Óvinur ríkisins – Enemy of the state?
—

Ögmundur Jónasson
1. jan, ’26

Jacques Baud er svissneskur greinandi alþjóðastjórnmála sem Evrópusambandið hefur bannfært vegna skoðana hans, gert ókleift að ferðast innan ESB, lokað á bankareikninga hans og fryst eigur. Allt þetta vegna „rangra“ skoðana um Úkraínustríðið.

Jacques Baud, var opinber starfsmaður, gegndi yfirmannsstöðu í svissneska hernum og þekkir vel til í Úkraínu. Baud er búsettur í Brussel en getur sig þar hvergi hrært og meinað um allar lífsbjargir.

Vandinn sem Evrópa glímir við, segir Baud, eru vanhæfir stjórnendur, þá skorti þekkingu og dómgreind til þess að taka skynsamlegar og raunhæfar ákvarðanir. Það hafi þeir ekki gert í Úkraínustríðinu, þess vegna sé það að tapast. En þetta má greinilega ekki segja.

Ein bóka Jacques Baud um Úkraínustríðið

Nánar segir Baud að gengið hafi verið út frá því að Rússland myndi hreinlega hrynja á fyrstu mánuðum stríðsátaka og hefðu NATÓ ríkin í reynd sóst eftir átökum fyrir bragðið. Þetta hafi verið kolrangt mat og nú sitji vestræn ríki uppi með hundruða milljarða skuldbindingar um að pumpa inn í stríðsreksturinn og afleiðingar stríðsins í Úkraínu.

Svissneska ríkisstjórnin hafi viljað nálgast ESB en sé nú að vakna upp við þann vonda draum að almenningur sé að gerast fráhverfari slíku faðmlagi. Þessir tilburðir ESB til þess að hefta skoðanafrelsi sýni grímulaust valdakerfi að verki.

Hér að neðan fylgja tenglar á fjögur viðtöl:  fyrst er viðtal Nima R Alkhorsrid við Jacques Baud, síðan viðtöl við Scott Ritter, Glen Diesen og Pepe Escobar um þetta sama efni [bannfæring vegna skoðana].

Scott Ritter, er fyrrum stjórnandi í Bandaríkjaher, síðar eftirlitsmaður Sameinuðu þjóðanna, sem m.a. var falið að finna upplogin gereyðingarvopn í Írak. Munu augu hans þá hafa opnast fyrir misbeitingu valdsins. Um Ritter segir Wipipedia:

William Scott Ritter Jr. is an American former United States Marine Corps intelligence officer, former United Nations Special Commission weapons inspector, author, and commentator. Ritter was a junior military analyst during Operation Desert Storm.

Wikipedia komst fram úr því að segja hér heiðarlega frá. Svo er hins vegar ekki þegar kemur að norska fræiðmanninn Glen Diesen. Hann er norskur háskólakennari sem hefur getið sér gott orð fyrir rannsóknir sínar og framlag sitt til umræðu um alþjóðastjórnmál. Hann hefur verið gagnrýninn á stefnu BNA, NATÓ og Evrópusambandsins og er fyrir vikið sagður vera hallur undir Rússa enda sé hann tengdur norska stjórnmálaflokknum Fred og Rettferdighed. Ekki veit ég hvort þessi tengsl eru raunveruleg að örðu leyti en því að hann hafi verið fenginn til þess að tala á fundum sem sá flokkur hefur haft aðkomu að. Og sá flokkur lagðist vissulega gegn vopnasendingum til Úkraínu og hefur beitt sér í þágu friðsamlegra lausna. Bingó: Erindreki Rússa!!!

Pepe Escobar er víðkunnur brasilískur blaðamaður sem býr hér og þar, ekki síst í São Paulo, París, Bangkok eða Hong Kong.

Gilbert Doctorow er málsmetandi sérfræðingur í málefnum Rússlands til margra áratuga, bandarískur að uppruna en er búsettur í Belgíu, 

Ítarlegt viðtal við Jacques Baud: Col. Jacques Baud: Is the West Finally Waking Up?

Viðtal við Scott Ritterhttps://www.youtube.com/watch?v=uO2J48gU2qU (see from 20:17 minutes)

Viðtal við Glen Diesen https://www.youtube.com/watch?v=kYWm-oSVKLs (see from 15:45 minutes)

Viðtal við Pepe Escobar https://www.youtube.com/watch?v=r30E28A1ajg (see from 6:50 minutes)

Viðtal við Gilbert Doctorow: https://www.youtube.com/watch?v=LkcraVlIJsg

Greinin birtist áður á heimasíðu Ögmundar https://www.ogmundur.is þann 31. desember

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.