Viðskiptasamningur ESB er uppgjöf fyrir Bandaríkjunum
—

Thomas Fazi
29. júl, ’25

Í gær gengu Evrópusambandið og Bandaríkin frá viðskiptasamningi um 15% tolla á flestar útflutningsvörur ESB til Bandaríkjanna, samningi sem Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnaði sigri hrósandi og kallaði „þann stærsta allra“. Þótt samkomulagið hafi komið í veg fyrir enn harðari 30% tolla sem Washington hótaði, kalla margir í Evrópu þetta fullkomin ósigur, eða jafnvel skilyrðislausa uppgjöf fyrir Brussel.

Það er ekki erfitt að sjá hvers vegna. 15% tollurinn á vörur frá ESB sem fluttar eru til Bandaríkjanna er töluvert hærri en 10% tollurinn sem Brussel hafði vonast til að semja um. Á sama tíma, eins og Trump sjálfur stærði sig af, hefur ESB „opnað lönd sín með núll prósent tollum“ fyrir bandarískum útflutningi. Mikilvægast er þó að stál og ál frá ESB munu áfram bera drepandi 50% tolla þegar það er selt inn á bandarískan markað.

Þessi mismunur setur evrópska framleiðendur í verulega óhagstæða stöðu og hækkar kostnað  mikilvægra atvinnugreina á borð við bílaiðnaðinn, lyfjaiðnaðinn og aðra hátækniframleiðslu. Þær greinar mynda undirstöðuna í 1,97 billjóna dala viðskiptasamband ESB við Bandaríkin. Þessar svokölluð „jöfnunaraðgerðir“ eru greinilega í hag Bandaríkjanna og neyða evrópsk hagkerfi til að taka á sig hærri kostnað til þess eins að viðhalda aðgangi að bandarískum mörkuðum.

Verra er að ESB hefur skuldbundið sig til að fjárfesta 600 milljarði dala í Bandaríkjunum, til lengri tíma 750 milljarða dala í orkukaup, og til að auka innkaup á bandarískum hergögnum. Þetta gerir Evrópu enn háðari Bandaríkjunum þegar kemur að orku og vopnum.

Pólitísk viðbrögð í Evrópu hafa verið hörð og franski ráðherrann Benjamin Haddad kallaði samninginn „ósanngjarnan“. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, reyndi að kynna samninginn sem praktíska málamiðlun til að forðast allsherjar viðskiptastríð, en fáir létu sannfærast. Eins og stjórnmálaskýrandinn Arnaud Bertrand sagði á X: „Í skiptum fyrir allar þessar tilslakanir og tilfærslu auðæfa fær ESB … ekkert. Þetta líkist ekkert samningum á milli tveggja jafnstórra fullvelda. Það lítur frekar út eins og þeir ósanngjörnu samningar sem nýlenduveldin þröngvuðu upp á lönd á 19. öld, nema að í þetta sinn er það Evrópa sem er viðtakandinn.“

Nokkurn lærdóm má draga af þessu. Í fyrsta lagi ætti samkomulagið endanlega að mölva þá gamalgrónu goðsögn að ESB styrki aðildarríki sín með því að styrkja samningsstöðu þeirra. Í áratugi hefur Evrópubúum verið sagt að aðeins með því að sameinast í yfirþjóðlegan hóp gætu þeir haft nægilegan samtakamátt til að standa gegn alþjóðlegum stórveldum. Þetta var alltaf hentugur skáldskapur. Í raun er hið gagnstæða satt: ESB rýrir kerfisbundið getu einstakra þjóða til að bregðast á sveigjanlegan hátt við innri og ytri áskorunum út frá eigin efnahagslegu og pólitísku forgangsröðun. Stífur rammi evrópsku blokkarinnar – marglaga kerfi skirffinssku og ákvarðanatöku, langvarandi skortur á lýðræðislegri ábyrgð og kæfandi og yfirgengilegt regluverk  – eykur aðeins þessa veikleika.

Með því að læsa Evrópuþjóðirnar í yfirþjóðlega spennitreyju hefur Brussel svipt þær verkfærum fullveldis – eigin iðnaðarstefnu, sveigjanleika í viðskiptum og orkusjálfstæði – sem þarf til að verja eigin hagsmuni. Þar að auki hefur ESB alltaf verið hugmyndafræðilega og strategískt bundið stefnu atlantisma – og sífellt meiri samþætting þess við NATO á undanförnum árum hefur aðeins dýpkað undirgefni Evrópu við Bandaríkin. Þessi aðlögun hefur orðið vandræðalega augljós undir stjórn von der Leyen.

Þar af leiðandi hefur ESB, langt frá því að gera Evrópu „sterkari saman“, valdið fordæmalausu tapi á áhrifum og sjálfstæði. Sambandið líkist nú einmitt því sem það átti að koma í veg fyrir: safni lénsríkja sem eru ófær um að móta sjálfstæða stefnu og hafa í auknu mæli verið smættuð niður í hlutverk efnahagslegs verndarsvæðis Washingtons.

Trump hefur ekki algerlega rangt fyrir sér þegar hann sakar ESB um að stunda ósanngjarna viðskiptahætti. Á síðustu tveimur áratugum hefur Brussel tekið upp ofur-verslunarsinnað, útflutningsdrifið hagvaxtarlíkan sem bælir kerfisbundið niður innlenda eftirspurn til að efla verðsamkeppni á heimsvísu en heldur innflutningi niðri. Með öðrum orðum hefur það stöðugt forgangsraðað viðskiptaafgangi fram yfir innri efnahagsþróun.

Þetta kerfi hefur kostað sitt. Evrópskir borgarar hafa greitt fyrir með stöðnun í lífskjörum, ótryggri atvinnu og langvarandi vanfjármögnun á opinberri þjónustu. Á sama tíma hafa viðskiptaríki ESB – einkum Bandaríkin – verið neydd til að taka á sig sívaxandi útflutningsafgang Evrópu, sem nærir sífellt ójafnari efnahagstengsl á alþjóðavísu.

Að finna nýtt jafnvægi var sannarlega löngu tímabært. En þessi samningur er versta mögulega tegund þesskonar breytinga. Í stað þess að nota tækifærið til að endurhugsa gallaða efnahagsstefnu – með því að hækka laun í Evrópu, auka innlenda eftirspurn og sætta sig við að útflutningur yrði ekki eins samkeppnishæfur í kjölfarið – hefur ESB með tvöföldu afli varið sama kerfi og hefur holað efnahagslega viðnámsgetu sambandsins að innan. Í stað þess að stefna að heilbrigðara hagkerfi sem er drifið áfram af heilbrigðari heimamarkaðsdrifinni hagvaxtarstefnu hefur Brussel kosið að viðhalda útflutningsdrifinni hugmyndafræði sinni hvað sem það kostar. Það þýðir að nú verður Evrópa berskjölduð fyrir auknum innflutningi, með vaxandi af-iðnvæðingu og hún verður enn háðari erlendum mörkuðum.

Greinin er skrifuð af fjölmiðlamanninum Thomas Fazi birtist fyrst á Unheard.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.