Vísindi og fréttamennska í eftirmála Covid
—

Jón Karl Stefánsson
26. feb, ’24

Mjög athyglisverð frétt kom á heimasíðu vísis.is á dögunum. Fréttin sem ber nafnið „tvær alvarlegar hliðarverkanir fundust í viðamikilli rannsókn“ fjallar um nýlega rannsókn á aukaverkunum vegna bóluefna gegn covid. Í grein Vísis er áhersla lögð á að rannsóknin staðfesti „hversu sjaldgæfar hliðarverkanir bóluefnanna eru“ og svo að tvær nýjar sjaldgæfar aukaverkanir hafi komið fram í rannsókninni.

Vandamálið er að þetta er ekki það sem kemur fram í vísindagreininni.

Um er að ræða grein sem birtist í tímaritinu Vaccine þann 12. febrúar s.l. Rannsóknin, sem var fjármögnuð af bandaríska lyfjaeftirlitinu (CDC) og náði til 99.068.901 bólusettra einstaklinga í löndum sem notast við hið einkavædda tilkynningakerfi The Global COVID Vaccine Safety (GCoVS) Project þar sem meirihlutinn fékk BNT162b2 (Pfizer/BioNTech), mRNA-1273 (Moderna) eða ChAdOx1 (AstraZeneca) bóluefni. Rannsóknin skoðaði 13 ákveðnar tegundir aukaverkana sem tengdust tauga-, blóð- og æðasjúkdómum og hafa áður komið fram sem mögulegar aukaverkanir. Átta af þessum aukaverkunum voru algengari en áður var talið. Þetta voru taugasjúkdómarnir Guillain-Barré heilkenni (GBS) og bráð dreifð heilahimnubólga (Acute Disseminated Encephalomyelitis – ADEM), Blóðsjúdómarnir bláæðasegi í heila (Cerebral Venous Sinus Thrombosis – CVST), blóðflagnafæð (Thrombocytopenia), ónæmisblóðflagnafæð (Immune Thrombocytopenia), lungnasegarek (Pulmonary Embolism) og „splanchnic vein“ segamyndun (Splanchnic Vein Thrombosis  – SVT);  og svo hjartabólga (Myocarditis) og gollurhússbólga (Pericarditis).

Í heildina benti rannsóknin á nokkur forgangsöryggismerki sem tengjast mismunandi bóluefnum og skömmtum, sérstaklega varðandi taugasjúkdóma, blóðsjúkdóma og hjarta- og æðasjúkdóma. Vísindamenn greinarinnar héldu því ekki fram að þessi rannsókn sýndi hversu lítil hætta væri af þessum lyfjum. Hins vegar væri mikilvægt að túlka þessar niðurstöður í samhengi við takmarkanir rannsóknarinnar og heildarávinninginn af bólusetningu.

Takmarkanir á rannsókninni

Þessar aukaverkanir eru í raun nokkuð áhyggjuefni, sérstaklega í ljósi þeirra vankanta sem tekið er fram í greininni að séu á þessari rannsókn. Miðað við framkomna lýsingu á aðferðafræði rannsóknarinnar er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga:

Langtímaáhrif voru ekki skoðuð:

Rannsóknin gerði enga tilraun til að kanna langtímaáhrif COVID-19 bóluefna. Áherslan var á athugun á svokölluðum aukaverkunum af sérstökum áhuga (AESI) innan 0–42 daga eftir bólusetningu. Langtímaáhrif þurfa venjulega lengri eftirfylgnitíma umfram 42 daga. Hönnun rannsóknarinnar, sem felur í sér afturskyggna athugunaraðferð með ákveðnu áhættubili eftir bólusetningu hentar einungis til að bera kennsl á bráða- til skamms tíma skaðleg áhrif frekar en langtíma niðurstöður.

Útilokun á ákveðnum tegundum skaðlegra áhrifa:

Rannsóknin beindist að þrettán afmörkuðum sjúkdómum sem voru valdir á grundvelli mikilvægis þeirra fyrir öryggismerki sem komu fram í fyrri rannsóknum. Þetta þýðir að önnur hugsanleg skaðleg áhrif sem ekki voru með í þessum þrettán skilyrðum voru ekki í skoðuð í þessari rannsókn. Þó að þessi aðferð geri nákvæma skoðun á þessum tilteknu sjúkdómum mögulega, útilokar hún í eðli sínu önnur skaðleg áhrif sem ekki voru fyrir fram skilgreind sem hluti af umfangi rannsóknarinnar.

Rafræn heilsugögn vanmeta algengi:

Rannsóknin byggði á rafrænum heilsugögnum, sem fanga ekki öll tilvik skaðlegra áhrifa. Þeir sem fengu skaða af völdum bóluefnanna, en tilkynntu þau ekki í rafræna heilsugátt eru ekki með í þessari rannsókn. Ekki er tekið fram hvort framin hafi verið rannsókn á því kerfi sem notast er við í rannsókninni (Global Vaccine Data Network™ – GVDN®) en þessar tölur geta verið mjög háar. Rannsókn á tilkynningum til lyfjayfirvalda í Bandaríkjunum sem framkvæmd var árið 2006 leiddi til dæmis í ljós að allt að um 94% af þeim aukaverkunum sem komu fram voru ekki tilkynntar. Það þýðir að fyrir hverja eina tilkynningu voru nærri 16 tilkynningar óskráðar. Slíka rannsókn þyrfti að framkvæma á GVDN til að fá nákvæmari mynd á það hversu algengar aukaverkanirnar eru í raun.

Rannsóknin er mjög stór og mikilvæg en það er erfitt að fá úr henni þær niðurstöður sem Vísir dró úr þeim. Eins og greint er frá í greininni sem vísað er í, þá er rík ástæða til að rannsaka betur þær aukaverkanir sem þessi nýju lyf geta borið með sér. Þeir sem skaðast af völdum þeirra verða þá betur í stakk búnir til að fá þá hjálp sem þeir þurfa í kjölfarið og þá fyrst er hægt að bera saman ágóða og áhættu fyrir hvern aldurs- og áhættuhóp á þessum lyfjum. Það merkilega við þessa frétt er sem sagt það að hún er ekki í samræmi við fréttaefnið sjálft, vísindagreinina og rannsóknina sem hún fjallar um. Það er áhyggjuefni.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Nýjustu greinar

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.