EKKI BEST Í HEIMI TAKK!

Ögmundur Jónasson
3. febrúar, 2022

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 29/30.02.22.

Ég neita því ekki að jafnan fer um mig hrollur þegar ég heyri stjórnmálamenn básúna að Íslendingar ætli að verða bestir í heiminum á einhverju tilteknu sviði, skara fram úr öllum öðrum, verða veröldinni fyrirmynd.

Heimurinn horfir allur til Íslands, var sagt á fyrstu stigum kóvidfaraldursins og einu sinni átti Ísland að verða fremsta fjármálamiðstöð í víðri veröld. Við eigum okkur þann draum sögðu þáverandi forsvarsmenn þjóðarinnar og bættu því við að eftir miklu væri að slægjast því með því að gera Ísland að eins konar drottningarbúi fjármálalífs heimsins fengi þjóðfélagið allt vaxið til velsældar. Við hefðum allt til alls, þyrftum ekki að gera annað en losa um höftin sem fjármálakerfið byggi við, taka beislin af útrásarvíkingunum og mélin úr munni þeirra. Þá tækju þeir á stökk út í heim í leit að björg í bú.
Þetta gekk svo eftir eins og alþjóð þekkir og líka hitt að í kjölfarið slógu íslenskir fjármálamenn ýmis met á heimsvísu, að vísu ekki nákvæmlega eins og lagt var upp með en met engu að síður.

Nú á aftur að slá heimsmet. Okkur er sagt að Ísland skuli leiða heiminn til orkuskipta, verða fyrsta þjóð í heiminum sem búi við umhverfisvæna orku á öllum sviðum, til húshitunar, samgangna og við framleiðslu. Nú skuli öllu kostað til – enda framtíð heimsins í húfi að Íslendingar leggi línurnar. Og aftur er sagt, við höfum allt til alls, nánast óendanlega mengunarlausa orku til eigin nota og hugsanlega fyrir aðra líka, við megum ekki bregðast! Stjórnmálamenn sem varla hafa sýnt náttúrunni meiri áhuga en að fara niður að tjörn að gefa öndunum eru skyndilega brennandi í umhyggju sinni fyrir framtíð lífríkis jarðarinnar.

Við megum engan tíma missa segja þeir. Við verðum að láta af öllum tepruskap gagnvart ímynduðum náttúruperlum, ekki láta glepjast af slíkum lúxusvanda nú þegar heimurinn þarfnast okkar. Ekkert megi stoppa hina útvöldu þjóð.

Og þannig er það að gerast að virkjunarsinnar Íslands eru orðnir harðdrægustu umhverfisverndarmenn sem Ísland hefur alið. Eða þannig er því stillt upp.

Vindmyllur sem víðast, virkja hverja sprænu, hvern hver og hverja heita holu. Þetta eru boðorð dagsins. Og síðast en ekki síst, virkja þarf það sem mikilvægast er að virkja, nefnilega hugarfarið. Og hvernig virkjum við það á markvissastan hátt? Að sjálfsögðu með því að samtengja eigingjarna gróðafíkn hinum háleitu markmiðum. Þess vegna þarf að markaðsvæða orkuna, framleiðslu, dreifingu og sölu á henni og þess vegna þarf að gera kolefnisjafnað andrúmsloft að söluvöru, láta mengunarkvóta ganga kaupum og sölum þannig að á öllu þessu megi græða.

Og er ekki nákvæmlega þetta að gerast? Skipaður er umhverfisráðherra sem sagður er duglegur með afbrigðum. Það þykja mörgum góðar fréttir í ljósi þess hvert stefnt er. Þessa dagana berast fréttir af alþjóðlegum auðmönnum sem vilja fjárfesta í íslensku landi, það er að segja jarðveginum, fá að gróðursetja til að geta nælt sér í loftslagskvóta svo menga megi ögn meira í heimahögum eða bara til að selja – og hagnast.

En er þetta þá ekki bara fínt? Er ekki módelið sem auðkýfingar heimsins settu fram í Davos og gengur út á að græða á góðmennskunni, græða á umhverfisverndinni, græða á því að bjarga lífríki jarðarinnar það besta sem hugsast getur? Er það ekki þetta sem námskeiðshaldararnir kalla win-win, allir hagnast?

Eða gæti verið að það séu aukaverkanir? Eins og sú að Ísland fór á hausinn þegar við vildum verða himnaríki fjármagnsins, margir misstu eigur sínar og hafa ekki náð sér á strik síðan.

Ég held að ástæða sé fyrir Gullfoss að hafa áhyggjur af þessari þróun, Landmannalaugar líka, að ekki sé minnst á hin smærri náttúrudjásn. Og svo eru það víðernin sem mig grunar að vilji mörg hver fá að vera áfram víðerni. Okkur er sagt að öspin sé afkastamesti framleiðandi súrefnis. Birkið hafi ekki roð við henni. Samkvæmt því sem lagt er upp með er framtíðin því asparinnar. Það verður hún sem kemur til með að byrgja sýn í fyrrum víðernum Íslands.

Og þar erum við komin að kjarna málsins. Þegar ásælni í gróða er virkjuð og hún látin taka völdin hættum við að ráða því hvernig farið er með land okkar. Þá þurfum við að spyrja hvort það geti verið að hættulegasta markaðsvæðingin af öllu því sem fram er komið sé á hugarfarinu. Þegar búið verði að stimpla það inn að óhætt sé að græða á náttúruvernd og ekki nóg með það, þar helgi tilgangurinn meðalið, þá er voðinn vís.

Það skyldi þó aldrei vera að það sé sjálft módel markaðshyggjunnar – módelið sem Davos vill verja – módelið sem byggir á því að fá meira og aftur meira, að það sé hinn eiginlegi skaðvaldur í lífríki jarðarinnar?

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.