Opinbera frásögnin af Úkraínu
—

Caitlin Johnstone
8. nóv, ’22
Opinbera frásögnin af Úkraínu

Opinbera frásögnin af Úkraínu, sögð af allri vestrænu stjórnmála/fjölmiðla-stéttinni, er sú að Vladimír Pútín hafi ráðist á Úkraínu eingöngu af því hann sé illur og hati frelsi. Hann langi að ráða yfir eins miklu af Evrópu og mögulegt er af því hann þoli ekki frjáls lýðræðisríki af því hann sé annar Hitler.

Opinbera frásögnin er sú að á meðan Rússland er í Úkraínu eingöngu af því leiðtogi þess er illur þá séu Bandaríkin hins vegar í Úkraínu eingöngu af því leiðtogar þeirra eru réttlátir. Bandaríkin sjá Úkraínu fyrir vopnum, hernaðarnjósnum og aðstoð á vígvellinum með sérsveitum og CIA-liðsforingjum og setja sömuleiðis á fordæmalausan efnahagshernað gegn Rússlandi, eingöngu af þv'i Bandaríkin elska vini sína Úkraínumenn og vilja vernda frelsi þeirra og lýðræði.

Michael McFaul er prófessor og fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í Rússlandi

Ef þú efast um einhvern hluta opinberu frásagnarinnar af Úkraínu ertu versta skrímsli og falsfréttaútsendari. Af því Vladimír Pútín er annar Hitler ert þú líka jafngildur Neville Chamberlain og ert sekur um þá höfuðsynd að styðja friðkaupastefnu.

Af því að þú ert illur falsfréttaútsendari og Chamberlain-friðkaupasinni, er lögmætt að ritskoða þig. Það er lögmætt að saka þig um að vera uppkeyptur af Rússlandsstjórn. Það er lögmætt að senda á þig samstilltan hulduher nettrölla sem vinnur að því að skjóta þig niður og yfirbuga þig. Það er lögmætt að dreifa áróðri sem atar þig auri. Allar væntingar um opna umræðu hverfa út um gluggann af því þú ert skrímsli, ekki manneskja.

Ef það freistar þín að spyrja spurninga sem sá efasemdum um opinberu frásögnina ættir þú fyrir alla muni að forðast þá freistingu. Ekki spyrja af hverju vestrænir embættismenn, fræðimenn og strategistar hafa árum saman varað við því að aðgerðir vestrænna ríkisstjórna muni leiða til þessa stríðs. Ekki spyrja hvað menn eigi við þegar þeir segja að Bandaríkin hafi egnt til þessa stríðs eða þegar þeir segja að Bandaríkin noti stríðið til að koma fram markmiðum sem þau hafa undirbúið árum saman eða að þetta hafi eitthvað með það að gera að Bandaríkin hafi hindrað diplómatískar lausnir við sérhvert tækifæri. Spyrjir þú slíkra spurninga ertu versti maður í heimi.

Samkvæmt opinberu frásögninni er það svo að ef þú gerir athugasemdir við hina voldugu löggjafa varðandi stuðning þeirra við íhlutunarstefnuna í Úkraínu ertu að “lepja upp pútínískar röksemdir” og dreifa “rússneskum falsfréttum”. Það að spyrja voldugustu ríkisstjórn heims um afdrifaríkustu ákvarðanir sem teknar eru í heiminum er sumsé ofbeldi og ekki leyfilegt.

Ef þú heldur því fram að þú sért á móti staðgengilshernaði Bandaríkjanna í Úkraínu á grundvelli stríðsandstöðu ertu að ljúga, þú ert ekki stríðsandstæðingur. Þú ert því aðeins stríðsandstæðingur að þú styðjir sömu stefnu í Úkraínu eins og þekktir stríðsandstæðingar svo sem John Bolton, Bill Kristol, Tom Cotton og Mike Pompeo. Hver sá sem mælir með samningum, af-stigmögnun og slökun er stríðsæsingamaður ás borð við Hitler. Ef þú vilt fræðast um raunverulega andstríðsafstöðu skaltu leita til ábyggilegra andstríðs-fréttastofa eins og The New York Times og The Washington Post.

Opinbera frásögnin af Úkraínu er sú að bandaríska heimsveldið ljúgi aldrei eða dreifi aldrei áróðri um stríð sem Bandaríkin eru flækt í. Ef þú andmælir því er það þú sem lýgur og dreifir áróðri. Það er þess vegna nauðsynlegt að skipuleggja svona mikla ritskoðun og nettröllaþjónustu ásamt fréttum sem minna þig á hve gott og réttlátt þetta stríð sé: til að vernda þig gegn lygi og áróðri.

Ef eitthvað í opinberu frásögninni af Úkraínu hljómar grunsamlega í eyru þín þýðir það að þú hafir smitast af rússneskum falsfréttum. Ekki anda einu orði þeirra hugsana að nokkrum manni því að annars ertu sekur um að dreifa rússneskum áróðri og ert orðinn óvinur hins frjálsa heims.

Mundu, góður borgari: við verðum að vinna gegn rússneskum áróðri hvað sem það kostar til að vernda vestræn gildi tjáningarfrelsis, frjálsrar hugsunar, frjálsra fjölmiðla og hins frjálsa lýðræðis. Settu þess vegna ekki spurningarmerki við nokkurn hluta opinberu frásagnarinnar af Úkraínu. Að öðrum kosti…

Sjá greinina á heimasíðu höfundar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.