VIÐ EIN, ALMENNINGUR HEIMSINS, GETUM BJARGAÐ JULIAN ASSANGE

Ögmundur Jónasson
21. júní, 2022

Greinin birtist fyrst 17. júní á vef Ögmundar sem er hægt að nálgast hér.

Innanríkisráðherra Breta vill að Julian Assange, stofnandi Wikileaks, verði framseldur til Bandaríkjanna þar sem hann verði leiddur fyrir rétt og látinn svara til saka fyrir að koma á framfæri upplýsingum sem ráðandi öfl þar og víðar vilja að þagað verði um.

Þar var komið í langvinnri deilu um framsal Assange frá Bretlandi að innanríkisráðherrann, Priti Patel, gat tekið ákvörðun um að Asssange yrði ekki framseldur. Það gerði hún ekki og sagði að í Bandaríkjunum fengi hann án efa réttláta málsmeðferð!

Áfram mun málið enn um sinn velkjast í breska dómskerfinu og auk þess fara fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.

Niðurstaðan í dag kemur ekki á óvart. Ég hafði einhvern tímann á orði að í raun væri það ekki Julian Assange sem biði eftir dómi heldur breska réttarkerfið. Síðan hef ég sannfærst um að breska réttarkerfið er ekki upp á marga fiska þegar stór-pólitískir hagsmunir eru í húfi. Og um það snýst mál Julian Assange, pólitíska hagsmuni.

Þar eiga Bandaríkin og bandamenn þeirra þá hagsmuni að um stríðsglæpi þeirra í Írak, Afganistan, Líbíu og víðar verði þagað, að ekki verði upplýst um pyntingar í Guantanamó og öðrum fangelsum þar sem „óvinir“ voru meiddir og pyntaðir án aðkomu réttarkerfisins, að þagað verði um alþjóðavæðingu á forsendum auðhringa, að mengunarglæpir vestrænna stórfyrirtækja í Afriku komist ekki í hámæli  … um allt þetta hefur Wikileaks upplýst og margt fleira sem hefur reynst slíkur þyrnir í augum ráðandi afla auðvaldsheimsins að „Íslandsvinurinn“ Pompeo fyrrum forstjóri leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, og síðar utanríkisráðherra BNA, sagði það forgangsverkefni að koma Wikileaks fyrir kattarnef.

Það hlálega er að nánast gervallur fjölmiðlaheimur veraldarinnar hefur birt fréttir sem byggja á upplýsingum frá Wikileaks. Sá heimur og við öll sem höfum fagnað því að fá þessar fréttir eigum Wikileaks skuld að gjalda og að mínu mati ber okkur því siðferðileg skylda til að rísa upp Julian Assange til varnar.

Við ein getum bjargað Julian Assange og Wikileaks úr klóm þeirra sem vilja hylma yfir og þagga umræðu um stríðsglæpi, mengunarglæpi og margvíslegt misferli í skjóli ríkisvalds. Helstu fjölmilðar heims munu ekki gera það. Þeir virðast standa of nærri valdinu.

Fylgjumst með. En látum jafnframt frá okkur heyra. Málið snýst um okkur. Hvað okkur er leyft að heyra – hvað við megum vita. Finnst okkur þetta boðlegt?  Og ef ekki, ætlum við þá að láta bjóða okkur þetta?
Að sjálfsögðu ekki!

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.