Hvað er svona slæmt við markaðsvæðingu að hætti ESB?

Ögmundur Jónasson
5. febrúar, 2026

Ég hef verið spurður ögn út í þetta eftir orðaskipti sem ég átti á mánudag á Samstöðinni við félaga í Evrópuhreyfingunni sem ólmur vill með Ísland inn í ESB; kveðst vera hlynntur blönduðu hagkerfi og í ESB væri séð til þess að slíkt kerfi væri eins og best verður á kosið með neytendavernd og samkeppniseftirliti. Svo væru það gildin sem þar væru i hávegum höfð, frelsi til orðs og æðis. Ekki mætti gleyma þeim. Þetta var nokkurn veginn svona.

Umræða um gildin er að sjálfsögðu lykilatriði en læt þau þó liggja á milli hluta að sinni; verð þó að segja að ég tel ástæðu til að horfa gagnrýnið á hvert stefnir innan margra ríkja Evrópu og Evrópusambandsins sjálfs hvað tjáningarfrelsi og önnur mannréttindi varðar. Þar liggur farvegurinn augljóslega í átt til skerðingar á réttindum og aukinnar valdstjórnar. Má sjá þessa mörg dæmi sem vert er að ræða áður en tekin er afstaða til inngöngu í ESB.

En það var blandaða hagkerfið og markaðsvæðingin sem ég ætlaði að nefna því út í það hef ég verið spurður sem áður segir.

Í Evrópu hafa flest ríki blandað hagkerfi sem kallað er óháð því hvort þau eru innan eða utan ESB. Slagurinn stendur því ekki um hið blandaða hagkerfi sem slíkt heldur fremur blönduna í kerfinu, hvað eigi að vera á hendi almannavaldsins og hvað eigi að ganga til fjárfesta.

Ég er afdráttarlaust þeirrar skoðunar að innviðir samfélagsins eigi að vera félagslega reknir og haldið utan seilingar þeirra sem vilja nota þá til að maka krókinn. Innviði eigi með öðrum orðum að reka á samfélagslegum forsendum en gróðahugsun haldið þar utandyra.

Þarna liggur meginþunginn í gagnrýni minni á Evrópusambandið. Það hefur beinlínis gengið fram fyrir skjöldu, tekið innviði hvern af öðrum og krafist markaðsvæðingar. Síðast var það raforkan áður hefur verið tekist á um ýmsa þætti velferðarþjónustunnar. Um þetta hafa verið mikil átök sem ég þekki mjög vel til af vettvangi evrópskrar verklýðshreyfingar frá því á síðari hluta tíunda áratugarins og fram á þennan dag. Þetta er með öðrum orðum, markaðsvæðing að hætti ESB.

Þótt vinstri menn og hægri menn kunni að greina á um hve langt eigi að ganga i markaðsvæðingu samfélagsins þá held ég að mörgum hrjósi hugur við því að allri Evrópu skuli miðstýrt inn í tiltekið mót að þessu leyti og af slíkri harðdrægni að sektir liggi við sé ekki farið að settum fyrirmælum.

Við getum tekist á um hvernig hagkerfi okkar og samfélagsskipan allri skuli háttað en lýðræðislegur vilji almennings hlýtur að eiga sinn sess. Svo er ekki í Evrópusambandinu. Það er orðið að miðstýrðu bákni sem beitt er í þágu markaðsafla sem vilja hagnast á grunnþörfum samfélagsins. Átökin snúast um þetta: samfélag og lýðræði, um fólk og fjármagn.

Ég ætla að voga mér í lokin að segja að þetta snúist líka um það sem stundum hefur verið kallað heilbrigð skynsemi. Hún gengur út á það að eitt kunni að vera rétt hér en rangt þar og heppilegt hér en óheppilegt þar. Evrópusambandið er ekki mikið gefið fyrir þessa tegund af skynsemi, vill hafa allt undir straujárni. Ég er hins vegar mikið gefinn fyrir þessa hugsun.
Það er kannski þess vegna sem ég er lítið gefinn fyrir ESB.

Birtist á heimasíðu Ögmundar Jónassonar https://www.ogmundur.is þann 4. febrúar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.