg nágrannaríki sín – hefur Íran aldrei hafið stríð. Samt sem áður hefur landið af festu og hrakið tilbaka þá sem á það hafa ráðist.

Íranska þjóðin ber engan fjandskap í garð annarra þjóða, þar á meðal íbúa Bandaríkjanna, Evrópu eða nágrannalanda. Jafnvel andspænis ítrekuðum erlendum afskiptum og þrýstingi í gegnum stolta sögu sína hafa Íranar ávallt gert skýran greinarmun á stjórnvöldum og þjóðunum sem þau stjórna. Þetta er djúpstæð meginregla í íranskri menningu og sameiginlegri vitund – ekki tímabundin pólitísk afstaða.

Af þessum sökum er það hvorki í samræmi við sögulegan veruleika né staðreyndir samtímans að lýsa Íran sem ógn. Slík ímynd er afurð pólitískra og efnahagslegra duttlunga valdhafa – þörfinni á að skapa óvin til að réttlæta þrýsting, viðhalda hernaðaryfirráðum, styðja við vopnaiðnaðinn og stjórna hernaðarlega mikilvægum mörkuðum. Í slíku umhverfi er ógnin fundin upp ef hún er ekki fyrir hendi.

Innan þessa sama ramma hafa Bandaríkin dregið saman stærstan hluta herafla síns, herstöðvar og hernaðargetu í kringum Íran – land sem, að minnsta kosti frá stofnun Bandaríkjanna, hefur aldrei hafið stríð.

Nýlegar árásir Bandaríkjamanna, sem gerðar voru frá einmitt þessum herstöðvum, hafa sýnt hversu ógnvænleg slík hernaðarviðvera er í raun. Eðlilega myndi ekkert land sem stendur frammi fyrir slíkum aðstæðum láta hjá líða að styrkja varnargetu sína. Það sem Íran hefur gert – og heldur áfram að gera – eru yfirvegaðar aðgerðir sem byggja á lögmætri sjálfsvörn, en eru á engan hátt upphaf stríðs eða árásar.

Samskipti Írans og Bandaríkjanna voru upphaflega ekki fjandsamleg og fyrstu samskipti írönsku og bandarísku þjóðarinnar einkenndust ekki af fjandskap eða spennu. Tímamótin urðu hins vegar með valdaráninu árið 1953 – ólöglegum afskiptum Bandaríkjamanna sem miðuðu að því að koma í veg fyrir þjóðnýtingu Írans á  eigin auðlindum. Það valdarán truflaði lýðræðisferlið í Íran, endurreisti einræði og sáði djúpstæðu vantrausti meðal Írana gagnvart stefnu Bandaríkjanna.

Þetta vantraust dýpkaði enn frekar með stuðningi Bandaríkjanna við stjórn keisarans, síðan stuðningi þeirra við Saddam Hussein í áþjánarstríðinu á níunda áratugnum, þá upptöku lengstu og víðtækustu viðskiptaþvingana í nútímasögu og að lokum, tilefnislausri hernaðarárás – tvisvar sinnum, í miðjum samningaviðræðum – gegn Íran.

Samt hefur allur þessi þrýstingur ekki náð að veikja Íran. Þvert á móti hefur landið styrkst á mörgum sviðum: læsi hefur þrefaldast – úr um 30 prósentum fyrir íslömsku byltinguna í yfir 90 prósent í dag; háskólamenntun hefur aukist verulega; umtalsverðar framfarir hafa orðið í nútímatækni; heilbrigðisþjónusta hefur batnað; og innviðir hafa þróast með hraða og umfangi sem á enga samsvörun í fortíðinni. Þetta eru mælanlegar, sýnilegar staðreyndir sem standa óháð skálduðum frásögnum.

Á sama tíma: það má ekki vanmeta eyðileggjandi og ómannúðleg áhrif viðskiptaþvingana, stríðs og árása á líf hinnar þrautseigu írönsku þjóðar. Áframhaldandi hernaðarárásir og nýlegar sprengjuárásir hafa djúpstæð áhrif á líf fólksins, viðhorf þess og sjónarmið. Það endurspeglar grundvallar mannlegan sannleik: þegar stríð veldur óbætanlegum skaða á lífi, heimilum, borgum og framtíð, mun fólk ekki standa á sama um þá sem bera ábyrgðina.

Þetta vekur upp grundvallarspurningu: Nákvæmlega hvaða hagsmunum bandarísku þjóðarinnar er í raun þjónað með þessu stríði? Var einhver raunveruleg ógn frá Íran sem réttlætti slíka hegðun? Þjónar fjöldamorð á saklausum börnum, eyðing lyfjaverksmiðja fyrir krabbameinsmeðferðir eða grobbhótanir um að sprengja landið „aftur á steinöld“ einhverjum tilgangi, öðrum en að skaða enn frekar alþjóðlega stöðu Bandaríkjanna?

Íran leitaði samninga, náði samkomulagi og stóð við allar sínar skuldbindingar. Ákvörðunin um að draga sig út úr því samkomulagi, stigmögnun í átt að átökum og tvær árásir í miðjum samningaviðræðum voru eyðileggjandi ákvarðanir teknar af bandarískum stjórnvöldum – ákvarðanir sem þjónuðu ranghugmyndum erlends árásaraðila.

Árásir á mikilvæga innviði Írans – þar á meðal orku- og iðnaðarmannvirki – beinast beint að írönsku þjóðinni. Auk þess að vera stríðsglæpur hafa slíkar aðgerðir afleiðingar sem ná langt út fyrir landamæri Írans. Þær skapa óstöðugleika, auka mannlegt og efnahagslegt böl og viðhalda vítahring spennu, sá fræjum gremju sem munu vara um ókomin ár. Þetta er ekki merki um styrk; það er merki um hernaðarlega ringulreið og vanhæfni til að leita sjálfbærra lausna.

Er það ekki líka svo að Bandaríkin hafi farið í þessa árás sem staðgengill Ísraels, undir áhrifum og stjórn þeirrar stjórnar? Er það ekki rétt að Ísrael, með því að búa til íranska ógn, leitast við að beina athygli heimsins frá eigin glæpum gegn Palestínumönnum? Er það ekki augljóst að Ísrael stefnir nú að því að berjast við Íran til síðasta bandaríska hermanns og síðasta bandaríska skattgreiðandadollars – og velta þannig byrðum eigin ranghugmynda yfir á Íran, yfir á svæðið [Miðausturlönd] og Bandaríkin sjálf – í leit að ólögmætum hagsmunum?

Er „Bandaríkin fyrst“ raunverulega meðal forgangsatriða bandarískra stjórnvalda í dag?

Ég hvet ykkur til að horfa fram hjá villuupplýsingavélinni – sem er óaðskiljanlegur hluti þessarar árásar – og tala þess í stað við þá sem hafa heimsótt Íran. Virðið fyrir ykkur þá mörgu og mikilhæfu írönsku innflytjendur – menntaða í Íran – sem nú kenna og stunda rannsóknir við virtustu háskóla heims, eða leggja sitt af mörkum til fullkomnustu tæknifyrirtækja á Vesturlöndum. Samræmist þessi veruleiki þeim rangfærslum sem ykkur er sagt frá Íran og þjóð þess?

Í dag stendur heimurinn á krossgötum. Að halda áfram á braut átaka er kostnaðarsamara og tilgangslausara en nokkru sinni fyrr. Valið milli átaka og samvinnu er bæði raunverulegt og afdrifaríkt; niðurstaða þess mun móta framtíð komandi kynslóða. Í gegnum árþúsunda stolta sögu sína hefur Íran upplifað marga árásaraðila. Allt sem eftir er af þeim eru blettuð nöfn í sögunni, á meðan Íran stendur – þrautseigt, virðulegt og stolt.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Nýjustu greinar

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Þórarinn Hjartarson

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram …

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.