Evrópuráðið: Assange var pólitískur fangi
—

Ögmundur Jónasson
8. okt, ’24

Nýliðin vika er um margt gleðileg og um sumt söguleg.

Það var söguleg stund þegar Julian Assange, stofnandi Wikileaks, mætti til fundar í Evrópuráðinu í Strasborg og svaraði fyrirspurnum. Tilefni komu hans til Strasborgar var umræða um skýrslu sem mannréttinda- og laganefnfnd Evrópuráðsþingsins hafði gert um hlutskipti Assange í bresku fangelsi undanfarin ár þar sem honum var haldið án ákæru. Þessi skýrsla nefndarinnar var að lokinni umræðu í nefndinni lögð fyrir þingið sem staðfesti þann skilning mannréttinda- og laganefndarinnar að Julian Assange hafi í raun verið pólitískur fangi.

Það sem var gleðilegt og sögulegt var annars vegar að Evrópuráðið tæki þessa afstöðu og rækti þannig það mannréttindahlutverk sem því er ætlað, og hins vegar að ábyrgðarmaður skýrslunnar var íslenskur þingmaður á Evrópuráðsþinginu, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir en hún er varaformaður íslensku þingmannanefndarinnar á þingi Evrópuráðsins.

Síðan má ekki gleyma því að við hlið Julian Assange á fundinum þar sem hann svaraði fréttamönnum og þar með umheiminum sat – og ekki að ástæðulausu – núverandi ritstjóri Wikileaks; sá maður sem hefur borið hita og þunga af starfi Wikileaks og verið í fararbroddi baráttunnar fyrir frelsi Julians Assange um árabil, Íslendingurinn Kristinn Hrafnsson. Þá er rétt að halda því til haga að Julian Assange lagði áherslu á að endanlega ætti hann frelsi sitt því að þakka að allan tímann sem hann var ófrjáls hélt ótölulegur fjöldi fólks málstað hans vakandi. Það væri ekki réttarkerfið sem hefði bjargað sér heldur þessi samstaða og jú vissulega að hann hefði þurft að fallast á að játa ávirðingar, en hverjar væru þær? Að hann hefði verið sá sem hann alltaf hefði gengist við að vera, blaðamaður sem leitaði upplýsinga og kæmi þeim á framfæri.

Þótt Julian Assange hafi verið þvingaður til að fallast á að leita ekki réttar síns gagnvart ofsækjendum sínum, ekki kalla eftir gögnum sem sannað gætu sekt þeirra, þá hafa aðrir sem leita eftir hinu sanna í þessu efni aldrei fallist á slíkt. Og allt þarf á endanum að leiða í ljós hvernig sviksemi og þvingunum var beitt til þess að hafa Julian Assange undir.


Í stað þess að rekja málsatvik í ofsóknum Bandaríkjamanna og þjóna þeirra í Bretlandi, Svíþjóð og víðar á hendur Julian Assange, set ég hér að neðan nokkrar áhugaverðar slóðir frá þessari atburðarás síðustu daga.

Stutt samantekt frá Democracy Now í BNA: https://www.youtube.com/watch?v=hUKGlriwhjU

Blaðamannafundur frammi fyrir heimspressunni:
https://www.youtube.com/watch?v=IYaNscnE7rc

Enn samantekt AP:
https://apnews.com/article/julian-assange-statement-council-europe-5373cfb854474deba0e5799b23cb8d2e

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.