Rússland á norðurslóðum: hver er ógnin?
—

Einar Ólafsson
14. feb, ’26

11. febrúar síðastliðinn var sagt frá því í Ríkisútvarpinu að framkvæmdastjóri NATO hefði þann sama dag kynnt „nýtt árveknisátak á norðurslóðum, Arctic Sentry“. Í fréttinni er haft eftir honum:„Engu að síður sé nauðsynlegt, í ljósi aukinna hernaðarumsvifa Rússlands og aukins áhuga Kína á norðurslóðum, að bandalagið láti meira til sín taka.“ Og í lok fréttarinnar:

Við metum það sem svo að það sé raunveruleg ógn. Héðan í frá, miðað við það sem við höfum séð hingað til, eru siglingaleiðir að opnast. Það mun aukast og því ríður á að við stöndum vörð um þetta veigamikla landsvæði NATO.

Ég deildi þessari frétt á Facebook með þessari athugasemd um lokaorðin: „Þessar siglingaleiðir eru meðfram strönd Rússlands. Kannski ekki skrítið að Rússar séu á varðbergi?“ Og varpaði jafnframt fram spurningunni „Hvar eru þessi auknu umsvif?“

Svo rakst ég á nýja skýrslu upplýsingaþjónustu danska hersins (Forsvarets Efterretningstjeneste (FE)), dagsetta 10. desember 2025. Hér er um að ræða árlegt áhættumat, Udsyn 2025, sem er kynnt á vef stofnunarinnar með fyrirsögninni „Trusselsbilledet mod Danmark er blevet mere alvorligt“ eða „Ógnir gagnvart Danmörku eru orðnar alvarlegri“.

Þar sem Danir eiga hagsmuna að gæta á Norður-Atlantshafinu með einhvers konar yfirráðum yfir nánast allri vesturströnd þess eða í það minnsta þess hluta sem heyrir undir norðurslóðir, þá þótti mér fróðlegt að líta á hvað upplýsingaþjónusta danska hersins hefði að segja um hina rússnesku ógn þar. Ég reikna með að mat hersins sé af praktískum ástæðum fremur hlutlægt en þó má ef til vill búast við tilhneigingu til að ýkja hættuna svolítið að tryggja sér fjármagn.

Áhættumat danska hersins

Skýrsla FE (Forsvarets Efterretningstjeneste) er 64 blaðsíður. Fyrir utan inngang um valdahlutföll á heimsvísu skiptist hún í kafla um Rússland, norðurslóðir (Arktis) og Kína og loks um hryðjuverk, óstöðugleika og fólksflutninga (migration). Hér verður einkum litið á kaflann um norðurslóðir.

Fremst í ritinu eru birtar meginniðurstöður. Þar segir um þetta:

Rússland, Kína og Bandaríkin hafa mismunandi hagsmuna að gæta á norðurslóðum og öll ríkin vilja auka hlut sinn á svæðinu. Bandaríkin hafa lagt umtalsvert meiri áherslu á öryggismál sín á norðurslóðum meðan Rússland heldur áfram að auka vígbúnað sinn og Kína vinnur áfram að því að auka getu sína til siglinga bæði á kafbátum og öðrum skipum um svæðið. Rússland hefur áfram mestan hernaðarstyrk á svæðinu en telur sér ögrað af Vesturlöndum. Rússland vill því í auknum mæli styrkja hag sinn með ógnandi hætti bæði pólitískt og hernaðarlega. Rússland er undir þrýstingi meðal annars vegna vestrænna refsiaðgerða og vill þess vegna styrkja samstarf við Kína á norðurslóðum og veita Kína aukinn aðgang að yfirráðasvæðum sínum þar.

Það er athyglisvert að þegar talað er um Bandaríkin er orðalagið „meiri áherslu á öryggismál“ (har øget sin sikkerhedspolitiske interesse) en Rússland „heldur áfram að auka vígbúnað sinn“ (fortsætter sin oprustning), þótt þess sé reyndar líka getið að Rússland telji „sér ögrað af Vesturlöndum“ (opfatter sig som udfordret af Vesten). En þess vegna vilji það „styrkja hag sinn með ógnandi hætti“ (i stigende grad hævde sine interesser med konfrontatorisk adfærd).

Í kaflanum um norðurslóðir er bent á að Rússland standi frammi fyrir áskorunum vegna aukinna hernaðarlegra umsvifa Vesturlanda á norðurslóðum. Aðild Svíþjóðar og Finnlands og áætlanir ríkja á svæðinu um aukinn vígbúnað muni gera Rússlandi erfiðara fyrir að viðhalda yfirburðum sínum þar. Bandaríkin hafi á undanförnum árum aukið hernaðarleg umsvif sín á svæðinu (bls. 32). Rússland óttist að landið geti ekki varist árás úr norðri. En þess vegna er vígbúnaður á norðurslóðum mikilvægur (bls. 35).

Þrátt fyrir stríðið í Úkraínu eru mikilvægustu þættir í hernaðarstyrk Rússlands á svæðinu að mestu óbreyttir. Norðurflotinn ræður yfir herskipum, bæði kafbátum og öðrum skipum en flugvélar er fljótlegt að flytja milli staða. Og það hafa verið byggðar upp herstöðvar meðfram ströndinni og á eyjum norðan við hana. En það er þó ósennilegt að Rússland geti, vegna hernaðarins í Úkraínu, komið í verk áætlunum sínum um frekari hernaðarlega uppbyggingu á þessu svæði á næstu þrem til fimm árum (bls. 35). Þá er þess getið að Kínverjar hafa aukið umsvif sín á svæðinu með norðurströndinni í samráði við Rússland (bls. 36).

En í skýrslunni er í rauninni ekki gert mikið úr hernaðarlegum umsvifum Rússlands á Norður-Atlantshafi. Sagt er að hafsvæðið milli Grænlands, Íslands, Færeyja og Bretlands, hið svokallað GIUK-hlið, sé mikilvægasta aðgangsleið fyrir Rússland til og frá norðurslóðum og gegni því lykilhlutverki í vopnuðum átökum við NATO. Þess vegna fylgist það vel með umsvifum NATO og kortleggi svæðið vel og noti til þess bæði herskip og borgaraleg skip, meðal annars fiskiskip, svo og önnur tæki svo sem flugvélar og gervitungl. „Rússland notar þessar upplýsingar til að uppfæra áætlanir sínar um hernaðarlegar aðgerðir á svæðinu.“ Og í aðdraganda vopnaðra átaka reyni það að hindra umferð herskipa NATO og vinna skemmdarverk eða ráðast á innviði neðansjávar (bls. 35).

Þótt þarna sé talað um áætlanir um hernaðarlegar aðgerðir á svæðinu er fátt að finna í skýrslunni um að hernaðarleg umsvif Rússlands á Norður-Atlantshafi séu að aukast verulega og að því leyti sem það er að gerast virðist það mat skýrsluhöfunda að þar sé frekar um að ræða viðbrögð við auknum umsvifum NATO og Vesturlanda en árásargirni Rússlands. Það á raunar við um allar norðurslóðirnar frá Grænlandi og austur með norðurströnd Rússlands. „Rússland mun reyna að hræða Vesturlönd frá að vera hernaðarlega til staðar nærri yfirráðasvæðum þess á norðurslóðum“ (bls. 38).

Þess er getið að þessi viðbrögð geti þó komið fram á ófyrirsjánlegan og árásargjarnan hátt. En skýrsluhöfundar benda þó ekki á þann möguleika að Vesturlönd hætti að ögra Rússlandi, enda er skýrslan á vegum upplýsingaþjónustu hersins en ekki hinna diplómatísku stofnana danska ríkisins, hvort sem það mundi svo sem breyta einhverju.

Upplýsingaþjónustan gaf út sérstaka skýrslu 3. október um mat á fjölþáttaógnum gagnvart Danmörku (Vurdering af den hybride trussel mod Danmark). Niðurstaðan er að þær ógnir séu allt frá því að vera litlar og upp í miklar. En ógn af hefðbundnum hernaðarárásum er engin, segir í skýrslunni: „Truslen fra regulære militære angreb mod Danmark er INGEN.“ (Leturbreyting í skýrslunni).

Albert Jónsson fyrrverandi sendiherra í Bandaríkjunum og Rússlandi og sérfræðingur í utanríkis- og öryggismálum fjallaði um þessa skýrslu á vefsíðu sinni þar sem hann sagði: „Þessi skýra niðurstaða kemur reyndar ekki á óvart og er í grunninn í takt við mat leyniþjónustustofnana annarra ríkja undanfarin ár, þar á meðal í Finnlands, Svíþjóðar og Noregs.“

Þetta er í samræmi við skoðun Alberts sjálfs sem tjáði sig svo í þættinum Spursmál á mbl.is 25. janúar (1:45:40 o.áfr.):

Kínverjar og Rússar eru ekki í Grænlandi, þeir eru hvergi nálægt Grænlandi einu sinni, þeir eru ekki einu sinni nálægt okkur lengur, Rússarnir, það hafa ekki sést hérna herskip eða flugvélar í nokkur ár, neins staðar nálægt okkur.

Hvað er Arctic Sentry?

Arctic Sentry hefur verið kynnt sem „árveknisaðgerð eða -átak“ í íslenskum fjölmiðlum og þýtt sem „Varðstöð á norðurslóðum“ eða „Vörður norðurslóða“. Framkvæmdastjóri NATO, Mark Rutte, kynnti þetta átak á blaðamannafundi 11. febrúar í aðdraganda fundar varnarmálaráðherra NATO sem hófst daginn eftir. Endurrit af fundinum má finna á vef NATO.

Framkvæmdastjórinn byrjaði á að fagna áætlun um að aðildarríkin auki framlag sitt til varnarmála upp í 5% af þjóðartekjum fyrir 2035. Hann tilkynnti að á ráðherrafundinum yrðu teknar ákvarðanir um fjárfestingar upp á tugi milljarða – gjaldmiðilinn nefndi hann ekki. En árið 2029 mundi Þýskaland eyða 152 milljörðum evra í varnarmál, það yrði tvöföldun á átta árum. Og hann lagði áherslu á það þyrfti meira, meiri hergagnaiðnað, meiri framleiðslu, meiri loftvarnir, meiri skotfæri, meiri tækni, meiri hraða.

Eftir viðkomu í Úkraínu og Eystrasaltinu vék hann að norðurslóðum sem yrðu stöðugt mikilvægari fyrir sameiginlegt öryggi „okkar“. Frammi fyrir auknum umsvifum Rússlands og vaxandi áhuga Kína lengst í norðri væri óhjákvæmilegt að gera meira og þess vegna hefði Norðurslóðaverðinum, Arctic Sentry, verði af hleypt af stað. Hann lýsti þessu átaki ekki náið en nefndi að með því yrðu samhæfðar æfingar eins og Arctic Endurance á Grænlandi, sem Danir standa fyrir, og Cold Response 2026, mikil heræfing sem er fyrirhuguð í Norður-Noregi í mars. Arctic Endurance varð að veruleika um miðjan janúar sem viðbragð við fyrirætlunum Donalds Trump um að taka yfir Grænland. Í því taka þátt tólf NATO-ríkji, en um er að ræða fáeina menn frá hverju þessara ríkja, þar á meðal eru tveir starfsmenn Landhelgisgæslu Íslands. En í reynd varð þetta hluti af umsvifum NATO á Norður-Atlantshafi þegar Trump dró hótanir sínar til baka eftir að hann gerði samkomulag við framkvæmdastjóra NATO um að tryggja aukin áhrif Bandaríkjanna. Ef marka má Reuters-fréttastofuna hófst undirbúningur að Arctic Sentry í janúar eftir fund þeirra í Davos í janúar.

Rutte útskýrði nánar að með Arctic Sentry væru öll umsvif á norðurslóðum sett undir eina stjórn hernaðarlegrar stjórnstöðvar NATO í Norfolk í Bandaríkjunum, Joint Force Command. Þetta samsvarar að einhverju leyti Baltic Sentry sem var sett á fót fyrir Eystrasaltssvæðið í janúar 2025 og Eastern Sentry sem sett á fót í september 2025 fyrir austanverða Evrópu.

Á vef stjórnarráðsins er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra: „Evrópa hefur nú þegar axlað stóraukna ábyrgð á sameiginlegum vörnum bandalagsins, og sterkari Evrópa þýðir sterkara Atlantshafsbandalag. Þá er mikilvægi norðurslóða fyrir öryggi og varnir bandalagsins ótvírætt og ánægjulegt að Atlantshafsbandalagið ætli að auka viðveru sína og eftirlit á svæðinu. Ísland gegnir þar lykilhlutverki og hefur margt fram að færa í stuðningi, getu og þekkingu.“

Og í viðtali við Morgunblaðið 12. febrúar boðaði hún aukna þátttöku Íslands í umsvifum NATO á Norður-Atlantshafinu.

Samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins 13. febrúar brást Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands við fréttunum um Arctic Sentry með því að segja að Rússar mundu grípa til „viðeigandi gagnaðgerða“ ef hervæða ætti Grænland og ógna Rússlandi. „Auðvitað, ef Grænland verður hervætt, ef þar verður byggður um hermáttur sem beinist að Rússlandi, munum við grípa til viðeigandi mótvægisaðgerða, þar á meðal hernaðar-tæknilegra ráðstafana. Engu að síður er meginafstaða okkar sú að norðurslóðirnar eigi að vera svæði friðar og samvinnu,“ sagði hann. Í viðtali við RIA Novosti bætti Lavrov því við að þessi nýjasta vending breytti í raun engu því það hefði lengi verið stefna NATO að breyta norðurslóðum í átakasvæði og að draga í efa yfirráð Rússlands yfir norðursiglingaleiðinni, sem liggur norður af Rússlandi.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Nýjustu greinar

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Þórarinn Hjartarson

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram …

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.