Vókismi gagnrýndur frá vinstri
—

Andri Sigurðsson
11. apr, ’25

Sjálfsmyndarstjórnmál (identity politics) og það sem kallað hefur verið „vókismi“ (woke-ism) hafa verið fyrirferðarmikil í stjórnmálum síðustu ára. Þessi tegund stjórnmála hefur fengið gagnrýni úr ýmsum áttum. Mest hefur borið í þessari gagnrýni úr hægri væng stjórnmálanna en færri þekkja til inntaks þeirrar gagnrýni á sjálfsmyndarstjórnmál og vókisma sem kemur úr hinni áttinni; frá hinu sósíalíska vinstri.

Vandi vinstrisins er að miklu leyti hugmyndafræðilegur. Gagnrýnið uppgjör við sjálfsmyndarstjórnmál og vókisma verður að fara fram ef flokkar eins og Sósíalistaflokkurinn ætla að ná árangri í framtíðinni að mati margra. Í dag stendur vinstrið frammi fyrir djúpstæðum klofningi. Á meðan stór hluti vinstrisins hefur tekið upp sjálfsmyndarstjórnmál (e. identity politics) sem setur kyn, kynþátt og aðra minnihlutahópa í forgrunn, hafa aðrir haldið fastar í hefðbundna sósíalíska stéttabaráttu sem á rætur að rekja til Marx. Stéttabaráttu sem miðar að því að berjast fyrir réttlæti fyrir allt verka- og launafólk óháð sjálfsmynd. Þessi togstreita er þó ekki aðeins fræðileg, hún hefur raunveruleg áhrif á getu vinstrisins til að vinna sigra í kosningum og móta samfélagið.


Hvað er vókismi?

Vivek Chibber, prófessor í félagsfræði við New York-háskóla, lítur á vókisma sem þróun úr sjálfsmyndarpólitík. Hann lýsir vókisma sem baráttu fyrir félagslegu réttlæti þar sem stéttargreining hefur verið fjarlægð. Chibber bendir á þrjá þætti sem lýsi vókisma: í fyrsta lagi áherslu á einstaklingsbundnar lausnir í stað kerfisbreytinga, í öðru lagi óþol gagnvart þeim sem eru ósammála, og í þriðja lagi alræðislegur (e. authoratarian) og ófrjálslyndur andi (illiberal ethos) sem útskúfi fólki fyrir að hafa aðrar skoðanir. Þetta endurspegli hugmyndafræði sem leitist við að stjórna hugsun og tjáningu, frekar en að efla opna umræðu og leita kerfislegra lausna, og hafi jafnvel náð til hluta sósíalíska vinstrisins.

„Vókismi er tengdur þeirri hugmynd að ef þú ert ósammála okkur, hafir þú ekki aðeins rangt fyrir þér, heldur sér þú vond persóna.“ — Vivek Chibber

Vókismi og sjálfsmyndarstjórnmál bjóða upp á lausnir sem oft einblína á táknrænar og einstaklingsmiðaðar breytingar fremur en að takast á við undirliggjandi efnahagslega og kerfisbundna orsök óréttlætis. Til dæmis er lögð áhersla á fjölbreytileikaþjálfun (e. diversity training) í fyrirtækjum, þar sem starfsfólki er kennt að nota „rétt“ orðalag gagnvart minnihlutahópum, eða á fjölgun kvenna og fólks af öðrum kynþáttum í stjórnunarstöðum. Aðrar aðgerðir fela í sér að breyta nöfnum á stofnunum, fjarlægja styttur sem tákna sögulega kúgun, eða stuðla að auknum sýnileika jaðarsettra hópa í fjölmiðlum og stjórnmálum, eins og að fagna fyrstu konunni eða hinsegin einstaklingnum í ákveðnu embætti. Þessar lausnir leitast við að bæta sýnileika og draga úr persónulegum fordómum, en frá sósíalísku sjónarhorni snúast þær um yfirborðsbreytingar sem styðja við núverandi kerfi frekar en að ógna því. Slíkar aðgerðir krefjast engra grundvallarbreytinga á valdajafnvæginu í samfélaginu.

Chibber gagnrýnir einnig hvernig vókismi tengist svokallaðri „standpoint theory“ þar sem sannleikur og staðreyndir eru ekki lengur markmið, heldur er gengið út frá því að jaðarsettir hópar einir skilji raunverulega sinn heim. Þetta leiðir til þess sem hann kallar „balkanization“ á fræðasamfélaginu og þekkingu—þ.e. sundrung í smærri, einangraðar einingar sem keppast á milli í stað þess að vinna að sameiginlegu markmiði. Í stað þess að leita sannleikans með rökum og gögnum, verður vókismi að valdastríði milli hópa sem krefjast viðurkenningar á sinni upplifun umfram allt annað. Fyrir Chibber er þetta fráhvarf frá hefðbundnum sósíalískum gildum, þar sem baráttan snerist um efnahagslegt réttlæti og breiða samstöðu verkafólks, en nú hefur hún færst yfir í þröngsýna og sundrandi stefnu sem veiki möguleika vinstri hreyfinga til að ná raunverulegum árangri.

Sósíalismi byggir baráttuna á stétt

Sósíalistar hafa alltaf sett stéttabaráttu í öndvegi og líta á söguna sem baráttu milli efnahagslegra stétta. Kapítalista, sem eiga framleiðslutækin, og verkafólks, sem selur vinnuafl sitt. Í þessu ljósi er saga mannlegs óréttlætis og kúgunar fyrst og fremst knúin áfram af efnahagslegum tengslum, ekki sjálfsmyndum líkt og kynþætti, kyni eða kynhneigð. Vókismi, með áherslu sinni á þessa síðarnefndu þætti, þynnir út þessa grundvallarsýn og tvístrar baráttunni. Með því að beina sjónum að einstaklingsbundnum mismun fremur en sameiginlegum stéttahagsmunum veikir hann möguleikann á að sameina verkafólk í baráttu gegn auðvaldinu, sem sósíalistar telja vera hið raunverulega rót vandans.

Stéttabarátta snýst um baráttu gegn efnahagskerfinu sem arðrænir verkafólk óháð bakgrunni. Sem dæmi gætu verkamenn af mismunandi kynþáttum og kynjum upplifað mismunun í vinnunni, en þeir deila allir sömu reynslu af of lágum launum og ófullnægjandi vinnuaðstæðum. Með því að byggja á stétt, stefna sósíalistar að því að bæta aðstæður fyrir alla, ekki bara að takast á við einstaklingsbundna fordóma. Þessi nálgun getur skapað samstöðu, sameinað fjölbreytta hópa undir sameiginlegu markmiði þess að koma á raunverulegum kerfisbreytingum.

Yfirstéttin hefur alltaf skilið hvernig hægt er að sundra samstöðu almennings. Frá upphafi kapítalismans hefur valdstéttin notað aðferðir til að skipta almenningi í smærri hópa, hvort sem það er eftir landsvæðum, kyni, kynþætti eða öðrum þáttum, til að koma í veg fyrir sameiginlega mótspyrnu. Stofnfeður Bandaríkjanna, eins og James Madison, vissu að stórt lýðveldi með fjölbreyttum hagsmunum væri eins konar náttúruleg vörn fyrir yfirstéttina. Þessi „deila og drottna“ aðferð hefur reynst áhrifarík, því þegar verkafólk er upptekið við innbyrðis átök tapar það sjónum á hinum raunverulega andstæðingi.


Ósigur vók-vinstrisins

Ef við skoðum niðurstöður síðustu kosninga og berum saman sjáum við að þrátt fyrir að Sósíalistaflokkurinn hafi boðið fram það sem margir töldu öflugri lista og frambjóðendur en árið 2021, þar með talið borgarfulltrúann Sönnu Magadalenu og hinn landsþekkta Davíð Þór Jónsson, var árangurinn ekki eftir því. Raunar fékk flokkurinn aðeins 4% atkvæða sem er 0,1% minna en í kosningum þar á undan. Þá féllu af þingi Píratar og VG, flokkar sem einnig hafa byggt starf sitt mikið á sjálfsmyndarstjórnmálum. Samfylkingin á hinn bóginn virðist hafa að einhverju leyti grætt á því að færa fókusinn meðvitað yfir á þessi mál sem sameina verkafólk, betri lífskjör og efnahagslegt réttlæti.

„Með því að gagnrýna vókisma eru sósíalistar líkt og Sólveig Anna að vona að hægt sé að leiðrétta stefnuna svo vinstrið geti náð til breiðari hóps í baráttunni fyrir félagslegu og efnahagslegu réttlæti.“

Átökin innan Sósíalistaflokksins undanfarið snúast nefnilega líka um hugmyndafræðina þar sem takast á þeir sem vilja viðhalda sömu stefnu og áherslum, og svo róttækari sósíalistar sem vilja aukna áherslu á baráttu á grundvelli stétta. Með því að gagnrýna vókisma eru sósíalistar líkt og Sólveig Anna að vona að hægt sé að leiðrétta stefnuna svo vinstrið geti náð til breiðari hóps í baráttunni fyrir félagslegu og efnahagslegu réttlæti. Gagnrýni á vókisma snýst því um hvernig vinstrið geti náð til fleira fólks, ekki aðeins frjálslynds fólks heldur líka menningarlega íhaldssamari kjósenda sem hafa valið að kjósa frekar Flokk fólksins eða Miðflokkinn.

Í stað þess að byggja baráttuna á aðgreindum hópum mismunandi sjálfsmynda, þurfum við að snúa aftur að stéttastjórnmálum sem sameina fólk þvert á kyn, kynþætti eða kynhneigð. Þetta þýðir ekki að við eigum að hunsa þá kúgun sem konur, hinsegin fólk eða aðrir hópar upplifa. Þvert á móti þurfum við að skilja hvernig kapítalisminn notar og viðheldur þessari kúgun til að viðhalda stéttaskiptingu. Vinstrið þarf að endurheimta getu sína til að tala til allra sem eru kúgaðir af kapítalismanum. Það er ekki nóg að tala aðeins til frjálslyndara fólks og menntuðu millistéttarinnar heldur þarf vinstrið líka að ná til íhaldssamari hópa verkafólks. Aðeins þannig er hægt að byggja upp nægilega sterka hreyfingu til að skapa raunverulegar breytingar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Nýjustu greinar

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Þórarinn Hjartarson

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram …

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.