Kafka á Alþingi
—

Ögmundur Jónasson
17. mar, ’25

Ekki er svo að skilja að Franz Kafka hafi tekið sæti á Alþingi, enda búinn að hvíla í gröf sinni suður í Prag í 101 ár. En bækur þessa merka rithöfundar lifa enn góðu lífi. Ekki síst Réttarhöldin, Der Prozess, sem kom út að Kafka látnum árið 1925. Margir þekkja til þeirrar bókar jafnvel þótt þeir hafi ekki lesið í henni stafkrók. Það er vegna þess að með henni fékk Kafka því áorkað að koma ákveðinni hugsun um „kerfið” inn í vitund eftirkomandi kynslóða.

Lesandi Réttarhaldanna fylgir söguhetjunni Jósef K. um refilstigu réttarkerfis án þess að fá nokkru sinni botn í það hver meintur glæpur hans hafi verið: „Þarna sérðu … hann viðurkennir að hann þekki ekki lögin en fullyrðir jafnframt að hann sé saklaus.”

Nafn Kafka er orðið eins konar samheiti fyrir kerfi sem talar til okkar án þess að við fáum nokkurn botn í hvað snýr upp og hvað niður.
Þetta kom upp í hugann þegar ég las á nýjan leik frumvarp um svokallaða bókun 35 ásamt greinargeð. Frumvarpið kom fyrst fram árið 2023 en fékk ekki afgreiðslu og er hermt að mörgum þingmönnum hafi gengið treglega að skilja það. Aðrir sem vildu fá frumvarpið samþykkt þóttust skilja það en töldu farsælast að hafa málið hæfilega þokukennt. Og nákvæmlega þarna er Kafka.

Þessu lagafrumvarpi um bókun 35 er ætlað að herða á EES-rétti í málum sem koma fyrir íslenska dómstóla. Frumvarpið er ein grein, svohljóðandi í útgáfunni frá 2023:
„Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum.“
Í nýframlögðu frumvarpi er greinin óbreytt að öðru leyti en því að bætt hefur verið við sex nýjum orðum: „ …ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.“ Í greinargerð segir að þetta hafi verið gert til að gera „lagaákvæðið skýrara.“ Það er nú það. En nú byrjar líka ballið.

Samkvæmt orðanna hljóðan eiga lög og stjórnvaldsákvæði EES, „réttilega“ innleidd, jafnan að hafa forgang umfram innlenda lagasmíð sem kann að stangast á við EES réttinn „nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað.“ En spyr þá sá sem ekki veit: Má Alþingi mæla fyrir um annað? Jú, segir í greinargerð frumvarpsins, það er að sjálfsögðu leyfilegt en engu að síður rangt og skapar að öllum líkindum skaðabótarétt á hendur íslenska ríkinu enda gengi slíkt gegn þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands. Og varla kunni það góðri lukku að stýra: „Sem lítið og opið samfélag hefur Ísland ríka hagsmuni af því að staðið sé við þjóðréttarlegar skuldbindingar.“ Leyfist mér að spyrja – þótt það sé aukaatriði í þessu samhengi – hvort það hljóti ekki að teljast rétt fyrir öll ríki, stór og smá, að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar?

Út alla greinargerðina er hamrað á því að Íslendingum sé fullkomlega frjálst að setja öll þau lög sem þeir vilji, þannig að því fari fjarri að um nokkurt framsal á fullveldisvaldi sé að ræða, en við þyrftum að sjálfsögðu að hafa hugfast að feilspor af okkar hálfu muni leiða til kæru og skaðabóta!

Eftir nokkra yfirlegu yfir texta frumvarpsins og greinargerð þess, rennur það upp fyrir lesanda að markmiðið er það eitt að svipta íslenska dómara réttinum til að meta það sem kann að vera á gráu svæði; þar sem skarast íslensk lög og dómahefð og svo EES-réttur.

Ég nefni til dæmis um þetta þegar álit lagaprófessora við Háskóla Íslands og háskólans í Árósum var á þá leið að heimilt væri fyrir Íslendinga að meina EES þegnum að kaupa land á Íslandi, hefðu þeir ekki heimilisfesti í landinu nema að kaupin tengdust sannanlega áformum um atvinnurekstur samkvæmt fjórfrelsi EES.

Augljóst er að aðstandendur þessa frumvarps telja að túlkunarréttur á slíkum álitamálum sé hjá EFTA-dómstólnum og skuli leitað til hans sé uppi vafi um skörun EES-regluverks og innlendra laga enda eins gott: „ESA hefur kynnt að fyrir liggi að verði ekki bætt úr innleiðingu á bókun 35 muni stofnunin taka næsta skref og höfða mál fyrir EFTA-dómstólnum með kröfu um staðfestingu dómstólsins á því að Ísland hafi brotið gegn skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum.“

Ef hins vegar íslensk stjórnvöld geri það sem þeim er uppálagt eins og til stendur verði allt í himnalagi, eða eins og það er orðað í greinargerðinni : „Með frumvarpinu er frumkvæði og forræði stjórnvalda á málinu tryggt“!

Eins og Jósef K. reyndi að skilja lögin, hljótum við að vilja fá botn í hvað við er átt þegar fullyrt er að með lagaákvæðinu um bókun 35 felist engin skerðing á íslenskum rétti en í sama orðinu sagt að „trúnaðarskylda“ EES-samningsins geri „þær kröfur“ að aðildarríkin „geri allt sem í þeirra valdi stendur“ til að tryggja samningnum forgang „og megi ekki gera neitt“ sem stríði gegn því.

Sem sagt: Ekkert fullveldisafsal, en hvergi megi þó hefta forgang Brussel; EFTA-dómstóllinn skilgreini þann forgang en Alþingi megi engu að síður „mæla fyrir um annað“; sé það EFTA- dómstólnum hins vegar ekki að skapi verði Ísland að sæta lögsókn og sektum.
Eru ekki allir með á nótunum?
Ertu þarna Jósef K.?

Greinin birtist áður í helgarblaði Morgunblaðsins 15/16.03.25

Einnig á heimasíðu höfundar, ogmundur.is

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.