Siðrof Evrópu – samstarf NATO og ESB við Ísrael
—

Einar Ólafsson
9. maí, ’25

Það þarf ekki að hafa mörg orð um ástandið á Gasa nú eða þá skelfilegu glæpi sem Ísraelsríki er að fremja þar. Um það vita allir. Það ættu líka allir að vera sammála um að í siðmenntuðum heimi myndu öll önnur ríki taka höndum saman um að reyna að stöðva þetta þjóðarmorð. Ef slíkt er ekki í boði er eðlilegt að spyrja um þau lönd sem einhvers mega sín gagnvart Ísrael.

Þjóðarleiðtogar rifja upp glæpaverk fortíðar, þ.e.a.s. sum glæpaverk fortíðar, og tala um hversu hörmulegt það sé að ekki hafi tekist að stöðva þau. Þrungnir alvöru koma þeir saman við hlið Auschwitz og segja: Aldrei aftur! Bill Clinton fyrrum forseti Bandaríkjanna hefur sagt að eitt af því sem hann sjái mest eftir sé að hafa ekki beitt sér meir til að stöðva fjöldamorðin í Rúanda árið 1994.

Raunin er sú að það var ekki hægt að stöðva helförina fyrr en eftir fimm ára heimsstyrjöld og Bandaríkjastjórn gat sáralítið gert til að stöðva fjöldamorðin í Rúanda, hefði í mesta lagi getað dregið eitthvað úr þeim.

Hér er hins vegar um allt annað að ræða. Bandaríkin eru helsta stuðningsríki Ísraels og styðja aðgerðir þess á Gasa í verki og fullum fetum þrátt fyrir einstaka meiningarlaus umvöndunarorð. Bandaríkin taka í raun þátt í þessu þjóðarmorði.

Glæpaverk Ísraels mæta andstöðu margra ríkja víða um heim – utan Norður-Ameríku og Evrópu. Flest þessi ríki hafa haft lítil samskipti við Ísrael og raddir þeirra mega sín lítils. Þau lönd sem helst  mega sín einhvers gagnvart Ísrael og Bandaríkjunum eru þau sem eiga aðild að Evrópusambandinu og NATO.

NATO og Ísrael

NATO er að vísu undir forystu Bandaríkjanna, en það er þó bara af eitt af 32 aðildarríkjum, öll hin eru í Evrópu að undanskildum Kanada og Tyrklandi. NATO hefur lengi haft mikið samstarf á ýmsum sviðum við Ísrael, sem hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Og það eru nær eingöngu NATO-ríki sem sjá Ísrael fyrir vopnum en tvö skera sig reyndar úr, Bandaríkin og Þýskaland. Samkvæmt grein eftir tvo sérfræðinga hjá sænsku friðarrannsóknarstofnuninni SIPRI 10. apríl 2025 var 99% af hergagnainnflutningi Ísraels á árunum 2020 til 2024 frá þessum tveimur löndum, 66% frá Bandaríkjunum og 33% frá Þýskalandi. Ísrael flytur reyndar líka út mikið af vopnum til allmargra landa víða um heim, samkvæmt sömu grein var Ísrael á þessu árabili í áttunda sæti yfir þau ríki sem flytja út hergögn og fór 27% af þeim útflutningi til Evrópu.

Ísrael hefur frá árinu 2016 haft skrifstofu og þar með sendifulltrúa í höfuðstöðvum NATO í Brussel, reyndar ásamt fleiri ríkjum utan NATO. 11.-12 október 2023 var haldinn fundur varnarmálaráðherra NATO-ríkja og ávarpaði varnarmálaráðherra Ísraels, Yoav Gallant, fundinn. Á fundinum fordæmdi  Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri NATO hryðjuverkaárás Hamas harðlega og bætti við: „Ísrael stendur ekki eitt.“ Aðrir fundarmenn tóku undir með honum og viðurkenndu rétt Ísraels til sjálfsvarnar og lofuðu stuðningi. Ekki er að sjá að neitt hafi breyst í þeim efnum. Í yfirlýsingu leiðtogafundar NATO í Washington í júlí 2024 var ekki minnst einu orði á Ísrael, Palestínu eða Gasa. Í september næstkomandi eru fyrirhugaðar heræfingar á vegum NATO í Búlgaríu og stóð til að Ísrael tæki þátt í þeim. Það er þó óvíst hvort af því verði þar sem Tyrkland hefur sett sig upp á móti því. Tyrkland og Ísrael hafa um alllangt skeið eldað grátt silfur, en það hefur þó lítið að gera í raun með Palestínumenn eða íbúa á Gasa.

Viðskipti og samstarf ESB og Ísraels

Evrópusambandið fordæmdi harðlega „ofbeldisfullar og handahófskenndar árásir Hamas á Ísrael 7. október 2023“, lýsti yfir samstöðu sinni með Ísrael og lagði áherslu á rétt þess til að verja sig innan alþjóðalaga. Þessi afstaða hefur í raun ekkert breyst nema hvað orðin „innan alþjóðalaga“ hafa reynst orðin tóm. Vissulega má finna gagnrýnar yfirlýsingar frá leiðtogum Evrópusambandsins og Evrópuríkja varðandi einstaka atburði í árásum Ísraels á Gasa, en Evrópusambandið hefur í rauninni aldrei tekið afgerandi afstöðu gegn þjóðarmorðinu. 20. mars 2025, tveim dögum eftir að Ísrael gerði árásir á Gasa sem drápu 400 manns og bundu enda á vopnahléið, kom leiðtogaráð sambandsins (Europan Council) saman og sendi frá sér ályktanir um ýmis mál. Í kaflanum um Mið-Austurlönd er vikið að þessu. Ráðið harmar endalok vopnahlésins, „sem hefur valdið miklu mannfalli í nýlegum loftárásum“, og að Hamas neiti að skila þeim gíslum sem eftir eru. Það hvetur til að vopnahléi verði tafarlaust komið aftur á og minnir á mikilvægi óhindraðs aðgangs að mannúðaraðstoð. Lýsir svo yfir að það hafi áfram mikinn áhuga á að komið verði á varanlegum friði á grundvelli tveggja ríkja lausnarinnar. Kurteislegra gæti það varla verið.

Evrópusambandið hefur lengi haft mikið og náið samstarf við Ísrael. Evrópusambandið er stærsti viðskiptavinur Ísraels, með 28,8% vöruviðskipta Ísraels árið 2022. 31,9% af innflutningi Ísraels kom frá ESB og 25,6% af útflutningi fór til ESB. Þessu viðskipti hafi hins vegar miklu minna vægi á hinn veginn þar sem þau eru aðeins 0,8% af heildarviðskiptum ESB, sem þýðir að viðskiptabann hefði sáralítil áhrif á ESB miðað við það sem það hefði á Ísrael. Gegnum „nágrannasamstarf ESB“ (European Neighbourhood Policy) hefur Ísrael fengið bæði pólitíska og efnahagslega aðstoð frá ESB, að jafnaði um 1,8 milljón evrur á ári. Á þeirri vefsíðu ESB þar sem þessar upplýsingar eru fengnar kemur ekki fram að neinar breytingar hafi orðið á þessu. Nýjasta uppfærsla er maí 2024.

Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB meðal vina í Tel Aviv

Og ESB og Ísrael hafa alls konar önnur samskipti, meðal annars samstarf varðandi menningu og vísindi og fleira. Árið 2000 tók gildi samstarfssamningur ESB og Ísraels (EU-Israel Association Agreement). Í sambandi við hann eru haldnir reglulegir fundir annars vegar á ráðherraplani og hins vegar á plani háttsettra embættismanna. Í desember 2024 tók fyrrum forsætisráðherra Eistlands Kaja Kallas við embætti utanríkismálastjóra ESB af Spánverjanum Josep Borrell. Hann hafði verið gagnrýninn á ofbeldi Ísraels á Gasa við litla ánægju sumra leiðtoga Evrópuríkja. Þannig fékk hann ofanígjöf frá könslurum Þýskalands og Austurríkis, Olof Schultz og Karl Nehammer, á leiðtogafundi í mars 2024. Nýi utanríkismálastjórinn virðist ætla að taka annan pól í hæðina. 24. febrúar síðastliðinn var í Brussel 13. ráðherrafundur (Association Council) samstarfssamningsins, sá fyrsti síðan 2022, að viðstöddum Gideon Sa’ar utanríkisráðherra Ísraels, Kaja Kallas utanríkismálastjóra ESB og utanríkisráðherrum tuttugu aðildarríkja.

Kurteisleg gagnrýni og dásemd samstarfsins

Fyrir áðurnefndum leiðtogafundi ESB 24. febrúar lá greinargerð frá aðalskrifstofu ráðherraráðsins um tengslin við Ísrael. Þetta er allmikil greinargerð í 57 liðum og býsna athyglisverð.

Í upphafi er lögð áhersla á mikil og margvísleg og náin samskipti ESB og Ísraels og tækifærin til að þróa þá samvinnu enn frekar en um leið minnt á að samstarfssamningurinn byggist á mannréttindum og lýðræðislegum gildum. Þá er ítrekuð af hinum mesta þunga fordæming á hinni „ruddalegu og handahófskenndu“ hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október 2023, árásir Hezbollah á Ísrael 8. október 2023 og 27. nóvember 2024, árásir Írans á Ísrael 13. apríl og 1. október 2024 og nýlegar árásir Húta á Ísrael. Lýst er yfir fullri samstöðu og stuðningi við Ísrael og ísraelsku þjóðina og samúð með fjölskyldum gíslanna og fórnarlamba Hamas. Og svo minnt á að rétturinn til sjálfsvarnar gildi innan alþjóðalaga og rifjað upp að í janúar 2024 samþykkti ESB refsiaðgerðir gegn Hamas, en þær voru framlengdar í janúar 2025. Og vopnahlénu var fagnað.

Það hefur alltaf verið stefna Evrópusambandsins að viðurkenna ekki breytingar á þeim landamærum sem voru fyrir 1967. Það hefur líka stutt stjórnvöld í Palestínu, það er að segja önnur en Hamas, og gagnrýnt landránsbyggðirnar og framferði Ísraels á hernumdu svæðunum. Þetta hefur alltaf valdið vissum ágreiningi sem enn er óbreyttur. Aðildarríkin að undanskildum fyrrum austantjaldsríkjum hafa þó ekki viðurkennt ríki Palestínu fyrr en Svíþjóð gerði það 2015 og síðan Írland, Spánn og Slóvenía 2024. Kýpur hafði líka viðurkennt Palestínu áður en landið gekk í Evrópusambandið.

Í ljósi þessarar afstöðu er í greinargerðinni lýst yfir andstöðu og jafnvel fordæmingu á landráni landránsbyggða, sem er kallað landnám (settlement), og framferði Ísraels á Vesturbakkanum. Það er eina fordæmingin á pólitík Ísraelsríkis sem ég sé frá ESB.

Þá er nokkru máli eytt í gagnrýni á Íran og innrás Rússlands í Úkraínu og nýjustu vendingum í Sýrlandi fagnað. Og lýst er yfir stuðningi við Alþjóðaglæpadómstólinn. Mikilvægi baráttu gegn gyðingaandúð er tíunduð og hún fordæmd og síðan farið yfir mikilvægi þess að alþjóðalög séu virt og mannúðaraðstoð tryggð og lýst yfir áhyggjum af áhrifum átakanna (conflict) á Gasa á börn og innviði.

Annars er lítið fjallað um ástandið eða hernaðinn á Gasa og orðin „fordæma“ og „fordæming“ hvergi notuð í því sambandi nema þegar vikið er að framferði Hamas. Greinargerðinni lýkur með því að fara yfir mikilvægi og ágæti samstarfs Evrópusambandsins og Ísraels og ýmislegt sem gott þykir týnt þar til.

Og 24. mars fór Kaja Kallas utanríkismálastjóri í heimsókn til Ísraels, fáum dögum eftir að Ísrael gerði árás á Gasa sem rauf vopnahléð og drap 400 manns. Þar ávarpaði hún Gideon Sa’ar utanríkisráðherra. Hún fordæmi árás á rabbía nokkurn í Frakklandi daginn áður og sagði að í Evrópu væri ekkert rúm fyrir antisemítisma. Hún fordæmdi líka harðlega ofbeldi Hamas. Hún tók fram að hernaðaraðgerðir yrðu að vera hófstilltar (proportionate). Að öðru leyti sagði hún að Evrópusambandið stæði með Ísrael eftir hinar hræðilegu árásir 7. október 2023, að öryggi Ísraels væri ákaflega mikilvægt fyrir ESB, Ísraelar yrðu að finna sig örugga heima og Ísrael hefði rétt á að verja sig gegn hryðjuverkaárásum. Það væri ljóst að milli Ísraels og ESB væri gott samstarf og Ísrael skipti miklu máli fyrir ESB sem samstarfsaðili í viðskiptum og fjárfestingum.

Skiptar skoðanir innan ESB – en skipta þær einhverju máli?

Þótt Evrópusambandið hafi látið vera að fordæma þjóðarmorð Ísraels á Gasa og haldið áfram samstarfi og stuðningi við Ísrael hafa aðildarríkin þó ekki verið alveg samstíga. Þýskaland, Austurríki, Tékkland og Ungverjaland hafa verið áköfust í stuðningi við Ísrael en Spánn, Írland, Lúxemburg, Belgía og Slóvenía hafa haft gagnrýnni afstöðu. Í október 2024 lögðu Spánn og Írland til að samstarfssamningur ESB og Ísraels yrði endurskoðaður og Slóvenía og Belgía hafa líka ýjað að því og nú hefur Holland tekið undir það.

7. maí síðastliðinn kölluðu utanríkisráðherrar fjögurra aðildarríkja Evrópusambandsins, Írlands, Lúxemborgar, Slóveníu og Spánar og tveggja Evrópuríkja utan sambandsins, Íslands og Noregs, eftir því í sameiginlegri yfirlýsingu að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum um að víkka út hernaðaraðgerðir sínar á Gasa og hafa þar varanlega viðveru. Þessi yfirlýsing er góð svo langt sem hún nær en þó felst ekki í henni nein fordæming á aðgerðum Ísraels fram að þessu.

Það er líka ljóst að ráðamenn í Ísrael láta öll orð sem vind um eyru fjúka. Evrópuríkin og einkum Evrópusambandið eru í aðstöðu til aðgerða sem gætu látið Ísrael svíða. En meðan kurteisleg gagnrýni er látin duga samfara áframhaldandi samstarfi og vinsamlegum samskiptum verður ekki annað sagt en Evrópa styðji Ísrael og beri fulla ábyrgð á þjóðarmorðinu á Gasa.

Og „aldrei aftur“ eru innantóm orð. Hafi Evrópa einhvern tíma getað kallað sig siðmenntaða verður afstaða og aðgerðarleysi hennar gagnvart þjóðarmorðinu á Gasa ekki kallað annað en siðrof.

Forsíðumynd: Gaza 2023 og 2025

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Nýjustu greinar

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.