Þar sem sauðargæru gerist ekki þörf

Ögmundur Jónasson
10. febrúar, 2026

Mynd: Larry Fink, yfirforstjóri stærsta fjárfestingarsjóðs heims, BlackRock, er jafnframt æðsti framkvæmdastjóri WEF og forseti þingsns í Davos í janúar


Hvar skyldi það nú vera sem úlfar þurfa ekki að villa á sér heimildir? Áður en ég svara því langar mig til að segja frá samræðu sem ég átti við gamlan grískan sósíalista sem ég hitti í Grikklandi í haust. Gamalreyndur var hann og kallar ekki allt ömmu sína, hafði fengið að finna til tevatnsins í fangelsum herforingjastjórnar árum saman [hún stjórnaði Grikklandi 1967–1974, ritstj.]. Einn af þessum mönnum sem aldrei verða keyptir.

Það er af sem áður var sagði hann, að til væru alvöru alþjóðasambönd sósíalista og verkalýðssamtaka af ýmsum gerðum og litbrigðum. Nú væru þau bara þrjú alþjóðasamböndin sem bragð væri að, alþjóðasamband valdstjórnarmanna, þar væri á bak við grímurnar gagnkvæmur skilningur. Svo væri það alþjóðasamband mafíósa, þeirra sem skirrast ekki við að beita óheiðarlegum vinnubrögðum til að komast yfir völd og auð, sífellt dansandi á landamærum lögbrota og siðleysis. Þetta væru auðkýfingarnir sem væru orðnir valdameiri en nokkru sinni. Að lokum væri það svo alþjóðasamband bjúrókrata – skrifræðið væri alls staðar samt við sig – sennilega samheldnasta blokkin sem sameinaðist um að draga niður í öllu lýðræðisskvaldri. Það var greinilega Kafka-gerðin af bjúrokrötum sem hann hafði í huga.

Og þá erum við komin á fund World Economic Forum (WEF) í Davos í Sviss. Þar koma nefnilega reglulega saman að ráða ráðum sínum valdstjórnarmennirnir, mafíósarnir og bjúrókratarnir, varnarmúr heimskapítalismans, fullkomin samstaða og allir gærulausir. Enginn þarf að sýnast.

Það er helst í fréttaflutningnum sem umbúðirnar verða ógagnsæjar. Forsætisráðherra Kanada var þannig eftir síðasta fund orðinn málsvari hins lagalega og reglubundna heimskerfis sem þurfi umfram allt að vernda. Þegar betur var að gáð var það hins vegar heimskapítalisminn sem þyrfti verndar við vegna óhemjugangsins í Donald Trump Bandaríkjaforseta. Af þeim sökum þurfi að endurskoða sitthvað í hinu alþjóðlega samskiptakerfi.

En heimspressan hélt sig við „tímamótaræðu“ Carney forsætisráðherra um laga- og reglukerfi heimsins og öll gildin sem við ættum og væri nú vegið að. Gleymum því ekki, bætti hann við, styrkur þessara gilda væri háður aflsmunum okkar, og heima fyrir í Kanada væri ríkisstjórn sín einmitt í sérstöku átaki til að auka það afl: „Síðan ríkisstjórn mín komst til valda höfum við lækkað skatta a tekjur, fjármagnsgróða og fjárfestingar… og í lok þessa áratugar munum við hafa tvöfaldað útgjöld til varnarmála og það gerum við á þann hátt að við styrkjum innlendan iðnað”. Sem sagt vígvæðing sem aldrei fyrr, væntanlega til að verja þau gildi sem fram komu í framangreindri forgangsröðun.

Auðvitað féll þetta í góðan jarðveg hjá þeim sem sátu fundinn í Davos. Stofnað var til World Economic Forum í byrjum áttunda áratugar síðustu aldar, beinlínis til höfuðs lýðræðislegu alþjóðakerfi. Í stefnuskránni segir hreint út að alþjóðavæddum heimi verði best stýrt af “sjálfvalinni” samstöðusveit fjölþjóðafyrirtækja, ríkisstjórna og almannasamtaka!

Ekki verður skilið við forsætisráðherrann kanadíska án þess að geta gamansögu hans í Davos sem þótti svo frábær að hún flýgur enn um heiminn. Ef þú situr ekki við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar, sagði Mark Carney, þá endarðu á matseðlinum.

Þarna erum við komin æði langt frá framtíðarsýn bestu manna við smíði hinna Sameinuðu þjóða í kjölfar seinna stríðs um aðkomu heimsbyggðarinnar allrar að gerð regluverks um líf okkar hér á jörðu.

Nú erum við hins vegar að stíga inn í heim þar sem allir vilja gerast stórveldi til að geta stýrt öllum hinum. Og þar var forsætisráðherra Kanada á endanum staddur þrátt fyrir allt tal sitt um mikilvægi alþjóðlegra stofnana.

Í spjalli úlfanna í Davos var upplýst um sitthvað sem kemur okkur Íslendingum við. Finnski forsetinn Stubb sagði þannig að menn ræddu það nú af alvöru í Brussel að stytta innlimunarferli umsóknarríkja að Evrópusambandinu, kippa þeim inn sem hraðast og laga síðan það sem á vantaði í aðlögun í rólegheitum. Nefndi hann Úkraínu, Noreg og Ísland og gat þess reyndar einnig í þessu samhengi að ESB ætti nú í viðræðum við Ísland. Er það ef til vill þetta sem Kristrún forsætisráðherra á við þegar hún segir Evrópu vera komna á dagskrá?

Og að lokum um stólinn við borðið og þá hættu að enda á matseðlinum. Ég er ekki viss um að Íslendingar eigi að hlæja mikið að þessum brandara. Í það minnsta ekki þau sem vilja ólm komast inn fyrir dyr í Brussel. Við það misstum við nefnilega sæti okkar við samningaborð heimsins.

Síðustu fréttir frá Brussel eru þær að Lissabon sáttmálinn þyki ekki lengur nægja til þess að þrengja neitunarvald aðildarríkja, til gæti staðið að innleiða skipan þar sem aðeins stærstu ríki ESB komi að ákvarðanatöku um alvörumálin. Hin ríkin undirriti skuldbindingu um að fallast á það sem þau ákveði. Svipað og Þorgerður Katrín utanríkisráðherra gerði í maí síðastliðnum í Brussel varðandi utanríkismál.

Heldur fljót á sér að láta taka undan sér stólinn og gerast forréttur á veisluborði gömlu nýlenduvelda Evrópu sem greinilega luma enn á gömlum órum um heimsyfirráð.

Greinin birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 07/08.02.26.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.