Að skreyta sig með fölskum fjöðrum: Hvernig einkaaðilar stálu eignum og árangri almennings í gegnum kaupfélögin
—

Jón Karl Stefánsson
22. jún, ’25

Þeir sem bjuggu á Hornafirði, eins og svo mörgum öðrum bæjum á Íslandi, undir lok níunda og við byrjun tíunda áratugarins voru í samfélagi sem iðaði af lífi. Atvinnulífið blómstraði; þar voru framleiddar mjólkurvörur, rekin var kjötvinnsla og sláturhús, þrjár kjörbúðir, bakarí, flutningaþjónusta, skrifstofur, verbúðir, rútuþjónusta, mötuneyti og margt fleira. Atvinnuleysi var óþekkt hugtak. Bærinn var menningarlega mjög virkur miðað við stærð: böll og útisamkomur, billjardsalir, vídeóleigur og pöbbar, bíó, tónlistarskóli sem iðaði af lífi, íþróttasamtök og nóg af rými sem var hægt að nota fyrir list og áhugamál. Þetta var ágætisbær fyrir ungt fólk.

KASK, helsti atvinnurekandinn á þessum árum, var samvinnufélag. Í stað hlutabréfa áttu fjölmargir búsettir á svæðinu aðild að félaginu, og eignarhlutur þeirra byggðist á viðskiptum og þátttöku. Í raun voru allir þessir aðilar eigendur KASK. Hagnaður, ef einhver var, gat skilað sér í formi viðskiptahlutdeildar, en afkoman dreifðist mjög vel út í samfélagið, ekki síst í formi launa fyrir þau fjöldamörgu störf sem sköpuðust á stðanum. Allir aðilar höfðu atkvæðisrétt á aðalfundum, venjulega eitt atkvæði á hvern mann.

En Kaupfélagið hafði innbyggða galla sem opnuðu fyrir einhverja umfangsmestu eignatilfærslu í sögu Íslands. Kaupfélagsstjórar höfðu gríðarmikil völd og aðgang að innri upplýsingum, sem sumir nýttu sér til eigin ábáta. Sambandið var vitlaus hugmynd sem festi spillingu og stéttskiptingu í sessi og festi spillinguna í miðstýringu sem hefði aldrei átt að vera til.

Þetta kom sterkt fram á Hornafirði. Sonur fyrrverandi kaupfélagsstjóra á Hornafirði var einn helsti höfundur kvótakerfisins og áhrifamikill í einkavæðingarferlinu sem fylgdi í kjölfarið. Kvótakerfið var innleitt árið 1984 og lögfest árið 1990. Um svipað leyti hófust þær stóru breytingar sem leiddu til þess þjóðfélags sem við sjáum í dag.

Ránið hefst

Kaupfélag Austur Skaftafellssýslu var stofnað árið 1919 af bændum í sýslunni með það að markmiði að efla verslun og atvinnulíf í byggðinni. Félagið opnaði sína fyrstu verslun árið 1920. Þessi hópur sveitafólks og sjómanna náði með tímanum að byggja upp öfluga atvinnustarfsemi og bærinn naut góðs af; allt samfélagið. Á áttunda áratugnum hóf KASK að fjárfesta í sjávarútvegi (sjá nánar hér). Krúndjásn þess ævintýris var frystihúsið sem byggt var upp á þessum tíma og varð stærsti einstaki atvinnurekandi Hornafjarðar. KASK byggði margt fleira í steypu, í raun öll helstu framleiðslutæki svæðisins. Félagsmenn KASK höfðu staðið sig vel og byggt upp samfélagið.

Þetta breyttist allt á örskömmum tíma. Það voru þessi þrjú atriði; annars vegar lögin sem heimiluðu framsal kvóta (þ.e. útgerðir gátu selt, leigt, eða keypt kvóta) árið 1990, og svo einkavæðingaorgía Viðeyjarstjórnarinnar sem kom 1991, ásamt gegndarlausum áróðri Eimreiðinga á borð við Hrafn Gunnlaugsson. Svo var það spillingarmöguleikinn sem gerði m.a. bókhaldið illsýnilegt fyrir almennum félagsmönnum. Beðið var með þar til allt var komið í óefni.

Innanbúðarmenn í kaupfélaginu komu að í öllum tilfellum. Kvótinn rann frá litlum útgerðum og svo samvinnufélögum á borð við KASK, til fjársterkra kvótagreifa, smátt og smátt. Sótsvartur almúginn vissi ekki endilega hvað var að gerast. Árið 1992 hét frystihúsið ekki lengur KASK, heldur Borgey hf. Einkafyrirtæki hafði tekið að sér sjávarútvegsrekstur KASK. Fleiri fyrirtæki voru á svæðinu með útveg. En þessi tóku að „sameinast“. Borgey hf. sameinaðist þannig við Þinganes ehf., svo við Skinney hf., og fleiri fyrirtæki. Að lokum varð Skinney-Þinganes hf. nærri allsrátt. Þegar þessu lauk voru eignirnar komnar í einkahendur.

Með nýfrjálshyggju Viðeyjarstjórnarinnar varð allsherjar hugarfars- og siðferðisbreyting. Samfélagshagsmunir viku fyrir hreinum gróðahagsmunum, markaðshagsmunum. Græðgi varð guð. Það að framleiðslutækin væru eign samfélagsins í gegnum kaupfélagið skyldi heyra sögunni til. Þau skyldu enda í einkaeign. Að fyrirtæki hefðu það markmið að skapa atvinnu í heimabyggð, að sýna félagslega ábyrgð og að gera líf fólks betra, það hvarf fyrir „réttinum“ til að græða. Dreifing hagnaðarins í kringum fjölbreytt störf varð ekki í forgangi.

Skinney-Þinganes er nú stærsta fyrirtæki Hornafjarðar. Þar vinna um 300 manns, sem þýðir að um þriðjungur starfandi íbúa sveitarfélagsins starfar í þessu eina félagi. Fyrirtækið á fjölda dótturfélaga: Selbakka ehf., Horn raf og vélaverkstæði ehf., eignarhaldsfélagið Þingey ehf., Útgerðarfélagið Vigur ehf., Hvanney ehf. og Marine PetTreats ehf. Skinney-Þinganes á einnig hluti í öðrum félögum: Iceland Pelagic ehf., StorMar ehf., Laugafiski ehf., Kaldvík AS og Flateyjarbúinu ehf. Samkvæmt efnahagsreikningi Skinney-Þinganess námu heildareignir þess 50,6 milljörðum króna árið 2023, og eigið fé var 18,3 milljarðar króna. Langstærstu eigendur Skinney-Þinganess eru bræðurnir Ingvaldur og Gunnar Ásgeirssynir. Ingvaldur á yfir 17% hlut, Gunnar 14,5%, og félag þeirra, Tvísker ehf. á 22,1% hlut. Einstaklingar eiga nú það sem áður var í sameign.

Lífið sem áður einkenndi þorpin hefur dvínað eða horfið með þessari þróun. Í bæjum eins og Hornafirði eru hvorki bakarí, mjólkurbú né kjötvinnsla lengur. Kjörbúðirnar eru horfnar, og sveitaböllin nærri liðin tíð. Það sem eftir stendur á Höfn er Nettóbúð sem fáir hrósa, sundlaug og íþróttasalur sem Skinney-Þinganes lét reisa.

SFS reynir að stela heiðrinum

Þetta er dæmi um þann árangur sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi kynntu á dögunum með ósvífnum auglýsingaherferðum, sem þó virðast hafa þveröfug áhrif. Allt það sem þeir minnast þarna á var byggt upp af alþýðunni, annars vegar, og svo af samvinnufyrirtækjunum, hins vegar. Auðvaldið byggði ekkert upp, heldur hirti það sem til var og hreykir sér nú af.

Þjóðin er að vakna. Hún sér í gegn um skrumið. Fólk áttar sig nú á því að með samstilltu baktjaldamakki var eignum þess stolið, í skjóli vanrækslu, í skugga daglegra skyldna. En skilja menn hvað þarf að gera? Hafa áratugir af stanslausum áróðri náð að hræða fólk frá því að skilja að okkar sterkasta vopn er nú sem áður samstaðan og samvinnan? Ef svo er, þá er lítil von. En takist okkur að sjá í gegnum áróðurinn, þá opnast möguleikinn á því að byggðir landsins verði á ný lýðræðislegar, þar sem ávöxtum erfiðis vinnandi fólks rennur í stærra, jafnvel að öllu leiti, í eitthvað sem kemur öllum til góða. Við getum þetta ef við viljum.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.