SAGNFRÆÐINGAR TALA UM NATÓ OG 30. MARS 1949

Ögmundur Jónasson
11. apríl, 2024

SAGNFRÆÐINGAR TALA UM NATÓ OG 30. MARS 1949
Morgunblaðið er í miklu hátíðarskapi þessa dagana. Tilefnið talið vera ærið, NATÓ 75 ára.

Varðberg fengið til að fræða og upplýsa

Til þess að aðstoða ríkisstjórnina við hátíðahöldin hefur verið gerður samstarfssamningur við Varðberg, helsta stuðningsfélag NATÓ hér á landi til áratuga og snýr samstarfið að “kynn­ingu og fræðslu á sviði ör­ygg­is- og varn­ar­mála, í tengsl­um við 75 ára af­mæli stofn­sátt­mála Atlants­hafs­banda­lags­ins.”
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að samstarf utanríkisráðuneytisins við Varðberg hafi alltaf verið með miklum ágætum og “stuðlað að upp­lýstri umræðu og fræðslu um ör­ygg­is- og varn­ar­mál í gegn­um tíðina. Það er mik­il­vægt að efla upp­lýsta umræðu um gildi banda­lags­ins á þess­um tíma­mót­um… “ (Mbl., 27. mars).


Sagnfræðingur kallaður til vitnis um “breytta ásýnd” NATÓ

Þessi tímamót sem utanríkisráðuneytið vísar til voru síðan til umfjöllunar í Dagmálum Morgunblaðsins og í blaðinu sjálfu, hinn fjórða apríl, á sjálfan afmælisdaginn.

Þar var rætt við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, sem í þessu viðtali var aðallega sagnfræðingur því þannig var hann kynntur til sögunnar.

Og sagnfræðingurinn, Guðni Th. Jóhannesson, rakti sögu NATÓ og skýrði síðan út það sem þeir Bjarni utanríkisráðherra kalla tímamót í sögu bandalagsins, það er að segja “inn­rás Rúss­lands­hers í Úkraínu”. Þá hafi orðið al­gjör kafla­skil “sem sjá­ist hvað best í því að Finn­ar og Sví­ar hafi ákveðið að ör­yggi ríkj­anna sé best tryggt með aðild að banda­lag­inu.” Segi Guðni “það risa­stórt skref í sögu þess­ara ríkja.”

Og enn hefur blaðið eftir Guðna að stuðningur Íslend­inga við aðild að NATO hafi sjald­an eða aldrei verið meiri og vitnar blaðamaður síðan beint í orð hans: „Aðild Finna og Svía hef­ur breytt ásýnd banda­lags­ins stór­kost­lega að þessu leyti hér á þess­um hluta jarðkringl­unn­ar.“

Aðsúgur að Alþingi og grjótkast

Í Dagmálsviðtalinu sem Morgunblaðið rekur síðan fjallar Guðni Jóhannesson um 30. mars 1949 og segir m.a.:

“Aðsúg­ur var gerður að Alþingi og hörð átök urðu á Aust­ur­velli þar sem m.a. tára­gasi var beitt og aðild Íslands svo samþykkt und­ir grjót­kasti í mikl­um darraðardansi 30. mars 1949. Guðni seg­ir að þá nótt og þar á eft­ir hafi menn staðið vörð um heim­ili Bjarna Bene­dikts­son­ar eldri, þáver­andi ut­an­rík­is­ráðherra, og Ólafs Thors, for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins. Þá rifjar hann upp að leyfi hafi feng­ist til hler­ana á sím­um þeirra sem þóttu ógna ör­yggi rík­is­ins til þess að ganga úr skugga um að menn hefðu ekki vald­arán í hyggju eða eitt­hvað slíkt. Guðni seg­ir hit­ann í mönn­um hafa að hluta helg­ast af kröf­unni um þjóðar­at­kvæði. Frek­ar en að Alþingi af­greiddi viðamikið mál af þessu tagi með einni lít­illi þings­álykt­un skyldi þjóðin eiga síðasta orðið.”


Svo eru til aðrir sagnfræðingar

Ekki er neinu logið hér. En til eru þeir sagnfræðingar sem myndu hafa lagt áherslu á ýmsa aðra þætti sem aftur hefðu gefið allt aðra mynd en þá sem þrenningin, Morgunblaðið, Bjarni og Guðni draga upp.
Það er til dæmis mikil einföldun á sögu NATÓ á síðari árum að staðnæmast við innrás Rússa í Úkraínu án þess að fjalla um grundvallarbreytinar á áherslum bandalagsins, útþenslu til austurs, kröfum um aukna vígvæðingu og íhlutun bandalagsins utan þess svæðis sem aðildarríkin taka til – allt óháð hernaði Rússa í Úkraínu.

Breytt ásýnd Norðurlandanna

Guðni segir að innganga Svía og Finna í NATÓ sé “risa­stórt skref í sögu þess­ara ríkja,” og að þetta skref “hafi breytt ásýnd banda­lags­ins stór­kost­lega að þessu leyti hér á þess­um hluta jarðkringl­unn­ar.“
En hér skortir á að botnað sé með mun víðari skírskotun til að fá heillega mynd. Þannig myndi sá sagnfræðingur sem þetta skrifar vilja velta því fyrir sér á hvern hátt innganga einkum Svía sé “risastórt skref”. Í Svíþjóð er nefnilega að vakna umræða um þessi efni þegar það nú rennur upp fyrir mönnum að samhliða inngöngunni í NATÓ er bandaríski herinn að fá aðstöðu fyrir hertól sín víðs vegar um Svíþjóð í ætt við það sem Danir og Norðmenn eru einnig að heimila, opna lönd sín fyrir hernaðarumsvifum Bandarikjamanna í á þann hátt sem aldrei hefur verið áður. Í þessu samhengi má spyrja hvort það sé aðeins ásýnd NATÓ sem sé að taka breytingum, hvort ásýnd Norðurlandanna sé ekki eining að gera það og að Ísland sé þar engin undatekning þótt Svíþjóð sé augljósasta dæmið. Víða á þeirri sömu jarðarkringlu og hér hefur verið nefnd er horft til Norðurlandanna í forundran yfir fylgispekt þeirra við hernaðaröflin, skort á sjálfstæði og sjálfsvirðingu. Þykir mörgum sú ásýndarbreyting dramtísk en á sllt annan hátt en rakið var í afmlisumfjöllun Morgunblaðsins.

Hvítliðar, fangelsisdómar og svipting kjörgengis og kosningaréttar

Varðandi mótmælin á Austurvelli 30. mars 1949 þá þykir mér undarlegt af hálfu sagnfræðings og fjölmiðils, sem vill láta taka sig alvarlega, að láta ósagt um hvítliðana sem réðust á mótmælendur á Austurvelli og síðan réttarhöldin í kjölfarið þar sem tuttugu einstaklingar voru dæmdir til fangelsisvistar og átta af þeim sviptir kjörgengi og kosningarétti, nokkuð sem var ekki leiðrétt fyrr en árið 1957. Guðni víkur að hlerunum sem beitt var “til þess að ganga úr skugga um að menn hefðu ekki vald­arán í hyggju eða eitt­hvað slíkt.”
Þeir sem létu mynda pólitíska ofbeldissveit til að berja á mótmælendum, nýttu sér tök sín á ríkisvaldinu til að fá þá dæmda suma hverja til fangelsvistar og svipta kosningarétti og kjörgengi, hleruðu síðan forsvarsfólk úr verkalýðshreyfingu og stjórnmálum “til þess að ganga úr skugga um að menn hefðu ekki vald­arán í hyggju eða eitt­hvað slíkt.” Eitthvað mikið vantar hér inn í til að fá raunsanna og sanngjarna mynd af þessum atburðum.

Tvær andstæðar fylkingar

Án þess að hafa þessa mynd skýra fyrir hugskotssjónum skilja menn illa það sem á eftir kom því eftir þassa atburði má heita að þjóðin hafi verið klofin í tvær fylkingar og til urðu samtök sem þessar tvær fylkingar samsömuðu sér við, annars vegar Samtök hernámsandstæðinga, síðar herstöðvarandstæðinga, og nú Samtök hernaðarandstæðinga og hins vegar Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál.
Báðar þessar hreyfingar eru vissulega til en þurfa að hafa mismikið fyrir lífinu.


Ríkisstjórnin styrkir Varðberg með fjármunum okkar allra!

En áður en sá sagnfræðingur sem hér skrifar lýkur máli sínu leyfir hann sér að mótmæla því að sitt skattfé til ríkisins verði látið renna til Varðbergs – samtaka með NATÓ merkið á bréfshaus sínum – enda algerlega ósammála því að þau samtök hafi “stuðlað að upp­lýstri umræðu og fræðslu um ör­ygg­is- og varn­ar­mál í gegn­um tíðina”.

Sjá, Nató við Rauða borðið

Sjá, Vilja úrögn úr NATÓ

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.