Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum
—
Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa verið birtar í viðurkenndum tímaritum í lögfræði og mannréttindamálum. Það er full ástæða til að skoða vel verk Elíasar og niðurstöður hans, og minnast verka hans, en Elías lést þann 7. apríl 2022.
Á heimasíðu Elíasar mátti nálgast 16 stærri greinar sem snúa að efnahagsþvingunum og er því mikið að sækja þangað. Hér verður farið yfir efni nokkurra þeirra.
Engu ríki er treystandi til að framfylgja “íhlutun af mannúðarástæðum”
Grein Elíasar, “Comment on Fernando Teson’s article ‘Defending International Law’” (Davíðsson, 2005) var birt í tímaritinu International Legal Theory sem gefið er út af American Society of International Law. Í greininni rökstyður Elías hvers vegna hann er andsnúinn svokölluðum “íhlutunum af mannúðarástæðum” (humanitarian intervention), en sú hugmyndafræði hefur verið notuð til að réttlæta afskipti af innanríkismálum fullvalda ríkja.
Röksemdarfærsla Tesons hafði verið á þá leið að mannúðarsjónarmið og réttur manneskjunnar væri æðri en hefðbundin alþjóðalög, þar sem átt er við þau lög sem eru notuð til að setja reglur fyrir samskiptum milli ríkja. Samkvæmt Teson væri tilgangur alþjóðalaga að þjóna manneskjum heimsins en ekki ríkisstjórnum þess. Því ætti að túlka alþjóðalög frá sjónarhóli mannlegra gilda, en ekki gilda ríkisstjórna.
Elías benti á að hvergi í alþjóðalögum sé minnst á rétt ríkisstjórna. Auk þess séu réttindi hópa á borð við þjóðríki og samfélög unnin úr réttum einstaklinganna og séu því ekki aðskilin þeim. Tilgangur Tesons væri í rauninni að finna réttlætingu fyrir því að nota ofbeldi í nafni mannréttinda.
Teson hafði til dæmis haldið því fram að fyrra Persaflóastríðið gegn Írak hefði verið “stórsigur fyrir mannréttindin” án þess að minnast á þau 100 þúsund mannslíf og eyðilegginu sem það orsakaði. Meðal þeirra spurninga sem Elías færði fram voru eftirfarandi: Hvaða aðilar eiga að ákveða hverja á að “frelsa” og undir hvaða kringumstæðum; hvernig er hægt að koma í veg fyrir að “íhlutunin” leiði til þess að þeir sem standa að baki árásarhernaðinum standi uppi sem nýjir yfirboðaðarar í ríkinu sem verður fyrir þeim; nákvæmlega hvaða “mannréttindi” á að verja með íhlutun; hafa árásaraðilarnir ráðfært sig við almenning í þeim ríkjum sem á að “frelsa”; og er hægt að treysta árásaraðilanum til þess að láta stjórnast af óeigingjörnum mannúðarsjónarmiðum?
Elías sagði það mikilvæga forsendu að ríki sem hefur ekki mannlega reisn og mannleg gildi efst á forgangslista væri ekki hægt að treysta til að framkvæma íhlutun af mannúðarástæðum. Ekkert ríki hefði þetta sem helsta leiðarljós. Ríki væru fyrst og fremst skriffinskufyrirbæri sem verndaði innlenda yfirstétt sína og eigin hagsmuni. Að hluta til sem afleiðing af því mætti hið sama segja um yfirþjóðlegar stofnanir. Þetta væri hægt að sanna efnislega. Til dæmis hefði ekkert ríki innan Sameinuðu þjóðanna krafist rannsókna á hinum mikla mannlega harmleik og dauða sem efnahagsþvinganirnar gegn Írak á tíunda áratugnum hefðu orsakað; meira en milljarður manna byggi við sára fátækt um heim allan, þrátt fyrir að mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna kvæði skýrt á um að allar manneskjur hefðu rétt til efnahagslegs öryggis. Í þeim efnum væri ljóst að hagsmunir stórra fyrirtækja væru ofar réttindum manna. Gríðarlegum fjárhæðum væri varið til að þróa og framleiða morðtól, en hlutfallslega litlu væri varið til að verja mannréttindi. Ríki sem þykjast styðja mannréttindasáttmála SÞ neituðu að leyfa stofnun alþjóðlegrar stofnunar sem myndi tryggja grundvallarmannréttindi á borð við réttinn til aðgangs að hreinu drykkjarvatni, mat og lyfjum. Bandaríkin, sem eru helstu talsmenn “íhlutana af mannúðarástæðum” hindra reglulega mannréttindi á alþjóðavísu í meintu stríði sínu gegn hryðjuverkum, með ólöglegum aftökum, pyntingum, mannránum og árásum á almenning í stríðsátökum. Þau fimm ríki sem hefðu völd innan SÞ til að beita árásarstríði í nafni samtakanna hefðu sameiginlega um 80 hundraðshluta vopnaframleiðslu heimsins á sínum vegum, þau tækju virkan þátt í alþjóðlegum vopnaviðskiptum og hefðu í fórum sínum kjarnorkuvopn sem ógna tilvist alls mannkyns.
Af þessum sökum væri ekki hægt að treysta þessum ríkjum til að framfylgja alþjóðalögum um mannréttindi með árásarstríði, eða “íhlutun af mannúðarástæðum”. Þess í stað lagði Elías til fjögurra þrepa viðbragðsáætlun ef í ljós kæmi að ríki stundaði alvarleg mannréttindabrot. Í stuttu máli væru þetta að krefja aðildarríki um að taka fulla ábyrgð, og stunda það í verki, á þeim skuldbindingum sem fælust í alþjóðlegum lögum um mannréttindamál; stofnun alþjóðlegra réttarstofnana sem fórnarlömb mannréttindabrota gætu leitað til á öruggan hátt; alþjóðlega bindandi viðurkenning á því að efnahagsþvinganir séu mannréttindabrot og krafa til SÞ um að samtökin hefðu sem helsta leiðarljós verndun mannréttinda og grundvallarréttinda á sviðum laga, efnahagsmála, félagslegra málefna og menningar.
Skilgreiningar
Í greininni “Toward a definition of economic sanctions” fer Elías yfir ýmsar skilgreiningar á hugtakinu efnahagsþvinganir og hvað einkennir þær. Elías gerir þar greinarmun á efnahagsþvingunum og vægari aðgerðum, t.d., tilteknar viðskiptaþvinganir sem fylgja reglum Alþjóða viðskiptastofnunarinnar (WTO), táknrænar aðgerðir, diplómatískar aðgerðir og vopnasölubann.
Gallinn við ýmsar fyrri skilgreiningar á efnahagsþvingunum, segir Elías, er sá að gert er ráð fyrir því að þær séu settar vegna þess að eitthvað ríki brjóti alþjóðalög- eða skyldur sínar og að tilgangur þvingananna séu að neyða ríkið til að breyta stefnu sinni. Þetta, segir Elías, stenst ekki. Ástæður fyrir efnahagsþvingunum séu ekki þessar. Þó að mannréttindabrot gætu verið einhvers konar kveikja að viðbrögðum á borð við efnahagsþvinganir, sem ekki er hægt að gera ráð fyrir, er öruggt að ástæðurnar fyrir efnahagsþvingunum eru aðrar. Ef ákveðið er að setja af stað efnahagsþvinganir gegn ríki sem veldur því að ríkið verður fátækara sem veldur því að auðveldara verður fyrir stórfyrirtæki að ná náttúruauðlindum þess og vinnuafli, eða kemur einfaldlega í veg fyrir efnahagslegan vöxt ríkisins, hvernig er hægt að halda því fram að þetta sé gert í þeim opinberlega tilgangi að bæta mannréttindi í því ríki sem verður fyrir því? Slíkt er rökleysa. Miklu hreinskilnari eru áhyggjur háttsettra bandarískra embættis- og viðskiptamanna sem hafa mótmælt efnahagsþvingunum á þeim forsendum að þær gætu bitnað á innlendum viðskiptum. Þeir lýsa efnahagsþvingunum á grundvelli markmiða í utanríkismálum þeirra ríkja sem beita þeim, í stað þess að láta eins og þær séu settar með þeim tilgangi að bæta alþjóðleg mannréttindi. Þeir viðurkenna að mannréttindasjónarmið séu hvernig þvinganirnar eru auglýstar út á við.
Hvert ríki hafi eigin sjónarmið og hagsmuni að leiðarljósi sem ástæðu fyrir því að styðja eða styðja ekki efnahagsþvinganir. Einu skilgreiningarnar sem hægt sé að beita kinnroðalaust eru þær sem ekki innihalda vísanir í það hvaða hugsjónir liggja að baki ákvörðununum. Því séu skárri skilgreiningar á borð við þessar “aðgerðir framkvæmdar að yfirlögðu ráði af ríkisstjórnum sem miða að því að koma í veg fyrir, eða hóta að koma í veg fyrir, eðlileg fjárhagsleg samskipti” (Hufbauer og Oegg, 1999).
En til að skilgreina efnahagsþvinganir í takt við raunveruleikann verður að taka tillit til þeirra afleiðinga sem þær hafa. Afleiðingar þeirra eru, í fyrsta lagi, að valda efnahagsþrengingnum á því svæði sem verður fyrir þeim. Þessar afleiðingar eru ekki einfaldlega ‘óþægilegar aukaverkanir’, heldur augljós niðurstaða slíkra aðgerða og því beint markmið slíkra aðgerða.
Raunverulegur tilgangur?
Varðandi það sem ætlast er til af efnahagsþvingunum segir Elías: “Þegar yfirlýstur tilgangur efnahagsþvingana er að stöðva hernám, knýja fram að mannréttindi séu virt eða að skipt sé um stjórnvöld felast í þeim þvingunaraðgerðir. Valdnotkun felur í sér að beitt sé þrýstingi. Þessi þrýstingur er veittur með því að valda miklum skorti innan ríkis, en hann veldur svo skorti á einstaklingsgrundvelli. Þegar þessi skortur nær því marki að vera óbærilegur er ætlast til þess að almenningur rísi upp og krefjist þess að ríkisstjórn þess verði við kröfunum sem settar eru á ríkið. Kröfur almennings eru því lykilatriði og nauðsynlegur hluti af efnahagsþvingunum með valdbeitingu” (bls 3.). Þetta merkir meðal annars að það að valda almenningi skorti og þjáningu er innbyggður hluti af notkun efnahagsþvingana.
Í öðrum tilfellum en í þvingunaraðgerðum, t.d. þegar beinlínis á að koma í veg fyrir að efnahagur ríkis geti orðið samkeppnishæfur, er tilgangurinn beinlínis sá að valda þjáningu. Það að þjáning almennings sé markmið í sjálfu sér í þeim tilgangi að ná fram pólitískum markmiðum hefur verið viðurkennt margsinnis af valdafólki ríkja sem eru duglegust við að beita þeim. Elías bendir á mörg dæmi úr Bandaríkjaþingi þar sem þetta kemur skýrt fram.
Þess vegna er hægt að bera saman efnahagsþvingana og notkun pyntinga. Vera má að deila megi um það hvert endanlegt takmark pyntinganna er, en sársaukinn sem fylgir pyntingum er hluti af skilgreiningu hans og markmið þeirra.
Sú skilgreining sem Elías stakk því upp á var einfaldlega eftirfarandi: “Samhæfðar hindrunarðagerðir á vöruskipti og/eða fjármálaviðskipti sem ætlaðar eru að skaða efnahagslíf innan gefins landsvæðis”.
Með þetta að leiðarljósi spyr Elías mikilvægra spurninga: Þar eð efnahagsþvinganir krefjast þess beinlínis að almenningi sé valdið skorti og sársauka til að ná fram pólitískum markmiðum þeirra sem beita þeim, hvernig samræmist notkun þeirra siðfræðilegum eða lögfræðilegum viðmiðum, þar á meðal mannréttindum? Og ekki síst, hvaða lögfræðilegu tæki hafa þolendur efnahagsþvingana til að leita réttar síns innan alþjóðalaga svo þau geti fengið bætur fyrir það sem þau mega þola?
Eftirmáli
Greinar Elíasar sem vísað er í hér voru skrifaðar 2003 og 2005. Á 21. öld hafa Bandaríkin og Vestrið í vaxandi mæli gert efnahagsþvinganir að meginaðferð í utanríkispólitík. Þær drepa nú 564 þúsund manns árlega skv Lancet Global Health.
Heimildir
Davíðsson, E. (2003). Toward a definition of economic sanctions. Sótt 19. desember 2019 af http://aldeilis.net/english/wp-content/uploads/sites/3/2010/05/2878_econsanc-definition.pdf
Davíðsson, E. (2005). Comment on Fernando Teson´s article ‘Defending International Law’. Sótt þann 1.1.2020 af http://aldeilis.net/english/comment-on-fernando-tes-article-defending-international-law/. Greinin birtist upprunalega í tímaritinu International Legal Theory.
Hufbauer, G. og Oegg, B. (1999). Economic sanctions. Quill Magazine, jan-feb 1999.
Rodríguez, F., Rendón, S. & Weisbrot, M. 2025. Effects of international sanctions on age-specific mortality: a cross-national panel data analysis. The Lancet Global Health, 13, e1358-e1366. Sótt frá https://www.thelancet.com/journals/langlo/article/PIIS2214-109X(25)00189-5/fulltext
Mynd á forsíðu: „Waiting“ frá Sana’a í Jemen árið 2015. Mynd eftir Julien Harneis, leyfi CC BY-SA 2.0 frá Wikimedia Commons.









