Friður, friður, friður?

Þórarinn Hjartarson
31. desember, 2025

Öll veröldin hlustaði, langþreytt, löðrandi í blóði

líf hennar kvaldist á veiku blaktandi skari:

Bóndinn og kona hans báðust fyrir í hljóði,

barnið hélt sig með leikföngin sín í vari,

og blómið varla upp úr moldinni mjaka sér þorði

– milljónum tára rigndi á blöðin þess niður.

Öll veröldin hlustaði, beið eftir einu orði

og orðið var: friður… friður… friður… friður.

Svo mælti Jóhannes úr Kötlum í ljóðinu Friður (1939). Ég er mikill áhugamaður um frið, rétt eins og hann. Ég hef staðið fyrir friðargöngum á Þorláksmessu í mínu bæjarfélagi í 24 ár. Samt hef ég strangt tekið aldrei talið mig „friðarsinna“, pacifista, þann sem aðhyllist friðarhyggju og boðar það að aldrei skuli gripið til vopna. Maður þarf ekki að aðhyllast friðarhyggju til að berjast fyrir friði.

Aðhyllist ekki „friðarhyggju“

Andstaða mín við skilyrðislausa friðarhyggju stafar af tvennu:  a) af því ég er byltingarsinni. Ég álít það réttmætt og æskilegt að alþýðan geri uppreisn til að hnekkja því kúgandi valdi sem heldur henni niðri. Alþýðan hefur vissulega allt að vinna á því að leið hennar til valda sé friðsamleg. En reynslan er þessi: ef auðstéttin telur stöðu sinni ógnað af alþýðu hefur hún sterka tilhneigingu til að beita miklu ofbeldi, og ef alþýðan er ekki við því búin að svara því ofbeldi með harðri og skipulegri valdbeitingu á móti munu hennar að líkindum bíða hrakfarir og miklir ósigrar (afturhaldið beitir ofbeldinu enn frekar þegar heimsvaldasinnar standa því að baki).

b) hin ástæðan: af því ég er and-heimsvaldasinni. Á vettvangi alþjóðamála ráða heimsvaldasinnar mestu og þeir fara um með ofbeldi. Þeir þvinga fram vilja sinn og sveigja þjóðir til hlýðni í krafti hervalds þegar annað dugir ekki til. Þar liggur uppspretta styrjaldanna. Í þessu samhengi skilgreini ég mig ekki sem friðarsinna heldur andheimsvaldasinna. Án andheimsvaldastefnu er friðarbaráttan því miður gagnslítil.

Í meira en öld hefur heimsvaldastefna og heimsvaldaeðli verið innbyggt í kapítalismann. Hið heimsvaldasinnaða auðvald nútímans er samþætt í eitt kerfi og hefur eina miðju. Sú miðja er í Washington. Þaðan eru runnar styrjaldir nútímans. Heitustu stríðs-pottarnir síðustu misserin eru Venezúela, Miðausturlönd, Úkraína (og hitnandi pottur er auk þess á Suður-Kínahafi).

Það er nefnilega undantekningarlítil regla að bandaríska/vestræna heimsveldið (Veldið) stendur á bak við styrjaldirnar (ásamt nánustu bandamönnum, í NATO). Fyrst í líki ofurveldis (hegemóns) meðan Bandaríkin réðu lögum og lofum í heiminum, bæði efnahagslega og pólitískt, og framfylgdu því valdi eins og heimslögregla, í krafti alhliða yfirburða sinna. En á síðasta áratug eða svo stundar það stríðsrekstur sinn sem hnignandi veldi, án hinnar fyrri efnahagslegu drottnunarstöðu.

En hinir töpuðu efnahagsyfirburðir valda því, að til þess að koma fram sinni heimsvaldasinnuðu arðránspólitík beitir Veldið pólitískri áhrifastöðu sinni og hráu hernaðarlegu valdi einfaldlega meira þar sem áður dugðu efnahagslegar aðferðir, vald yfir fjármálakerfi og slíkt. Veldið verður m.ö.o. ennþá hernaðarsinnaðra en áður.

Það þarf varla að taka fram, að ef þú spyrð Þorgerði Katrínu eða vestrænt forritaða fréttastöð eins og RÚV færðu önnur svör, nefnilega þau að stríðshætta nútímans stafi frá Rússlandi og Kína, einnig Íran, N-Kóreu og einhverjum slíkum, með því að einangra þau og berja niður fæst friðurinn. Nóg um það.

Vandinn er ekki vopnin sjálf heldur í hvers þágu þeim er beitt

Þegar hin ytri alþjóðlegu skilyrði stjórnmálanna einkennast af yfirgangi voldugasta heimsveldisins – Veldisins – íhlutunarstefnu þess og valdbeitingu er sem sagt mjög til efs hvort það sé eitthvert hollráð til handa fátækari hluta jarðarbúa og þjóðum þeim, stórum og smáum, sem stynja undan áðurnefndum yfirgangi, að þær eigi skilyrðislaust að kasta frá sér vopnum sínum og verjum. Það verður að aðgreina réttláta og rangláta beitinbgu vopnavalds.

Tökum nú þrjú skólabókardæmi sem varpa ljósi á yfirgang heimsvaldasinna í nútímanum og jafnframt á spurninguna um stríð og frið.

Íran

Eftir seinni heimsstyrjöld tóku Bandaríkin við af Bretum sem mestráðandi í Miðausturlöndum, þau eiga þar t.d. á annað hundrað herstöðvar (þ.m.t. „herstöðina“ eða „ósökkvandi flugmóðurskipið“ Ísrael). Eftir fall Sovétríkjanna 1991 tók BNA upp afar herskáa stefnu gegn öllum löndum í þessum heimshluta sem ekki lutu nógu vel vestrænum aga og arðráni – með innrásum, staðgengilsstríðum og valdaskiptaaðgerðum – stefnandi á full svæðisbundin yfirráð. Oft var Ísrael þar stríðsverktaki. Mikið blóð hefur síðan flotið og nokkur árangur náðst í að hrekja burt „óþæg“ stjórnvöld á svörtum lista Bandaríkjanna. En yfirráð Bandaríkjanna og Vestursins á svæðinu hafa samt í heild ekki styrkst.

Það sem mest hefur staðið í vegi heimsvaldasinna er staðfast viðnám Írans og herstyrkur Írans, sem og „Andspyrnuöxullinn“ í nálægum löndum (Líbanon, Sýrlandi, Íkrak, Jemen, Palestínu). Án þess hernaðarlega styrks og viðnáms væri yfirgangur heimsvaldasinna takmarkalítill eða takmarkalaus, og ógæfa þjóðanna á svæðinu í samræmi við það.

Rússland/Úkraína.

Sókn Bandaríkjanna og Vestursins á hendur Rússlandi eftir fall Sovétríkjana fólst í austurþenslu NATO, allt upp að landamærum Rússlands, framkvæma síðast valdarán í Úkraínu og vígvæða hana gegn Rússlandi eins og mest mátti við koma. Hörmungar 10. áratugarins gáfu Rússum forsmekk af því lífi sem vænta mátti í Rússíá undir forsjá og arðráni vestræns fjármálavalds.

Það þarf ekki að taka það fram að hvers konar afvopnun Rússlands hefði verið verra en glapræði. Það má deila um hvort ólögleg innrás Rússlands í Úkraínu hafi verið óhjákvæmileg (frá sjónarhól Rússlands) en víst er að grunnorsök stríðsins þar er ekki hernaðarsókn Rússa til vesturs heldur hernaðarleg sókn NATO til austurs. Líka ljóst að Rússar hafa margsinnis boðið viðræður um hlutleysi Úkraínu ásamt öryggistryggingum fyrir Rússland í vesturátt, en NATO hefur hingað til tekist að slá slíkt út af borðinu. Í ljósi ósigurs á vígvellinum er vandséð að NATO geti lengi enn forðast slíka friðarsamninga, a.m.k. ekki nema koma sjálft með enn beinni hætti inn í styrjöldina – og þá væri friðarvonin framundan smá og dökk.

Venesúela.

Í 200 ár hafa Bandaríkin meðhöndlað Rómönsku Ameríku sem áhrifasvæði og sem bakgarð sinn, með tilvísun til Monroe-kenningarinnar, og m.a. framkvæmt þar óteljandi íhlutanir og valdaskiptaaðgerðir. En þrátt fyrir það hefur það gerst á síðustu árum, á tíma „fjölpólunar“ með nýjum framvaxandi valdapólum, að einkum efnahagsleg áhrif Kína á svæðinu hafa vaxið eftir leiðum hnattvæðingar, og Kína er nú stærsti viðskiptaaðili Rómönsku Ameríku, stórveldið Brasilía er í BRICS og fleira má telja.

Ný þjóðaröryggisstefna BNA er í stuttu máli viðbrögð Bandaríkjanna við „fjölpóluninni“, einkum á efnahagssviðinu. Eins og Ben Norton segir:

Bandaríkjastjórn vill ná fullum yfirráðum í Rómönsku Ameríku, koma þar á óstöðugleika og steypa af stóli öllum sjálfstæðum ríkisstjórnum á svæðinu sem eru í bandalagi við Kína og Rússland. Þess vegna heyja Bandaríkin nú stríð gegn Venesúela.

Bandaríkin ætla að gera álfuna aftur að „hreinu“ efnahagssvæði fyrir sig sjálf og útiloka alla hugsanlega keppinauta, uppræta áhrif þeirra. Afnema með því frjálslynda hnattvæðingarstefnu en taka upp beinni  og hraðvirkari stjórn. Fyrir viku síðan endurtók Trump stefnuna frá sl. vetri að: „við verðum að fá Grænland“. Allt þetta er á margan hátt afturhvarf til nýlendustefnu 19. aldarinnar. Trump beitir nú óspart pólitískum og efnahagslegum þrýstingi til að hafa áhrif á kosningar á svæðinu og sjá til þess að löndin verði tryggir fylgihnettir BNA. Ef það nægir hins vegar ekki beitir hann hervaldi.

Lula Brasilíuforseti og hans nánustu ráðgjafar hefa nú sagt að ef BNA geri innrás í Venezúela verði það „annað Víetnam“. Það verðum við einfaldlega að vona. Þar er allt komið undir pólitískum styrk, og þó enn frekar herstyrk, Maduros. Ef Bandaríkin eiga auðveldan leik í því að steypa Maduro og Chavistum með hernaði mun það auðvitað hvetja þau til að endurtaka leikinn hvar og hvenær í álfunni, sem þau telja nauðsynlegt.

Vilji Trumps til að draga sig út úr Úkraínudeilunni er merki um að Veldið vilji ekki „yfirteygja sig“ og vilji geta einbeitt sér að Kína. Þessa sama mun gæta á hinum vígvöllunum: ef Bandaríkin draga sig ofan í stríðsfen í Venezúela eiga þau erfitt með að einbeita ser að Íran. Yfirteyging er falli næst, og flýtir því falli.

„Styðjum Þjóðfrelsisfylkinguna til sigurs!“ var kjörorð Víetnamhreyfingarinnar 1970. Styðjum Venezúela til sigurs! verður að vera kjörorð okkar í stríði Venezúela við Bandaríkin.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.