Ó-Sjálfstæðisflokkur herðir snöru að eigin hálsi, aðrir flokkar lána reipið
—

Arnar Þór Jónsson
18. sep, ’24

Utanríkisráðherra Íslands er nú lofuð af varautanríkisráðherra Bandaríkjanna fyrir stuðning og hollustu. Bandaríkin hafa verið í stöðugum stríðsrekstri síðustu áratugi og utanríkisráðherra Íslands hefur í orði og verki kastað olíu á ófriðarbálið. En hafa Íslendingar verið spurðir álits? Styðja Íslendingar áframhaldandi stríðsrekstur í Úkraínu? Í umboði hvers talaði Þórdís Kolbrún þegar hún ögraði Rússum og rússneska flotanum?  Hvaða siðferðilegu forsendur hefur utanríkisráðherra vopnlausrar þjóðar til að hvetja til hernaðar og blóðsúthellinga? Ætlar hún sjálf fram á vígvöllinn eða telur hún rétt að Íslendingar sendi menn fram til orrustu? Væri ekki rétt að við Íslendingar fengjum að lýsa afstöðu okkar til þessara stríðsæsinga áður en ráðherrar gefa yfirlýsingar í okkar nafni? Hvers konar lítilsvirðing er það fyrir almennum borgurum að nota skattfé þeirra til vopnakaupa, án þess að bera slíka ákvörðun undir dóm þjóðarinnar?

Forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, er skoðanabróðir utanríkisráðherra Íslands í flestum efnum. Trudeau er maður sem ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hafa raunar sýnt sérlega vinsemd, m.a. með því að bjóða honum hingað til lands. Hér er ný upptaka af honum að hvetja til stigmögnunar stríðsátakanna í Úkraínu, þar sem hann hvetur til þess að langdrægár eldflaugar, sem framleiddar eru í NATO ríkjum, verði notaðar á skotmörk í Rússlandi. Réttlætingin er sú að Úkraína ,,verði að vinna stríðið“ gegn Rússlandi. Öllum sæmilega skýrt hugsandi mönnum er ljóst að Úkraínumenn eru aldrei að fara að vinna þetta stríð. Ástæðan er sú, eins og Trudeau og Þórdís Kolbrún ættu að vita, að Rússar gætu tortímt gjörvöllu mannkyninu aðeins með því að nota brotabrot af vopnabúri sínu. Því er enginn að fara að ,,vinna stríð“ gegn Rússum. Ræða Trudeaus er óráðstal óábyrgs manns sem ekki ætlar sjálfur að fórna neinu í þeim blóðsúthellingum sem hann boðar. 

Á sama tíma og lægra settir pótintátar hittast á Íslandi, sitja æðstu ráðamenn Bretlands og Bandaríkjanna á fundi til að ráðslaga um hvernig unnt sé að stigmagna stríðsátökin. Hefur einhver heyrt framangreinda ,,leiðtoga“ NATO ríkjanna kalla eftir friðsamlegri lausn? Væri orkunni ekki betur varið í friðarviðræður en stríðstal? Hið pólitíska vald á Vesturlöndum er komið í trölla hendur. Fáviska þeirra hefur fært alla heimsbyggðina á barm gjöreyðingarstríðs þriðju heimsstyrjaldarinnar.  

Utanríkisráðherra Íslands er holdgervingur þeirrar öfugþróunar sem orðið hefur i vestrænum stjórnmálum á síðustu árum og áratugum. Í stað þess að þjóna almenningi í sínu eigin landi koma ráðamenn fram sem eins konar lénsherrar, þ.e. fulltrúar erlends yfirvalds. Eins og sannir lénsherrar ber þetta fólk meiri umhyggju fyrir yfirþjóðlegum hagsmunum en því að framkvæma vilja almennings og þjóna sínum eigin landsmönnum. Þess í stað ganga þau fram sem fulltrúar valdstjórnarinnar. Þetta er gert með því að tilkynna ákvarðanir sem búið er að taka (án lýðræðislegrar umræðu). Vilji valdhafanna er þá klæddur í búning stjórnvaldsreglna og þær svo notaðar til að skerða bæði frelsi og eignir borgaranna. Þetta veldur því að stöðugt sígur á ógæfuhliðina í stjórnarfarslegu tilliti.

Og nú hefur utanríkisráðherra tilkynnt að hún hyggist bíta höfuðið af skömminni og misvirða stjórnarskrá lýðveldisins með nýrri tilraun til að leggja fram frumvarp um bókun 35. Með frumvarpinu er grafið undan Alþingi og íslensku lýðræði, auk þess sem vegið er að réttaröryggi landsmanna því frumvarpið mun hafa þau áhrif að samþykkt lög frá Alþingi þurfa að víkja fyrir EES reglum verði árekstur þar á milli. Með frumvarpinu vefur utanríkisráðherra snöru um háls síns eigin flokks, kastar rýrð á alla sögu flokksins og pólitíska arfleifð hans, gengisfellir sjálfstæðisstefnuna og rýrir auðvitað sjálfstæði Íslands. Frumvarpið felur í sér misgerð gegn öllum þeim sjálfstæðismönnum (með stóru og litlu essi) sem fórnuðu tíma og fjármunum til að vinna að sjálfstæði Íslands á þeim góða grunni sem lagður var með Sjálfstæðisstefnunni 1929. Með því að hleypa þessu frumvarpi í gegnum þingflokksherbergið hefur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins brugðist sjálfum sér, flokknum og kjósendum. Afleiðingarnar munu birtast í næstu kosningum.

Aðrir þingflokkar hljóta glaðir að vilja lána þingmönnum Sjálfstæðisflokksins reipi í framangreinda snöru, því það er augljóslega hagur allra annarra þingflokka að Sjálfstæðisflokkurinn dingli sem lengst í gálganum sem þeir hafa sjálfir valið sér.  

Ef þingmenn, ráðherrar og forseti Íslands hyggjast veita frumvarpinu brautargengi og gera þessi ólög að lögum, þá ganga bregðast þau um leið því drengskaparheiti sem þau hafa öll unnið, þ.e. að standa vörð um stjórnarskrá Íslands. 

Öllu hefur verið snúið á hvolf: 

“We now live in a nation where doctors destroy health, lawyers destroy justice, universities destroy knowledge, governments destroy freedom, the press destroys information, religion destroys morals, and our banks destroy the economy.” (Chris Hedges)

  • Forsíðumynd: Þórdís Kolbrún ásamt utanríkisráðherrum Eyatrasaltsríkja hvetur mótmælendur í Georgíu til dáða í maí sl. Mynd: Mtavari.tv

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.