Um Trump, þriðju heimsstyrjöldina, og „give peace a chance“
—

Tjörvi Schiöth
27. jan, ’25

Hérna er balanseruð og yfirveguð umfjöllun um Biden vs. Trump sem er hægt að taka til fyrirmyndar. Sem er hressandi í þessu svakalega skautaða flokkhollustu-umhverfi  (polarized partisan) þar sem allir eru fastir í einhverjum skotgröfum í annað hvort „team Blue“ (libbar, framsæknir, stundum kallaðir „vinstrið“) eða „team Red“ (MAGA, íhaldsmenn, hægrið), og tala um stjórnmál eins og um íþróttaleik – með eintómum klappstýruhætti, slagorðum og stöðluðum flokkspólitískum talpunktum, þar sem ómögulegt er að koma með óhlutdræga greiningu eða líta gagnrýnið á eigin hlið. Sjá viðtal Finian Cunningham við Peter Kuznick.        

Peter Kuznick og Finian Cunningham

Peter Kuznick er sagnfræðingur sem skrifaði m.a. bókina „The Untold History of the United States“ ásamt kvikmyndaleikstjóranum Oliver Stone, sem gerði samnefnda heimildaþætti samhliða bókinni. Kuznick er sérfræðingur um kjarnavopnamál og hefur m.a. mikið fjallað um Hiroshima. Hann er einnig friðarsinni og nokkurskonar húmanisti.

Hann segir að Biden hafi verið talsvert skárri en Trump varðandi innanríkismál, en þegar kemur að utanríkismálum væri Biden algjör hörmung. Ekki bara stuðningurinn við þjóðarmorð Ísrael á Gasa í 15 mánuði samfleytt (á meðan Trump tókst að semja um vopnahlé áður en hann tók við embætti) heldur hefur ríkisstjórn Biden einnig verið að heyja stórveldabaráttu og nýtt kalt stríð við Rússland og Kína, og kynda undir kjarnorkustyrjöld, þriðju heimsstyrjöldinni. Kuznick segir að það sé mesta hættan núna á kjarnorkustyrjöld síðan í Kúbudeilunni (á hápunkti kalda stríðsins). Hann segir það vera mikinn létti að Trump hafi tekið við, sem vill allavega taka skref til baka frá bjargbrúninni og róa hlutina niður. Hann segir Trump vera mjög gallaðan persónuleika, hann er sjálfhverfur eiginhagsmunaseggur og vindhandi sem hefur engin húmanísk prinsipp en – ólíkt Biden og hans teymi – þá hefur Trump allavega það viðhorf að stríð séu slæm, vill binda enda á þau og ekki starta nýjum stríðum.

Stríðsmál hljóta að koma fyrst. Því það er ekki hægt að byggja upp jafnara og betra samfélag í miðju stríðsástandi (sanngjarnara samfélag sem er betra fyrir minnihlutahópa o.s.frv.) ef allur peningurinn fer í hernaðarútgjöld og vopnaframleiðslu, og það er heldur ekki hægt—því þá er allt til einskins—ef við erum öll dauð og siðmenningunni hefur verið tortímt í kjarnorkustríði. Þess vegna hlýtur friðurinn að koma fyrst og síðan allt annað á eftir. Að koma í veg fyrir stríðsátök hlýtur að vera fyrsta forgangsmál, það er ekki hægt að ná öðru í gegn nema að það komi fyrst.

Kuznick vísar m.a. í það hvernig Kennedy og Krjústsjof sættust árið 1963 eftir Kúbudeiluna, og ætluðu að binda enda á kalda stríðið og afvopnast, en því miður var Kennedy myrtur í lok árs 1963 sem setti þessi áform í uppnám. En þeim tókst allavega að skrifa undir samninginn um bann við kjarnavopnatilraunum (ofanjarðar) áður en að Kennedy féll frá. Síðan þá (1963) hafa hvorki Bandaríkin né Sovétríkin/Rússland gert neinar tilraunir með kjarnavopn ofanjarðar. Þetta er ein fyrirmynd.

Kuznick vísar einnig til Jaltaráðstefnunnar í febrúar 1945 þegar Franklin Roosevelt, Winston Churchill og Stalín komu saman til að semja um nýja heimsskipan og reyna að stuðla að friði í heiminum að síðari heimsstyrjöldinni lokinni. Kuznick spyr hvers vegna Trump, Pútín og Xi Jinping geti ekki komið saman og haldið fund, ásamt öðrum leiðtogum eins og t.d. Lula frá Brasilíu og Modi frá Indlandi, til að tala saman og semja um að byggja upp friðsamlegri heim? Það þarf ekki meira til, segir Kuznick, heldur en bara að standa við þau prinsipp sem hefur þegar verið samið um í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. En það hefur auðvitað kerfisbundið verið brotið á þessum ákvæðum, sérstaklega af Bandaríkjunum og Ísrael í gegnum tíðina, og Rússland er heldur ekki saklaust í þeim efnum. Það þarf sem sagt ekki endilega að semja um algerlega „nýja heimsskipan“, það eina sem þarf að gera er að semja um að standa við stofnsáttmála SÞ og betrumbæta öryggiskerfi SÞ svo að það virki almennilega til að koma í veg fyrir stríð.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.