Leyniskjöl – „vestræna stjórnlistin“ í Sýrlandi
—

syrland.BNA.stimpill
Sýrland – Eign Bandaríkjanna?

Stríð Vestursins í Sýrlandi er leynistríð. Vissulega var „Fjölþjóðaliðið gegn ISIS“ undir forustu Bandaríkjanna stofnað 2014 og hóf lofthernað á Sýrland, opinberan hernað þó að hann stríði gegn alþjóðalögum. En hinn óopinberi hernaður Vesturvelda (USA fremst) og staðbundinna bandamanna þeirra gegnum leppheri og staðgengilshernað, hernaðarráðgjöf og stjórnun skiptir þó meira máli. Vopnun, kostun, mönnun stríðsins – sem oftast er kallað „uppreisn“.


En þau afskipti eiga og þurfa að vera leynileg og þess vegna er afar lítið um þau rætt í hinni miðstýrðu opnu orðræðu á Vesturlöndum. Vestræn meginstraumspressa er stórkostlega miðstýrð og í málefnum stríðs er henni stýrt beint frá Pentagon. Í valkvæðum miðlunum (fjölmiðlum gegn straumnum) koma hins vegar oft fréttir af slíku, en þá er það gjarnan eitthvað sem hefur „lekið út“, utan dagskrár. Með því að hlusta bara á fjölmiðla eins og RÚV – sem aldrei nefnir vestrænt baktjaldamakk og leyniskjöl – fáum við einfaldlega kolrangan skilning á stríðinu. Ég ætla að tiltaka hér tvö dæmi um brölt vestrænu strategistanna að tjaldabaki.

Fyrra dæmið: Árið 2015 unnu hin íhaldssömu bandarísku baráttusamtök um upplýsingafrelsi Juridical Watch dómsmál og fengu aflétt leynd á ákveðinni skýrslu bandarísku stofnunarinnar Department of Intelligence Agency (DIA) frá 2012, stofnunar sem heyrir undir bandaríka hermálaráðuneytið. Skýrslu um „uppreisnina“ í Sýrlandi. Þar segir berum orðum: „Salafistarnir, Músímska bræðralagið og AQI [Al-Qaeda í Írak] eru aðalöflin i uppreisninni í Sýrlandi.“ Og ennfremur: „…Ef greiðist úr stöðunni er möguleiki að stofna yfirlýst eða óyfirlýst furstadæmi salafista í Austur-Sýrlandi (í Hasaka og Deir ez-Zor) og það er einmitt það sem stuðningsveldin við andspyrnuna vilja, til að einangra Sýrlandsstjórn sem líta má á sem hluta af sjía-útþenslunni (Íran og Írak).“ Á öðrum stað í skýrslunni er AQI nefnt „ISI“ og það er alveg ljóst að um er að ræða hið verðandi ISIS. Til að útskýra hverja átt er við með „stuðningsveldin við andspyrnuna“ segir skýrslan: „Vestrið, Persaflóaríkin og Tyrkland styðja uppreisnina á meðan Rússland, Kína og Íran styðja stjórnvöld.“ Sjá umrætt skjal.

Þessi áform frá 2012 gengu eftir á næstu misserum, með gríðarlegri styrkingu „uppreisnaraflanna“. Það var sérlega dularfullt mál hvernig hin þungvopnuðu ISIS og önnur útibú Al-Kaida (sem allt eru salafí-súnnítar) gátu yfirbugað Sýrlandsher (og Íraksher) á einu svæðinu á eftir öðru, einni borginni á eftir annarri, og árið 2014 stofnað „kalífat“ í Sýrlandi og Írak. Þá þróun mála notuðu svo Bandaríkin (og Vestrið) sem yfirvarp fyrir áðurnefndri opinskáu íhlutun – sem opinberlega beindist „gegn ISIS“ (!) – þegar þau sama ár stofnuðu „Fjölþjóðaliðið gegn ISIS“.

Seinna dæmið: Breskur diplómat fyrir Miðausturlönd, Benjamin Norman, staðsettur í USA, sendir leynilegt símskeyti 12. janúar 2018 sem lekur samt út og er fyrst birt í líbönsku blaði, Al-Akhbar. Það segir af fyrsta fundi í „The Small American Group on Syria“ höldnum í Washington 11. janúar og öðrum slíkum fundi áformuðum í París 12 dögum síðar. Þessi grúppa lykilaðila setur sér að stjórna þróun Sýrlandsstríðsins bak við tjöldin. Það segir sína sögu að miðað við upphaflega kjarnann í Vestur-bandalagainu (Vestrið, Persaflóaríkin og Tyrkland) er Tyrkland nú ekki haft með í hópnum. Fulltrúarnir í „The Small Group“ eru frá Bandaríkjunum (David Satterfield, aðstoðar-utanríkisráðherra fyrir Miðausturlönd), Bretlandi, Frakklandi, Sádi-Arabíu og Jórdaníu. Þarna kemur fram núverandi „strategía Vestursins“: „skipting landsins [Sýrlands], ónýting Sochi-viðræðnanna, hindranir gagnvart Tyrklandi“ (“partition of the country, sabotage of Sochi, framing of Turkey“). Einnig kemur fram að Trumpstjórnin ætlar nú USA langvarandi hernaðarviðveru í Sýrlandi þrátt fyrir sigrana yfir ISIS, og að megintilgangur þeirrar viðveru er að hindra Íran í að ná of mikilli fótfestu í landinu. Fyrstu skref í baktjalda-diplómatíinu eru annars vegar að spilla tilraunum Rússa og Tyrkja til friðarviðræðna í Sochi sem haldnar voru í lok janúar og „styrkja Genfar-ferlið“, að senda „leiðbeiningar“ og „stuðning“ til Staffan de Mistura yfirmanns viðræðnanna í Genf á vegum SÞ. Þarna kemur líka fram vilji Bandaríkjanna að taka með kúrda í „Genfar-ferlið“ þó það skapi erfiðleika gagnvart Tyrkjum. Sjá grein um símskeytið.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.