Fjölmiðlamenn verða að upplýsa þegar stjórnmálamenn afvegaleiða
—

Ögmundur Jónasson
7. mar, ’26

Það var undarlegt að fylgjast með fréttum sjónvarps í kvöld af fréttamannafundi stjórnarflokkanna og frá sameiginlegum þingflokksfundi stjórnarflokkanna þar sem kynnt var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um „áframhaldandi viðræður” um aðild að ESB.

Forsætisráðherrann, formaður Samfylkingarinnar, sagði á þá leið að þetta snerist alls ekki um aðild heldur bara könnun á hvað væri í pakkanum, „ekki um það hvort við ætlum inn í Evrópusambandið…“

Utanríkisráðherrann, formaður Viðreisnar, tók í sama streng og sagðist auk þess aldrei myndi skrifa undir samning um afsal á yfirráðum yfir sjávarauðlindinni.

Mennta- og barnamálaráðherrann, formaður Flokks fólksins, kvaðst vera á móti aðild en þarna væri bara verið að kanna hvað stæði til boða.

Svo komu formenn Þingflokkanna með svipaðan boðskap, sögðu það undarlegt ef fólk vildi ekki vita hvað væri í boði.

Ekki að undra að fólk ruglist í ríminu. Enda sögðu margir sem teknir voru tali á förnum vegi að auðvitað þyrfti að vita hvað væri í pakkanum.

En viti menn, í sama fréttatíma er upplýst af hálfu sérfræðinga í stækkunarrétti ESB að EKKI SÉ UM NEINAR VARANLEGAR UNDANÞÁGUR að semja og er það í samræmi við það sem „stækkunarstjórar“ ESB hafa margoft lýst yfir.  Viðmælandi fréttastofu í Brussel var afdráttarlaus eins og margoft áður, 95% af regluverkinu væri með öllu óhagganlegt, það eina sem semja mætti um væru tímaferlin, hvenær aðlögun að einstökum þáttum ætti sér stað. Um EKKERT annað væri að ræða!

Þar með liggur fyrir að staðhæfingar ráðherra og forsvarsmanna þingflokka standast ekki, eru blekkingar. Allt þetta var hins vegar vitað fyrir. En það var líka vitað að ef tækist að tala fólk inn á að samþykkja að kíkja í pakkann væri líklegra að komast áfram með málið. Síðan kæmu allir áróðurspeningarnir eins og við kynntumst í síðustu lotu og þá kynni að vera hægt að villa fólki sýn. Um það snýst þessi slagur! Það er svo augljóst og í fréttum kvöldsins var þetta bókstaflega stafað ofan í okkur. Það voru þó ekki fréttamennirnir sem gerðu það heldur var það blákaldur veruleikinn sem þarna varð ekki umflúinn þakka skuli Brussel!

En þá kemur mín spurning til fréttamanna Sjónvarps, hvers vegna látið þið óátátalið að hlustendur ykkar séu blekktir? Hvers vegna var Þorgerður Katrín, utanríkisráðherra, ekki spurð hvort hún teldi í alvöru að semja mætti VARANLEGA um yfirráð Íslendinga yfir sjávaráauðlindinni; hvers vegna var Kristrún, forsætisráðherra, ekki spurð hvort hún teldi stækkunarstjórann fara með rangt mál, því ef svo væri ekki þá væri það hún sjálf og ríkisstjórn hennar sem stunduðu blekkingar?

Og að lokum, hvers vegna var aðspurðum vegfarendum sem vildu kíkja í pokann ekki sýnd sú virðing að láta þá standa frammi fyrir þeirri staðhæfingu ráðafólksins í Brussel að ekki væri um neitt að semja annað en „tímalínuna”?

Hafa fréttamenn ekki skyldum að gegna gagnvart sannleikanum?

(Greinin er sótt á heimasíðu Ögmundar Jónassonar 6. mars)

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.