Ríkisstjórnin sammála NATO um að efla hernaðargetu á norðurslóðum – heræfingar hafnar.
—

Ögmundur Jónasson
16. mar, ’26

Umhverfissinnar, hernaðarandstæðingar og félag skattgreiðenda svari:

  • Finnst umhverfissinnum að það eigi að ganga mótmælalaust að stórauka umferð hernaðartækja, herskipa og kafbáta og herþota á Norður-Atlantshafssvæðinu, sumt að staðaldri eins og eftirlitsflug NATO ríkja frá Íslandi og sumt tímabundið eins og heræfingar í Norður-Noregi og Finnlandi þar sem tugþúsundir hermanna taka þátt? Finnst samtökum umhverfissinna í lagi að mengun af völdum hernaðarumsvifa jafnt á friðartímum sem i ófriði séu undanskilin í allri tölfræði um mengun?
  • Finnst andstæðingum vígvæðingar að það eigi að ganga mótmælalaust þegar íslenskir ráðamenn dásama hernaðaruppbyggingu á norðurslóðum, á upplognum staðhæfingum um aukin umsvif «óvinarins» sem þó ekki sé alveg víst hver sé. Þannig vitnar Ríkisútvarpið í norskan herforingja, Steiro að nafni, sem « segist alla daga velta fyrir sér hvernig sigra megi í styrjöld. Aðalóvinurinn verði líklega Rússland og Steiro sendir þau skilaboð til Rússlandsforseta að NATO sé reiðubúið til átaka.» RÚV segir að norski herinn segi Rússa fylgjast grannt með æfingunni, líkt og búist hafi verið við. Þeir hafi boðað eigin eldflaugatilraunir nærri Barentshafi meðan á æfingunni stendur. Allt ber hér að sama brunni stigmögnun vígvæðingar. Auðvitað munu Rússar svara í sömu mynt.
  • Finnst Félagi skattgreiðenda það eigi að ganga mótmælalaust að ríkisstjórn Íslands láti skattfé okkar ganga í vígvæðingu og taki þar með undir með stríðsæsingafólki og talsmönnum hergagnaiðnaðarins. Hefur þetta komið til tals í félaginu?

Ríkisútvarpið segir svo frá:

Um það bil 32 þúsund hermenn frá fjórtán löndum taka þátt í, Cold Response, heræfingu Atlantshafsbandalagsins í norðanverðum Noregi og Finnlandi sem hófst 9. mars og stendur til þess 19.

Ætlunin er að láta reyna á bardagagetu hermannanna, um það bil hundrað herflugvéla og þrjátíu herskipa ríkja bandalagsins, við erfiðar aðstæður á norðurslóðum, nokkur hundruð kílómetra frá landamærunum að Rússlandi.

Þar geta skipst á fimbulkuldi og mildara vætuveður að sögn skipuleggjanda. Norski herinn segir Rússa fylgjast grannt með æfingunni, líkt og búist hafði verið við. Þeir hafa boðað eigin eldflaugatilraunir nærri Barentshafi meðan á æfingunni stendur.

Norskar orrustuþotur voru tvisvar sendar á loft fyrstu daga æfingarinnar, sem hófst 9. mars, til að hafa afskipti af rússneskum þotum undan norðurströnd Noregs. Ofurstinn Hans Martin Steiro rifjar upp að rússneskra flugvéla hafi á liðnum árum orðið vart þrjátíu til fjörutíu sinnum innan alþjóðlegrar lofthelgi við Noreg.

Heræfingin sé í anda þess að um raunverulegt stríðsástand væri að ræða og Steiro segist alla daga velta fyrir sér hvernig sigra megi í styrjöld. Aðalóvinurinn verði líklega Rússland og Steiro sendir þau skilaboð til Rússlandsforseta að NATÓ sé reiðubúið til átaka.

NATO-vinafélagið Varðberg segir frá hvað sé á döfinni á okkar slóðum:

(eftir að hafa sagt frá ofannefndum NATO-æfingum:)

Fram á vor verða fleiri norðuræfingar:

Northern Viking: Æfing í apríl á og umhverfis Ísland. Þar verður lögð áhersla á að tryggja flutningaleiðir á sjó og í lofti til Norður-Evrópu. Flotastjórn Bandaríkjanna í Evrópu fer með forystu í æfingunni.

Dynamic Mongoose: Kafbátavarnaæfing á norðurslóðum í apríl-maí undir forystu flotastjórnar NATO.»

Northern Forest: Landhersæfing undir forystu Finna í Rovajärvi í Norður- Finnlandi. Samkvæmt varnarsamningi Bandaríkjamanna og Finna er Rovajärvi sameiginlegt æfingasvæði landanna.

Greinin birtist fyrst á heimasíðu höfundar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.