Ísrael hvílir á veikum lagalegum grunni
—

Ari Tryggvason
7. maí, ’25

Nú hafa yfirvöld í Ísrael viðurkennt að þau ætli að innlima Gaza, fylgja tillögum Trumps forseta Bandaríkjanna. Aðgerðin hefur fengið nafnið, „Hervagnar Gídeons.‟ Hin veraldlegu stjórnvöld Ísraels skirrast ekki við að skreyta sig með gildishlöðnum heitum úr Bíblíunni til að efla eldmóð sinna manna og slá ryki í augu okkar hinna.

Hamas var aldrei annað en blóraböggull. Hernaðurinn er trúr sínu eðli; útrýming á íbúum Gaza. Hamas gátu aldrei gert Ísrael til hæfis. Það var m.a. dauðadómur fyrir sérhvern leiðtoga Hamas að tala fyrir friði.

Vonandi hafa sem flestir ráðamenn, vítt og breitt, áttað sig á því að tómt mál er að beina orðum sínum til yfirvalda í Palestínu, hvort sem það er á Gaza eða á Vesturbakkanum. Þau hafa lítið um málið að segja gegn ægivaldi og duttlungum Ísraels.

Allir stjórnmálaleiðtogar ættu að vita að vandinn liggur ekki hjá Palestínu þótt ýmsir þeirra hafi fallið í þá gryfju. Ábyrgðin liggur fullkomlega hjá Ísrael sem stundar grimmilegt landvinningastríð, sem stjórnvöld þar hafa nú í rauninni viðurkennt með því að ætla að innlima Gaza. Ábyrgð Ísraels liggur dýpra en gæti virst í fyrstu.

„Ísrael er eina lýðræðisríkið í Miðausturlöndum,‟ hver kannast ekki við þetta? sem er eins konar mantra gjammandi yfir okkur eins og varðhundur. Það má zíonisminn eiga að sá gjammandi varðhundur hefur króað margan manninn af og gert hann að talsmanni landráns og aðskilnaðarstefnu. Getur verið að innistæðuna vanti fyrir þessari fullyrðingu um eina lýðræðisríkið í heimshlutanum?

Einn helsti vandi Ísraels er stjórnarfarslegur. Í raun og veru hvílir Ísrael á afskaplega veikum grunni. Landið hefur aldrei eignast sína stjórnarskrá. Lögin eru hálfgerður bútasaumur, saumaður eftir þörfum.

Þegar Ísraelar hófu að mótmæla endurskoðun dómskerfisins í byrjun árs 2023 furðuðu þeir sig á öfgakenndri áætlun ríkisstjórnarinnar og í rauninni augljósu valdaráni. Höfuðvandinn er vöntun á stjórnarskrá sem veikir stofnanir landsins. Þetta eru landsmenn æ betur að átta sig á og sem trúlega á sinn  þátt í miklum flótta frá Ísrael.

Allar götur frá stofnun Ísraels hefur það skort grundvöll lýðræðisríkis. Í áratugi hafa ýmsir þingmenn ásamt kynslóðum lögfræðinga viðurkennt það. Einnig hefur það verið viðurkennt að Ísrael stendur frammi fyrir vaxandi óvissu um lögmæti sitt í kjölfar hernáms Palestínu og yfirráðum yfir fjölda ríkisfangslausra. Hernámið hefur Alþjóðadómstóllinn dæmt ólöglegt. Þrátt fyrir hernaðinn gegn Gaza, er tilhneiging í Ísrael til að líta á þessi tvö mál, vöntun á stjórnarskrárskipan og áframhaldandi hernám Palestínu, sem algerlega aðskilin mál. Þau eru hins vegar algerlega óaðskiljanleg. Það er vöntun lýðræðislegra grunnstoða Ísraelsríkis sem hefur gert því kleift að viðhalda og auka hernámið jafnt og þétt.

Þrátt fyrir endurteknar tilraunir, allt frá stofnun ríkisins, hefur mistekist að samþykkja formlega stjórnarskrá. Stjórnarskrá sem skilgreinir valdsvið mismunandi stofnana innan stjórnkerfisins; sem búi yfir heildstæðri réttindaskrá; sem tryggi grundvallarmannréttindi, borgaraleg réttindi og jafnréttindi allra. Í staðinn hefur landið byggt á löggjöfum, dómsúrskurðum og sérstöku fyrirkomulagi sem venjur og hættir hafa þróað.

Landið er með mjög veika mannréttindalöggjöf sem byggir á mjög svo umdeildum lögum, samþykkt snemma á 10. áratugnum. Árið 2018 gáfu einnig umdeild lög einungis gyðingum sjálfsákvörðunarrétt í Ísrael. Auk þess eru ekki öll landamæri áþreifanlega skilgreind ólíkt því sem gerist víðast hvar í ríkjum sem vilja kenna sig við lýðræði. Þess vegna er oft óljóst hvar lög Ísraels eiga við og hvar ekki. Ríkið stýrir einnig milljónum Palestínumanna sem ekki njóta grundvallarréttinda.

Í upphafi voru menn vel meðvitaðir um þá þætti sem nauðsynlegir væru til að gera landið að alvöru lýðræðisríki. En fyrsti forsætisráðherrann, David Ben-Gurion varð andsnúinn hugmyndinni í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingarinnar í maí 1948. Vöntun á stjórnarskrá þýddi að Ísrael skorti bindandi lagalegan grunn, sjálfan grundvallarþátt lýðræðisins.

Við sjálfstæðisyfirlýsinguna voru um 750.000 frumbyggja Palestínuaraba, ýmist reknir eða höfðu flúið svæði sem innlimuð voru í hið nýja ríki. Um 150.000 héldu kyrru fyrir sem var um 15 prósent af íbúum Ísraels. Þar sem engin stjórnarskrá var til, skjalfest réttindi eða jafnvel lög um ríkisborgararétt, varð staða þessa hóps óljós. Hið nýja ríki tók upp framsækna stefnu um almennan kosningarétt, einnig fyrir Palestínumenn í Ísrael. En það setti einnig megnið af samfélögum þeirra undir herlög sem var framfylgt með neyðarreglum nýlendutímans frekar en gegnum lög ríkisins. Sú aðferð hélt fram að sex daga stríðinu 1967 þegar Palestínuarabar innan Ísraels hlutu borgaraleg réttindi. En á sama tíma kom ríkið enn aftur á fót herstjórn sem tók til nær milljón Palestínumanna á nýjum hernumdum svæðum, undir yfirskini tímabundins hernáms, risastórs hóps réttindalausra þegna.

Grundvallarmarkmið Netanyahus í endurskipulagningu dómskerfisins er að auðvelda innlimun Palestínu. Sú spurning hlýtur að vera knýjandi, hvers vegna fyrsti forsætisráðherra Ísraels, David Ben-Gurion var andsnúinn því að landið yrði raunverulegt lýðræðisríki. Að framansögðu er það ljóst að ýmislegt er hægt að gera, ýmislegt hægt að komast upp með, bak við veika lagastoð. Var það framtíðarsýn fyrsta forsætisráðherra Ísraels, að skýla sér á bak við vafaatriðin, sem stjórnarskrárleysið og veikur lagagrunnur veitti? Það sem er að gerast gagnvart Gaza nú hefði enga stoð í lögum og stjórnarskrá Ísraels ef landið hefði borið gæfu til að verða raunverulegt lýðræðisríki.

Ríkjandi stjórnarfarsreglur, allt frá stofnun Ísraelsríkis, hafa hins vegar verið landrán og aðskilnaðarstefna. Stefna sem í raun og veru hafði verið að festa sig í sessi löngu fyrir stofnun ríkisins, þegar hreyfingar zíonismans fóru að skipuleggja sig upp úr aldamótunum 1900. Helstu kyndilberar zíonismans nú, eru augljóslega, D. Trump og B. Netanyahu. Það er spurning hvort David Ben-Gurion hafi verið svona „framsýnn.‟

Heimild: Scheindlin, Dahlia, „The Fight for a New Israel.‟ Foreign Affairs, nr. 6, nóv./des. 2024.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Nýjustu greinar

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.