Dr. Jekyll og Mr. Hyde
—

Ólafur Þ. Jónsson
23. okt, ’20



Út er komin þykk bók í stóru broti eftir Kjartan Ólafsson og ber heitið ,,Draumar og veruleiki‘‘ undirtitill ,,Stjórnmál í endursýn‘‘. Bókin er 508 lesmálssíður, prýdd fjölda mynda og að auki eru í henni ýmsar skrár, þannig að verkið er alls 568 síður. Bókin virkaði þannig á mig að mér fannst eins og hún væri skrifuð af tveim mönnum. Annars vegar tiltölulega réttsýnum fræðimanni og hins vegar þegar fjallað er um Sovétríkin og Jósep Stalín er eins og ,,falli mygla á skyn og geð‘‘.

Sumir sálfræðingar halda því fram að menn geti haft tvískiptan persónuleika, æði sundurleitan. Einhvern tíma las ég, þá ungur ég var, fræga skáldsögu eftir breska rithöfundinn Robert Louis Stevenson sem skifaði um þetta fyrirbæri á öndverðri síðustu öld. Þar er greint frá vísindamanni Dr. Jekyll, prúðum og dagfarsgóðum sem finnur upp lyf sem dregur fram verri hluta persónuleika hans. Þegar hann tekur inn lyfið breytist hann í hinn versta mann sem drýgir hin margvíslegustu óhæfuverk.

Ágætlega lýsir Kjartan stéttabaráttunni á fjórða áratug síðustu aldar í heimskreppunni miklu og lykilhlutverki Kommúnistaflokksins í þeirri baráttu allri.

Hörðustu stéttaátök á Íslandi á fjórða ártug síðustu aldar, þau voru mörg og víða um land, voru Gúttóslagurinn í Reykjavík 1932 og Novudeilan á Akureyri 1933. Í báðum tilfellum ætluðu verkalýðsfjandsamlegar bæjarstjórnir að lækka laun verkamanna. Með órofa samstöðu sigruðu verkalýðssamtökin og komu í veg fyrir tilræðin. Höfðu þó enga sjóði til þes að styðjast við. Gúttóslagurinn var hörðustu átök, sem urðu á öldinni sem leið ef frá er talinn 30. marz 1949. Það er athyglisvert að í heimskreppunni miklu tókst aldei að lækka kauptaxtana enda voru þá engar flugstéttir til.

Af augljósum ástæðum gengur Kjartan í annarra sjóði og sækir sér hnefa varðandi allt sem hann ritar um atburði fjórða áratugarins, fyrir þann tíma og vel fram á þann fimmta, enda ekki fæddur fyrr en 1933. Hann getur líka samviskusamlega ýmissa bóka og gagna þar um aftast í bókinni. Fjórir eru þeir menn sem fá hver um sig langa kafla í bókinni. Einar Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason, Kristinn E. Andrésson og Lúðvík Jósefsson. Raktar eru ættir þessara manna og uppruni, menntun og pólitísk umsvif á langri ævi. Allir fá þeir skömm í hattinn fyrir að bregðast ekki hugsjónum sínum. Engan mann útlendan nefnir Kjartan jafn oft og Jósep Stalín, hvorki meira né minna en á 89 blaðsíðum og það oftar en einu sinni á sumum þeirra. Í allri þessari Stalínumfjöllun fer ,,sálarskip hans hallt á hlið og hrekur til skaðsemdanna‘‘. Alla sína Stalínsvizku sækir hann í fræga ræðu Nikita Khrusjovs sem hann hélt í febrúar 1956 á 10. flokksþingi Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Í ræðunni fordæmdi hann persónudýrkunina á Stalín, fjölmargt í stjórnarháttum fyrri ára, þar á meðal dómskerfið, dauðadóma fyrir upplogar sakir og þrælkun milljóna manna í fangabúðakerfi Gúlagsins. Þetta er það sem Kjartan hefur að segja af ræðu Khrusjovs (bls. 153.) Mér þykir ólíklegt að Khrusjov hafi talað um þrælkun margra milljóna. Hann vissi dável að Gúlag voru vinnubúðir til refsivistar. Þær voru einfaldlega fangelsi þeirra Sovétmanna. Ef ég man rétt var oft, hér áður og fyrr meir talað um vinnuhælið á Litla-Hrauni, þar var föngum haldið að vinnu og er kannski enn. Vinnan göfgar manninn. Úr því verið er að tala um gamla ræðu er rétt að brot úr annarri fylgi. Hún var haldin á fjöldafundi í Moskvu 1937, ræðumaður Khrusjov. Þar sagði hann: ,,Með því að beita sér á móti félaga Stalín ráðast þeir gegn okkur öllum, gegn verkalýðsstéttinni og vinnandi alþýðu. Með því ráðast gegn félaga Stalin, ráðast þeir gegn kenningum Marx, Engels og Leníns. Þessari ræðu sinni hefur Khrusjov vísast gleymt 1956.

En það er meira blóð í kúnni. Kjartan fullyrðir að hætti trotskista að Trotskí, þessi náni samstarfsmaður Leníns (bls. 98) hafi verið drepinn í virki sínu í Coyoacan í Mexico 1940 af flugumanni Stalíns (bls. 49). Um þennan „nána samstarfsmann“ og flokk hans sagði Lenín til dæmis 1912: ,,Þessi samsteypa samanstendur af stefnuleysi, hræsni og innantómu orðagjálfri. […] Trotski hylur það með byltingarsinnuðu orðavali sem kostar hann ekkert og skuldbindur hann til einskis.‘‘ Auðvitað sniðgengur Kjartan allt sem morðingi Trotskís hafði að segja mexikönsku lögreglunni um ástæður morðsins.

En meðal annarra orða ef Stalín sem öllu réði ber ábyrgð á öllu sem aflaga fór á tímabilinu 1924 – 1953, ber hann þá ekki líka ábyrgð á uppbyggingunni og framförunum sem urðu á sama tíma? Réttarhöldin sem fóru fram í Moskvu á árunum 1936 til 1938 kallar Kjartan aldrei annað en „sýndarréttahöld“. Þetta voru þau líka kölluð af svartasta afturhaldinu um allan heim. Kominn í bland við tröllin garmurinn. Réttarhöldin í Moskvu voru engin sýndarréttarhöld. 1932-1933 mynduðu sakborningarnir í þeim samsærisfélag er nefndist ,,blökk hægrimanna og trotskista‘‘, myndað samkvæmt fyrirmælum hernjósna erlendra ríka óvinveittum Sovétríkjunum, í því skyni að reka njósnir fyrir þau, vinna spellvirki og hermdarverk. Þau myrtu þjóðfulltrúana S. Kiroff, V. Menshinsky, V. Kubiseff og rithöfundinn Maxim Gorki. ,,Málaferlin gegn blökk hægrimanna og trotskista‘‘ opinberaði í fyrsta sinn í sögunni starfsaðferðir ,,fimmtu herdeildar‘‘ fasista. Henni beittu þeir fyrir sig í Noregi, Tékkóslóvakíu, Spáni, Austurríki, Frakklandi og víðar. Í Sovétríkjunum skutu þeir landráðamennina en í Frakklandi voru þeir gerðir að ráðherrum.

,,Gjafar eru yður gefnar‘‘ bæði látnum og lifendum sem ekki hafa verið reiðubúnir að taka undir Stalíns- og Sovétníðið. Á bls. 99 í Kjartansbók stendur: ,,Hans draumur [Stalíns] var að geta steypt alla í sama mót. Trygg og hlýðin dusilmenni vildi hann hafa í kringum sig, fólk sem var aðeins einnar víddar og allar gerðir þess fyrirsjánlegar.‘‘ Þarna er Stalín hættur að vera ófyrirsjánlegur eins og löngum hefur verið haldið fram.

(birtist áður í Morgunblaðinu)

Merki

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!

Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!

Ögmundur Jónasson

Æ oftar gerist það að okkur berast róttækar raddir með veraldarvefnum sunnan úr Afríku; raddir sem afhjúpa kúgunar- og arðránsstefnu nýlenduveldanna, bæði gamalla tíma …

Nýjustu greinar

„Cope“ Illuga

„Cope“ Illuga

Andri Sigurðsson
Illuga Jökulssyni er mikið niðri fyrir þessa dagana. Á milli þess sem hann tekur þátt í jólabókaflóðinu þeytist hann helst fram á ritvöllinn til…
Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!

Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!

Ögmundur Jónasson

Æ oftar gerist það að okkur berast róttækar raddir með veraldarvefnum sunnan úr Afríku; raddir sem afhjúpa kúgunar- og arðránsstefnu nýlenduveldanna, bæði gamalla tíma …

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Þórarinn Hjartarson

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram …

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.