Heimsvaldastefnan – með meginfókus á þá bandarísku – II

13. ágúst, 2020 Þórarinn Hjartarson


Seinni grein



Fyrri grein um heimsvaldastefnuna fjallaði einkum um efnahagslegan grundvöll hennar en þessi hér um pólitísku og hernaðarlegu hliðina, baráttuna um áhrifasavæði – og heimsyfirráð. Greinin byggir á fyrirlestri hjá Sósíalistaflokknum 4. júlí sl.


Hernaðarlegt og efnahagslegt stríð

Auðmagnið, „frjálsa framtakið“ og markaðsöflin flæða ekki einfaldlega um löndin af sjálfsdáðum. Þau mæta m.a. mismiklu viðnámi frá þjóðríkjum og keppni frá keppinautum. Pulitzer-verðlaunahafinn Thomas Friedman skrifar reglulega pistla í NYT um hnattvæðingu og alþjóðamál, m.a. í pistli frá því um aldamót, svohljóðandi.

„Til að hnattvæðingin virki mega Bandaríkin ekki hika við að koma fram sem það allsráðandi risaveldi sem þau eru… Hulin hönd markaðarins getur ekki virkað án hins hulda hnefa. McDonalds getur ekki blómstrað án McDonnel Douglas sem bjó til F-15 fyrir flugher Bandaríkjanna. Og sá huldi hnefi sem leyfir tækni Silicon Valley að blómstra í öruggum heimi heitir landher, flugher og floti Bandaríkjanna.“ https://fair.org/media-beat-column/thomas-friedman/

Farvegir fjármagnsins (arðránsins) liggja frá jaðrinum og streyma til kjarnans samkvæmt eðli heimsvaldastefnunnar. Hernaðarleg yfirráð tryggja þessa farvegi og tryggja fjármagnsflæðið í rétta átt. Bandarískar herstöðvar í hundraðatali raðast um heiminn út frá þessu munstri.

Þegar kalda stríðinu lauk héldu ýmsir, jafnvel bandaríska þjóðin, að upp myndu renna friðsamlegir tímar og það myndi draga úr hernaðaruppbyggingu. En bandarísk utanríkisstefna og strategía er ekki ákveðin á þjóðþingi heldur af nokkrum hugveitum elítunnar sem þekkja raunveruleika heimsvaldastefnunnar álíka vel og Vladimir Iljits Lenín gerði. Í mars 1992, þegar Sovétríkin voru nýlega fallin og Persaflóastríðinu – fyrsta meiriháttar stríði Bandaríkjanna í Miðausturlöndum – var nýlokið settu þeir Dick Cheney varnarmálaráðherra og Paul Wolfowitz aðstoðarráðherra hans fram utanríkisstefnu í ljósi nýjustu stórtíðinda – oft nefnd Wolfowitz kenningin – stefnu sem Bandaríkin hafa staðfastlega fylgt síðan undir breytilegum stjórvöldum: „Fyrsta markmið okkar er að hindra að aftur komi upp nýr keppinautur, annað hvort á landssvæði fyrrum Sovétríkjanna eða annars staðar… að hindra sérhvert fjandsamlegt vald í því að drottna yfir svæði sem býr yfir auðlindum sem myndu, undir styrkri stjórn, nægja til að búa til hnattrænt vald.“ (Sjá NYT https://www.nytimes.com/1992/03/08/world/excerpts-from-pentagon-s-plan-prevent-the-re-emergence-of-a-new-rival.html ).

Seríustríðið í Austurlöndum nær sem í bandarískum hernaðarkreðsum er oft nefnt „stríðið langa“ hófst með Persaflóastríðinu u.þ.b. þegar Wolfowitz og Cheney skrifuðu ofanritað. Aðrir miða reyndar upphaf þess við 11. september 2001. „Stríðið langa“ snýst um tilraunir bandarískra heimsvaldasinna til að tryggja full yfirráð sín á efnahagslegu lykilsvæði sem Austurlönd nær eru. Í þeim tilgangi komu bandaríkin upp 125 herstöðvum í Austurlöndum nær á árabilinu 1983-2005. Mesta uppbyggingin var eftir að kalda stríðinu lauk. Til að tryggja full yfirráð þurfti að brjóta niður þvermóðskufull sjálfstæð ríki á svæðinu. „Stríðinu langa“ er stjórnað frá Bandaríkjunum með þátttöku svæðisbundinna bandamanna þeirra og NATO-ríkja. Mikilvægustu vígvellirnir hingað til eru Írak, Afganistan, Líbía og Sýrland.

Í ríkjandi orðræðu og fréttaflutningi á Vesturlöndum er „Stríðinu langa“ ýmist lýst sem „stríði gegn hryðjuverkum“, sem „borgarastríði“ eftir trúarbragðalínum eða sem „uppreisn gegn harðstjórn“ sem kalli á „verndarskyldu“ (responisbility to protect) svokallaðs „alþjóðasamfélags“ (sama sem Vestrið). Alvarlegast er að á 21. öldinni hefur heimsvaldasinnum og fjölmiðlum þeirra gengið furðuvel að selja stríð sín í þessum fallegu umbúðum. Andstaðan við stríðsreksturinn frá friðarhreyfingum Vesturlanda og hefðbundnum stríðsandstæðingum til vinstri hefur verið sáralítill. Og víst er að ef slík andstaða kemur fram byggir hún ekki á greiningu á heimsvaldastefnunni heldur á þeirri friðarhyggju að maður skuli ekki drepa mann.

Heimsvaldasinnum hefur almennt gengið illa í „stríðinu langa“ – en stjórnvöld í Washington sýna mikla staðfestu í því að koma óvinum sínum á kné. Bandaríska þingið hefur nýlega lögfest grimmúðlegar refsiaðgerðir gegn bæði Íran og Sýrlandi, lög sem setja útskúfun og sektir á öll fyrirtæki og öll lönd sem eiga viðskipti eða diplómatísk samskipti við þessi útlagaríki. Samskipti við þau þýða stríð við BNA. Viðskiptabannið beinist gegn almenningi þessara landa í von um pólitíska kreppu sem leiði til „valdaskipta“.

Efnahagslegt stríð er stríð með öðrum aðferðum. Hinar efnahagslegu refsiaðgerðir gegn Íran og Sýrlandi eru orðin hluti efnahagsstríði Bandaríkjanna við Kína og bandamann þeirra Rússland. Í tilfelli Kína er samt orsakasamahengið sagt vera öfugt: Ein helstu rökin fyrir refsiaðgerðum gegn Kína er sú ásökun Trump-stjórnarinnar að kínverski tæknirisinn Huawei hefði brotið bandaríska refsilögggjöf gegn Írönum (brotið bandaríska refsilöggjöf!) með því að selja þeim síma. https://neistar.is/greinar/stridid-gegn-syrlandi-efnahagsvopnunum-beitt/


Enduruppskipting eftir fall Sovétríkjanna

Þegar Lenín skrifaði Heimsvaldastefnuna 1915 gerði hann það m.a. til að skýra hreyfiöflin á bak við heimsstyrjöldina sem þá geysaði. Helstu drifkraftana bak við stríðið sá hann annars vegar í KAPÍTALÍSKRI GRÓÐASÓKN og úþensluhneigð sem af henni leiðir og hins vegar í ÓJAFNRI ÞRÓUN FRAMLEIÐSLUAFLANNA sem breytti styrkleikahlutföllum hagkerfa og skóp misræmi milli þeirra og þar með grundvöll stórstyrjalda. Heimsveldin ýmist sækja fram eða hopa á heimsmarkaði og m.t.t. áhrifasvæða – eftir styrkleika sínum. Þetta misræmi sprengir valdarammann sem fyrir er, knýr á um „enduruppskiptingu“. Lenín skrifaði: "Spuningin er: Hvaða úrræði annað en stríð kemur til greina á auðvaldsgrundvelli til þess að eyða misræmi á milli þróunar framleiðsluaflanna og samsöfnunar fjármagns annars vegar og skiptingar nýlendnanna og „áhrifasvæða“ fjármálaauðmagnsins hins vegar.“ ( Heimsvaldastefnan, bls. 130)

Þessi greining hefur reynst hafa mikinn skýringarkraft. Bretland var langsterkasta iðnríkið á 19. öld. Þýsk iðnvæðing fór seinna af stað en bæði sú enska og franska en þróaðist mun hraðar – og um aldamótin 1900 sigldu Þjóðverjar fram úr Bretum í iðnaði. Hins vegar voru áhrifasvæði þeirra miklu minni en Breta og Frakka. Misræmið milli efnahagsvaxtar og takmarkaðs „LÍFSRÝMIS“ Þýskalands lá að baki tveimur heimsstyrjöldum. Við það bættist sprengiefnið sem fólst í keppni tveggja rísandi heimsvelda, Bandaríkjanna og Japan, um Kyrrahafssvæðið.

Í enduruppskiptingunni 1939-45 var það nýja heimsveldið Bandaríkin sem sprakk út auk þess sem sósíalísk Austurblokk varð til. Á 8. og 9. áratugnum, tóku Sovétríkin – sem þá höfðu tekið upp ríkiskapítalisma – þátt í heimsvaldataflinu og sóttu fram á ýmsum svæðum en það valdabrölt stóð alltaf á veikum efnahagsgrunni heima fyrir og endaði í kreppu og samfalli Austurblokkarinnar 1989-91.

Ef stórveldi í heimsvaldakerfinu brotnar saman og missir stjórn yfir áhrifasvæðum skapast „tómarúm“ sem keppinautarnir munu keppast um að fylla í gróðasókn sinni. Þetta gerðist einmitt kringum 1990 við fall Sovétríkjanna . Valdaramminn var sprengdur og risastórt svæði stóð opið til enduruppskiptingar. Strategistarnir í Washington sögðu með orðum Wolfowitz og Cheney frá 1991: “Fyrsta markmið okkar er að hindra að aftur komi upp nýr keppinautur, annað hvort á landssvæði fyrrum Sovétríkjanna eða annars staðar…“ Risaveldið var aðeins eitt og heimurinn var í raun einpóla (unipolar). Það „tómarúm“ sem um var að ræða var í fyrsta lagi Austur-Evrópa og Balkanskagi en einnig svæðið sunnan gömlu Sovétríkjanna í Mið-Asíu og Miðausturlöndum. Þau svæði hafa fengið að finna fyrir strategíunni frá Washington.

Fyrstu stórátök sem þjónuðu enduruppskiptingu voru stríðin á Balkanskaga á 10. áratugnum. Svo kom 11. september, Bandaríkin og NATO skrifuðu þá á fána sína nýja stríðsyfirskrift: „stríð gegn hryðjuverkum“. Það hefur síðan verið hornsteinn í hugmyndafræði endurnýjaðrar hernaðarstefnu. Á fyrri hluta árs 2002 settu stjórnvöld í Washington fram lista yfir „öxulveldi hins illa“ sem innihélt Íran, Írak, Sýrland, Líbíu auk gömlu óvinanna Norður-Kóreu og Kúbu. „Stríðið langa“ í Austurlöndum nær hlýtur nað skoðast sem stríð heimsvaldasinna til ENDURUPPSKIPTINGAR eftir fall Sovétríkjanna.

Eftir að Varsjárbandalagið leysist upp breytti NATO sér skjótlega í hnattrænt bandalag. Stækkun bandalagsins með nýjum aðildarríkjum var fyrst og fremst inn á gamla svæði Sovétríkja og Austurblokkarinnar. Sú stækkun hefur verið nær alveg samstíga stækkun ESB. Yfirleitt er ESB skrefi á undan, innganga í ESB er næsti undanfari NATO-aðildar. ESB er klárlega á áhrifasvæði Bandaríkjanna þó að ESB sé líka keppinautur BNA. NATO var nú brátt komið upp að húsvegg Rússlands í Austur-Evrópu.

Rússland féll niður á bæði hnén á 10. áratug en hefur á Pútíntímanum risið upp og varið hagsmuni sína sem svæðisbundið stórveldi. Bandaríkin og NATO svara því með nýrri víglínu skotpalla og miklum heræfingum við alla vesturglugga Rússlands auk stórfelldra efnahagslegra refsiaðgerða gegn landinu. Lykilatriði í vígvæðingu Bandaríkjanna og NATO er að draga upp sem skýrasta óvinamynd. Myndin af Rússlandi sem fasísku og árásarhneigðu afli er þar kjarnaatriði.


Nýi áskorandinn

Ný kapítalísk efnahagsveldi hafa engu að síður náð að ryðja sér til rúms og taka vaxandi sneiðar af heimsmarkaðnum. Sem áður segir: kapítalísk efnahagskerfi þróast ójafnt. Rússland er hernaðarstórveldi á gömlum merg en verður ekki kallað efnahagslegt stórveldi og hefur ekki gert sig gildandi í baráttunni um heimsmarkaðinn, erlendar fjárfestingar Rússa eru minni háttar og langstærstur hluti af útflutningi Rússlands er hrávara (einkum jarðgas og olía) sem er ekki einkenni háþróaðs hagkerfis. http://proletaren.se/artikel/ar-ryssland-ett-imperialistiskt-land

Hins vegar hefur Rússland gert bandalag við nýja efnahagsrisann, Kína, og af honum stendur gamla risavaeldinu og bandamönnum þess mjög raunveruleg ógn. Á brautum hins frjálsa flæðis hnattvæðingarinnar renndu bandarískir vestrænir auðhringar sér austur til Kína með framleiðslu sína og græddu gríðarlega, og græða enn, á skilvirku en ódýru vinnuafli þar í landi. „Það sem hnattvæðingarhyggjan (globalism) gerði var að flytja bandarískt efnahagslíf til Kína“ skrifar Paul Craig Roberts. https://www.paulcraigroberts.org/2019/08/21/what-globalism-did-was-to-transfer-the-us-economy-to-china/ Síðan hófst næsti þáttur þegar kínverskir auðhringar tóku að renna sér eftir sömu hnattvæðingarbrautum og versla og fjárfesta í fjarlægum löndum í grimmri samkeppni við þá vestrænu. Kína er fyrir nokkru orðið mesti iðanaðarútflytjandi heims og á stutt í að verða stærsta hagkerfi heims.

Kína hefur náð að rjúfa munstur þeirrar hnattvæðingar sem reyndi að gera heiminn að einu athafnasvæði vestrænna auðhringa. Eftir að kapítalískt Kína kastaði sér út í keppnina um heimsmarkaðinn bauð það sig í fyrstu einkum fram sem vettvang erlendra fjárfestinga og bauð ódýrt vinnuafl, lága skatta og gjöld fyrir erlenda fjárfesta í neysluvöruiðnaði, en landið hefur síðan byggt upp eigin innviði, sérfræðiþekkingu og tækni – og stormar nú fram sem útflytjandi alhliða iðnvarnings og mikill fjárfestir utanlands, ekki aðeins í þriðjaheimslöndum heldur m.a í hátækniðnaði í Þýskalndi og víða í Evrópu. Kína hefur öll einkenni kapítalisma á heimsvaldastigi skv skilgreiningu Leníns.

Frá 2013 hefur Kína unnið að uppbyggingu „nýja Silkivegarins“ („Belti og braut“, BRI) efnahagsbeltis, á landi með háhraðalestum og vöru- og fjárfestingaflæði sem á að samtengja Kína og Evrópu og allt svæðið þar á milli, og aðra braut á sjó. Belti og braut náði árið 2017 yfir 68 lönd og 40% af þjóðarframleiðslu heimsins, með gríðarhröðum vexti. https://en.wikipedia.org/wiki/Belt_and_Road_Initiative#Oversight

Kína hefur sem sagt rutt Bandaríkjunum úr forustusæti í samkeppninni um heimsmarkaðinn og hótar því að rjúfa heimsvaldakerfi bandarískra yfirráða í einpóla heimi. Þetta gerir Kína í strategísku bandalagi við Rússland. Það er þess vegna komið upp mikið MISRÆMI MILLI EFNAHAGSSTYRKS HELSTU HEIMSVELDA OG HINS VEGAR ÁHRIFASVÆÐA ÞEIRRA. Líkt og staðan var 1914 og aftur 1939.

Kína er kapítalískt og heimsvaldasinnað ríki. Kína hefur gengið inn á og nýtt sér reglur hnattvæðingarinnar. Ef þróunin fær að halda áfram í friði siglir Kína fram úr BNA og Vestrinu á æ fleiri sviðum. Kína þarf ekki stríð. Spurningin er hins vegar hvort BNA láti sigla fram úr sér þegjandi og hljóðalaust? Pólitísk og hernaðarleg áhrif BNA eru ennþá margföld á við Kína.


Viðbrögð við efnahagsundanhaldi: hernaðarsókn

Jimmy Carter kallaði Bandaríkin nýlega „herskáustu þjóð mannkynssögunnar“ sem hefði aðeins haldið frið í 16 ár af 242 ára sögu sinni. https://www.paulcraigroberts.org/2019/08/21/what-globalism-did-was-to-transfer-the-us-economy-to-china/ Og víst er það að Bandaríkin og NATO hafa svarað aukinni samkeppni frá nýjum keppinautum á heimsmarkaði fyrst og fremst með HERNAÐARSTEFNU. Ástæðan er einmitt sú að Bandaríkin (og gömlu Evrópustórveldin) tapa ár frá ári í hinni efnahagslegu samkeppni. Einu raunverulegu yfirburðir sem þau hafa ennþá í heimsvaldateflinu eru hernaðarlegir.

Hitlerslíki
Af skrímslagerð

Sálfræðilega byggist þessi hernaðarstefna á djöflagerðariðnaði í fjölmiðlum. Slobodan Milosevic, Saddam Hussein, Muammar Gaddafi, Bashar al-Assad og Vladimir Pútín eiga það sameiginlegt að bandarískir ráðamenn (þar með auðvitað bandarískir fjölmiðlar) hafa líkt þeim öllum við Adolf Hitler. Slíkt er helst gert í aðdraganda einhverra stóraðgerða gegn þeim af hálfu BNA og/eða NATO. Það þarf alltaf að undirbúa árásarþjóð sálafræðilega, gera hana herskárri og viljuga að kosta miklu til, vopnum, fjármunum, ungum karlmönnum. Djöflagerðin er hluti af hernaðinum, kannski sá mikilvægasti. Undafarinn áratug hefur lykilatriði í vígvæðingu BNA og NATO verið hugmyndin um Rússland sem fasískt og árásarahneigt stórveldi – Íran sömuleiðis – til að byggja upp fjandskapinn í þeirra garð.

Undanfarin misseri og sérstaklega á yfirstandandi ári hefur hinn raunverulegi keppinautur, Kína, færst í kastljós bandaríska (og þar með vestræna) stríðsáróðursins. Í janúar kallaði Pompeo utanríkisráðherra Kommúnistaflokk Kína „höfuðógn okkar tíma“. Og fyrir skemmstu, í Houston í Texas 23. júlí, lýsti Pompeo yfir að skoða beri Kína sem óvin og sem fyrstu og helstu ógn við öyggi og hagsæld Bandaríkjanna og öryggi alls „hins frjálsa heims“. Allt þokutal um friðsamleg viðskipti víkur nú fyrir járnkaldri keppni um heimsyfirráðin. https://www.state.gov/communist-china-and-the-free-worlds-future/ Hjá sjónvarpsstöðvum heimsvaldasinna er Xi Jinping smám saman að fá á sig Hitlersskegg. Það gat ómögulega hjá því farið.

Hér er ekki um pólitíska dægurflugu að ræða. Langtíma henaðaruppbygging bandarískra heimsvaldasinna staðfestir þessar áherslur. John Pilger skrifar. „Skotmarkið er Kína. Um þessar mundir nánast umkringja yfir 400 bandarískar herstöðvar Kína með skotflaugum, sprengjuflugvélum, herskipum og kjarnavopnum. Frá Ástralíu norður eftir Kyrrahafi til Suðaustur-Asíu, Japans og Kóreu og yfir Evrasíu til Afganistans og Indlands mynda herstöðvarnar, sagði mér bandarískur herfræðingur, „fullkomna snöru“.“ http://johnpilger.com/articles/another-hiroshima-is-coming-unless-we-stop-it-now