Trump setur fram hótanir gegn Írönum og samningamönnum þeirra í Sviss

Dave DeCamp
23. júní, 2026

 Íranski þingforsetinn brást við með því að segja að Íranir tækju „ekki hótanir Bandaríkjamanna alvarlega“.                                                                                                  

Á sunnudag  (21/6) setti Trump forseti setti fram nýjar hótanir gegn Íönum og samningamönnum þeirra á meðan bandarískir og íranskir embættismenn voru í Genf í Sviss í fyrstu umferð viðræðna á grundvelli viljayfirlýsingar (Memorandum of Understanding) Bandaríkjanna og Írans.

Í samtali við fréttamann Fox News, Trey Yingst, hélt Trump forseti því fram að hann hefði talað við íranska embættismenn aðfaranótt sunnudags og sagt þeim: „Ef þið lokið [Hormússundi] munuð þið ekki eiga neitt land.“

Forsetinn var að bregðast við fréttum um að íranski herinn hefði tilkynnt að hann myndi loka Hormússundi á ný til að bregðast við áframhaldandi árásum Ísraels í Líbanon, sem urðu tugum manna að bana um helgina þrátt fyrir að öðru „vopnahléi“ hefði verið lýst yfir. Viljayfirlýsingin kveður á um að stríðinu verði hætt að fullu, og íranskir embættismenn hafa sagt að það velti á því hvort Ísraelar dragi sig til baka frá Suður-Líbanon.

Yingst sagði að Trump hefði einnig sagt embættismönnunum að ef sundinu yrði lokað, „munið þið ekki einu sinni komast aftur til ykkar f–king lands,“ sem virðist vera drápshótun gegn írönsku sendimönnunum í Genf, þar á meðal utanríkisráðherranum Abbas Araghchi og íranska þingforsetanum Mohammad Bagher Ghalibaf.

Sérstaklega, í færslu á Truth Social, hótaði forsetinn Íran vegna stuðnings þeirra við Hezbollah. „Íran verður tafarlaust að stöðva vel launaða STAÐGENGLA sína í Líbanon frá því að valda vandræðum. Ef þeir gera það ekki, munum við ráðast aftur á Íran af mikilli hörku, alveg eins og við gerðum í síðustu viku, bara harðar!!!“ sagði Trump.

Færslan er athyglisverð þar sem Trump hefur hvatt Ísrael til að binda enda á árásir sínar í Líbanon en virðist nú vera að skella skuldinni á Hezbollah fyrir áframhaldi stríðsins, þrátt fyrir að Ísrael neiti að binda enda á hernám sitt í suðurhluta landsins.

Hótanir Trumps brjóta í bága við viljayfirlýsinguna, sem kveður á um að báðir aðilar verði að „forðast hótun um eða beitingu valds hvor gegn öðrum,“ og íranska fréttastofan PressTV greindi frá því að sendinefnd Írans í Genf hefði mótmælt ummælum hans við bandaríska aðila.

Í færslu á X eftir viðræðurnar gerði Ghalibaf lítið úr hótunum Trumps. „Sjá þeir ekki með sjálfum sér, að ef hótanir þeirra hefðu einhver áhrif hefðu þeir ekki náð þessu stigi örvæntingar í dag? Við tökum hótanir Bandaríkjamanna ekki alvarlega,“ skrifaði hann.

„Þeir ættu að fara varlega í yfirlýsingum sínum, herafli okkar er reiðubúinn að bregðast við á annan hátt. Það er sama hvað þeir segja, það erum við sem munum láta verkin tala,“ bætti hann við.

Íranskir fjölmiðlar greindu frá því að Íran hefði frestað samningaviðræðum við Bandaríkin vegna hótana Trumps, en bandarískir embættismenn sögðu CNN að viðræðurnar hefðu haldið áfram allan daginn og búist væri við að þær stæðu fram á nótt. Fyrr um daginn sagði íranskur embættismaður að báðir aðilar hefðu lokið við drög að undanþágum frá refsiaðgerðum vegna íranskrar olíu og að búist væri við að undanþágurnar yrðu gefnar út fljótlega.

Greinin birtist á Antiwar.com, 21. juni 2026

***

Viðbótarefni: Íran hefur yfirhöndina í stríðinu – og stjórnar olíuflæðinu. Viljayfirlýsingin viðurkennir þá staðreynd – og heimtar að einnig Ísrael bindi enda á árás sína í Líbanon. Netanyahu hafnar viljayfirlýsingunni og heldur áfram morðum sínum í Líbanon. Með viljayfirlýsinginni viðurkenni Trump yfirhönd Írans í stríðinu – en getur ekki gert það upphátt – og tvístígur því og snýst . Samningsstaðan er flókin og langt í land. Í þessu myndbandi ræðir Nima Alkhorshid stöðuna við þá Seyed M. Marandi og Larry Johnson. Ritstjórn

XX

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.