Þýski kanslarinn setur ofan í við Ísrael – er eitthvað að marka Merz?
—

Einar Ólafsson
28. maí, ’25
23 February 2025, Berlin: Friedrich Merz (CDU), party chairman and candidate for chancellor, stands on stage in the Konrad Adenauer House after the forecast for the result of the Bundestag election. The early election to the 21st German Bundestag took place on Sunday. (Replay in improved quality) Photo: Michael Kappeler/dpa (Photo by Michael Kappeler/picture alliance via Getty Images)

Friedrich Merz, sem tók við sem kanslari Þýskalands 6. maí 2025, hefur verið meðal áköfustu stuðningsmanna Ísraels og jafnvel slegið við forvera sínum, Olaf Shultz.

Því kom mér nokkuð á óvart frétt sem ég rakst á  26. maí um að hann hefði í viðtali við þýska fjölmiðla sett fram tiltölulega skýra gagnrýni á aðgerðir Ísraels. Hann sagði að afleiðingar þeirra fyrir almenna borgara verði ekki lengur réttlættar með baráttunni gegn hryðjuverkum. „Þegar farið er yfir landamæri, þegar alþjóðleg mannúðarlög eru virkilega brotin, þá verður Þýskaland líka, þá verður þýski kanslarinn líka að segja eitthvað um það,“ sagði hann. Að því geti komið að jafnvel bestu vinir Ísraels geti ekki sætt sig við framferði þess og hann bætti við að hann skildi satt að segja ekki tilganginn með því sem ísraelski herinn er nú að gera á Gasa, „Verstehe das Ziel nicht mehr“.

Og samkvæmt frétt þýsku fréttastofunnar Dpa (Deutsche Presse-Agentur) var Merz spurður á fréttamannafundi 27. maí í Turku í Finnlandi, þar sem hann var í heimsókn, um möguleika á að Þýskaland muni stöðva vopnasendingar til Ísraels að það væri „málefni innra samráðs í ríkisstjórn Þýskalands“ sem ekki væri enn lokið. Hann útilokar það sem sagt ekki.

Merz besti vinur Ísraels

Þetta stingur svolítið í stúf við fyrri ummæli kanslarans. Þingkosningar voru í Þýskalandi 23. febrúar þar sem kristilegir demókratar fengu mest fylgi og allt benti þá til að formaður flokksins Friedrich Merz yrði næsti kanslari. Innan viku eftir kosningarnar sagði Merz á blaðamannafundi að hann mundi leita allra leiða til að Benjamin Netanyahu gæti heimsótt Þýskaland þrátt fyrir handtökuskipun Alþjóðaglæpadómstólsins. „Mér finnst það algerlega fáránleg hugmynd að forsætisráðherra Ísraels geti ekki heimsótt Sambandslýðveldið Þýskaland,“ sagði hann.

Þessari yfirlýsingu var vissulega ekki tekið vel af öðrum flokkum á þinginu. Talsmaður Sósíaldemókrataflokksins, sem nú hefur myndað stjórn með kristilegum demókrötum, Nils Schmid, sagði að flokkurinn virði allar ákvarðanir dómstólsins án undantekninga en bætti við að ríkisstjórnin þyrfti að finna heppilegar leiðir til að viðhalda nánum samskiptum við Ísrael í framtíðinni og talaði þar á svipuðum nótum og talsmaður ríkisstjórnar Olaf Schultz, Steffen Hebestreit, eftir að dómstóllinn gaf út handtökuskipunina í nóvember, en hann sagði að dómstóllinn væri mikilvægur og stjórnin styddi hann „en ég verð að segja að ég á erfitt með að ímynda mér að við stæðum að handtökum í Þýskalandi á þessum grundvelli“.

Ísrael hefur fengið næstum þriðjung þess vígbúnaðar, sem það framleiðir ekki sjálft, frá Þýskalandi (sjá nánar greinina Siðrof Evrópu – samstarf NATO og ESB við Ísrael) en stjórn Olaf Schultz mun eitthvað hafa dregið út vopnasendingum. Merz hefur gagnrýnt þetta og lofaði eftir kosningarnar að stjórn hans mundi afnema allar slíkar takmarkanir.

Forsetar Þýskalands og Ísraels bestu vinir

En það er ekki bara kanslarinn sem hefur verið í góðu sambandi við Ísrael fram að þessu, þar hefur forsetinn Frank-Walter Steinmeier ekki látið sitt eftir liggja.

Í desember síðastliðnum var tilkynnt að Þýskaland hefði hætt við sameiginlegan sýningarskála Þýskalands og Ísraels á bókamessunni í Frankfurt 2025 sem var fyrirhugaður til að fagna 60 ára stjórnmálatengslum landanna, en þau hófust  12. maí 1965.

En 12. maí síðastliðinn kom forseti Ísraels Isaac Herzog ásamt konu sinni til Berlínar þar sem forseti Þýskalands tók á móti honum, en þeir munu vera góðir vinir. Daginn eftir fylgdu svo þýsku forsetahjónin þeim ísraelsku til Tel Aviv og þaðan til Jerúsalem þar sem Steinmeier hitti Netanyahu. Í tilkynningu þýska forsetaembættisins segir að Þýskaland standi staðfastlega með Ísrael og viðurkenni rétt þess til sjálfsvarnar en kalli um leið eftir að alþjóðalög séu virt. Forsetinn leggi líka áherslu á að öllum gíslum verði sleppt sem og að almennir borgarar á Gasa njóti verndar og þeim verði tryggður aðgangur að mannúðaraðstoð. Þetta er nánast staðlaður texti. Spurning hvort hann sé eitthvað að breytast.

Og líka Usula von der Leyen?

Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem hefur fram að þessu verið spör á gagnrýni á Ísrael, hefur líka látið aðeins í sér heyra. Samkvæmt frétt Dpa 27. maí sagði hún að hertar aðgerðir Ísraels séu óréttlætanlegar samkvæmt alþjóðalögum og árásirnar á Gasa séu brot á grundvallarreglum mannkyns.

Hún bætti auðvitað við að framkvæmdastjórn ESB hefði alltaf stutt – og muni áfram styðja – rétt Ísraels til öryggis og sjálfsvarnar en óhófleg valdbeiting gegn almennum borgurum verði ekki réttlætt samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum og þessar hertu aðgerðir séu hryllilegar og þær verði að stöðva umsvifalaust.

En þetta eru auðvitað aðeins orð og hvergi minnst á að ESB íhugi aðgerðir eins og viðskiptaþvinganir, en tæplega 30% vöruviðskipta Ísraels voru við ESB árið 2022.

Mynd yfir greininni er af Friedrich Merz Þýskalandskanslara

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Nýjustu greinar

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.