Valdaránið í Bólivíu: OAS – ekki góð heimild

Jón Karl Stefánsson
14. nóvember, 2019



Sigur lýðræðisins eða valdarán?

Íslenska ríkisútvarpið lýsti þessu sem sigri lýðræðisins: „Mikil fagnaðarlæti urðu á götum höfuðborgarinnar La Paz eftir að Morales tilkynnti um afsögnina.“ Sterkasti vitnisburður RÚV um þennan „sigur lýðræðisins“ var yfirlýsing ákveðinna samtaka: „Samtök Ameríkuríkja gerðu úttekt á kosningunum og birtu niðurstöður hennar í dag. Þar kom fram að óregla var í nánast öllum þáttum í framkvæmd kosninganna.“ Fréttablaðið lætur sér nægja að vitna til sömu Samtaka Ameríkuríkja um kosningarnar að „framkvæmdin hafi ekki verið í lagi“ (mánud. 11. nóv). Í íslensku fjölmiðlunum er fall Moralesstjórnarinnar þó bara smáfrétt.

Því fer þó fjarri að Ameríkuríki séu einhuga til valdaskipta í Bólivíu: Kúba, Úruguay, Argentína, Venezúela, Níkaragua og Mexíkó hafa tekið skýra afstöðu gegn hinni þvinguðu afsögn. Mörg þeirra kalla hana „valdaraán“. Stjórvöld í Moskvu kalla þetta „undirbúið valdarán“. Ýmsir mikilvægir stjórnmálamenn segja svipað. Jeremy Corbin skrifar: „Ég fordæmi þetta valdarán gegn Bólivíönsku þjóðinni“ og Bernie Sanders mótmælir því sem „virðist vera valdarán“.

Samtök Ameríkuríkja (Organization of American States, OAS) eru oft notuð sem frumheimild um atburði í rómönsku Ameríku. OAS eru fjársterk og hávær samtök sem eiga fasta vildarmenn á Vesturlöndum. Íslenskir fjölmiðlar fylgja oftast þeim fjölmiðlum sem útbásúna yfirlýsingar samtakanna hvað hæst, svo sú mynd sem við fáum af atburðum í þessum heimshluta er mikið mótaður af OAS. En yfirlýsingar þeirra ætti að taka með miklum fyrirvara og leita annarra heimilda ef hægt er, því OAS eru alls ekki hlutlæg samtök og hafa markmið sem hafa sterk áhrif á það sem þeir láta frá sér.


Saga OAS sem leppsamtök BNA

OAS varð til upp úr eldri samtökum Ameríkuríkja sem höfðu það hlutverk að greiða úr ágreiningsmálefnum í viðskiptum milli Bandaríkjanna og annarra ríkja í heimshlutanum. Ákveðið var að stofna OAS á ráðstefnu sem haldin var í Bogotá, höfuðborg Kólumbíu, árið 1948. Bandaríkjastjórn áleit að OAS væri gott vopn til að berjast gegn mögulegum uppgangi kommúnisma í álfunni og tók strax mikinn þátt í gerð og fjármögnun samtakanna. Úr varð stofnun sem hafði einmitt það meginhlutverk að berjast gegn „kommúnisma“, hugtak sem átti eftir að reynast afar teygjanlegt. Tafir urðu á stofnun samtakanna vegna þess að í aðdraganda ráðstefnunnar var Jorge Eliecer Gaitan, þáverandi borgarstjóri Bogotá og maður sem Bandaríkjastjórn hafði stimplað sem „mögulega hættulegan“ stjórnmálamann fyrir Bandaríkin, myrtur með skotum í bakið. Gaitan var álitinn líklegasti sigurvegari næstu forsetakosninga í landinu og morð hans olli uppþotum í landinu (Encyclopedia Britannica, 2019).

Stofnunin var ætíð mjög hlutdræg. Þannig var kúbverskum erindrekum meinaður aðgangur að félagsskapnum eftir byltinguna á Kúbu, stofnunin hefur að markmiði að innleiða fríverslunarsamninga frá Alaska til Argentínu auk þess sem langstærstur hluti fjármögnunar OAS kemur frá Bandaríkjunum (60% árið 2018) og má með réttu kalla þau leppsamtök Bandaríkjastjórnar.

Um leið hefur OAS kerfisbundið stutt hægrisinnaðar herstjórnir en gegn þeim sem stimplaðir eru „kommúnistar“. Meðal dæma um þetta eru eftirfarandi:

Árið 1954 auðveldaði OAS valdaráni að fara fram í Gvatemala og samþykktu ályktun sem leyfði íhlutun í innanríkismálum landsins. Í kjölfarið réðust Bandaríkin í landið, steyptu af stóli lýðræðislega kjörnum forseta og ríkisstjórn og komu á fót herstjórn undir forsæti Carlos Castillo Armas. Gögn úr geymslu CIA sem hafa verið opinberuð sanna að valdaránið var skipulagt af Leyniþjónustu Bandaríkjanna. Meðal þess sem kemur fram í skjölum CIA er að Lyndon Johnson, þá þingmaður, hafi samið ályktunartillögu sem svo var samþykkt um að veita Eisenhower forseta skilyrðislausan stuðning til að „halda kommúnismanum úr Vesturheimi“. Af þeim sökum áttu Bandaríkin að styðja OAS sem í skjalinu var lýst á eftirfarandi hátt: „OAS er undir sterkum áhrifum frá Bandaríkjunum“, til að berjast gegn „því uppnámi sem orðið hefur í sjálfstæðum ríkisstjórnum vegna alþjóðahreyfingar kommúnisma eða samsæri“ (Barrett, 1954).

Árið 1965 tók OAS beinan þátt í innrás Bandaríkjamanna í Dóminíska Lýðveldið. Bandaríkin réðust inn í landið í kjölfar þess að framsækin og sósíalísk samtök umbótasinna í stjórnarskrármálum sigruðu þingkosningar í landinu og til að koma frá völdum hinum vinsæla Juan Bosch. Þúsundir manna voru myrtir í innrásinni. Árið 2016 krafði ríkisstjórn Dóminíska Lýðveldisins OAS um formlega afsökunarbeiðni fyrir að hafa hjálpað til við og hvítþvegið þessa innrás (Dominican Today, 2016).

OAS hreyfði engum mótbárum þegar Augusto Pinochet tók völdin með aðstoð leyniþjónustu Bandaríkjanna í Chile árið 1973 og ráðstefna ríkjanna var haldin þarlendis árið 1976. Herstjórn Pinochets stóð að baki hundruðum mannshvarfa, þúsundir tilfella pyntinga og ólögmætra handtaka og studdu hryðjuverkahópa víða um heim. Er Bandaríkin réðust í Panama árið 1989 stóð OAS algerlega aðgerðarlaus og komu engum eftirmálum á, þrátt fyrir að sú innrás hefði verið fullkomlega ólögleg. Hún gerði heldur ekkert í því að þáverandi forseti Panama hafi verið rænt úr landinu og sóttur til saka í Bandaríkjunum (sjá nánar á COHA, 2014).

Venezúela hætti þátttöku í OAS 2017, en í valdaránstilrauninni í febrúar 2019 viðurkenndu samtökin fulltrúa frá Juan Guaidó og valdaránsöflunum sem lögmætan fulltrúa Venesúela hjá OAS.

Nýjasta dæmið er nú í Bólivíu. Evo Morales sigraði kosningar í Bólivíu þann 20. október. Samtökin Center for Economic and Policy Research (CEPR) rannsakaði kosningarnar og gerðu á þeim tölfræðilegar rannsóknir. Niðurstaðan var skýlaust sú að engin ummerki um svindl eða óeðlilega framkvæmd væru finnanleg (Beeton, 2019). Þrátt fyrir það gaf OAS út tilkynningu þess efnis að það hefðu átt sér stað „skýr merki um svindl“ í kosningaferlinu, yfirlýsingu sem Pompeo var fljótur að dreifa (sjá Bartlett, 2019). Yfirlýsing OAS er ekki byggð á neinum gögnum og ætti því að túlkast sem marklaus pappír, en íslenskir fjölmiðlar virðast ekki láta það hindra sig.

OAS eru í raun samtök hægrisinnaðra ríkisstjórna, fyrirtækja og einstaklinga í Ameríkuálfunum. Þau styðja t.a.m. tilraunir til valdaráns í Venesúela og spila nú stóran þátt í valdaráninu í Bólivíu. OAS ætti alls ekki að líta á sem góða heimild fyrir fréttum frá þessum heimshluta.


Heimildir:

Barrett, D. M. 1954. Congress, the CIA, and Guatemala, 1954. US Central Intelligence Agency. Sótt af: https://www.cia.gov/library/center-for-the-study-of-intelligence/kent-csi/vol44no5/html/v44i5a03p.htm

Bartlett, E. 2019 (11. nóvember). Resignation of Bolivia´s Evo Morales was no victory for democracy, but a US-sponsored coup. RT. Sótt af: https://www.rt.com/op-ed/473181-morales-bolivia-american-coup/

Beeton, D. 2019 (8. nóvember). No evidence that Bolivian election results were affected by irregularities or fraud, statistical analysis shows. Center for economic and policy research (CEPR). Sótt af: http://cepr.net/press-center/press-releases/no-evidence-that-bolivian-election-results-were-affected-by-irregularities-or-fraud-statistical-analysis-shows

Doleac, C. 2014. Are the organization of American States imperialist roots too deep to extirpate today? Council on Hemispheric Affairs. Sótt af: http://www.coha.org/are-the-organization-of-american-states-imperialist-roots-too-deep-to-extirpate-with-today/

Dominican Today. 2015 (18. ágúst). OAS head issues historic apology for 1965 invasion. Sótt af: https://dominicantoday.com/dr/local/2015/08/18/oas-head-issues-historic-apology-for-1965-invasion/

Encyclopedia Britannica. 2019 (13.11). Organization of American States. Sótt af: https://www.britannica.com/topic/Organization-of-American-States

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.